Leita í fréttum mbl.is

Smá sýnishorn

af innréttingu vinstri manna fæst á síðu Magnúsar Helga Björgvinssonar úr Kópavogi sem ég hef hingað til haldið að væri að reyna að vera málefnalegur.

"Sýnist að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að ræsa alla skítadreifara flokksins og þeir fara nú hamförum. Hallur Helgason, Hannes Hólmsetinn veggurinn.is einhver ömurlegur Sveinn á eyjan.is og fleiri og fleiri.

Og nú skal fela stöðunna sem Sjálfstæðisflokkurinn er í vegna lekamálsins með því að ráðast í að klína smörklípum á allt og alla óháð því hvort það sé satt eða logið.

Það er ekki verið að fjalla um málefnin heldur ráðist beint að fólki. Vantar alveg að þeir skýri hvað þessar ásakanir þeirra sem fæstar standast skoðun (sennilega engin) eiga að hafa með vandamál þeirra flokksmanna að gera. það er jú verið að reyna að milda högginn sem koma við frekari birtingu á lekagögnum á næstunni.

En þeir skildu átta sig á því að fólk er almennt löngu hætt að hlusta á svona pakk."

Var þetta virkilega svona mikið áfall að sjá Sjálfstæðisflokkinn rísa um 5 % í skoðanakönnun? Er sá flokkur barasta skítadreifari sem 27 % landsmanna ætla að styðja?

Hefur Magnús Helgi ekki verki með þessu hugarástandi sínu?

Vonandi er þetta smá sýnishorn ekki ávísun á nýja tíma kratismans á Íslandi frekar en vísbending um vaxandi áhyggjur af því að fólkið sé að átta sig að stjórnmál skipta máli þó menn ræði þau í hálfkæringi eins og ég vona að Magnús Helgi sé í rauninni að gera í þessu smá sýnishorni af andlegri líðan sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Magnús Helgi, hefur ásamt þeim Ómari Bjarka, Axel Jóhanni, Sveini Rósinkrans og Jóni Inga, verið einn duglegastur af fótgönguliðum "Vinstri Hjarðarinnar"  að rægja og gagnrýna þann góða árangur sem hefur náðst í tíð núverandi ríkisstjórnar og nú eru líkur á að stjórnin verði áfram á svipuðum nótum og það eru ákveðin vonbrigði fyrir þessa fugla og það brýst svona út.

Jóhann Elíasson, 18.4.2016 kl. 15:11

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gaman að vita að einhverjir lesa skrif mín cool Það er bara stundum að ég leyfi mér að segja bara hlutina eins og þeir eru. Það vakna reglulega þegar þörf er á aðilar sem ég leyfi mér að kalla skítadreyfara. Þ.e. að  þeir leggja áherslu á að koma höggi á fólk með tilvitnanir í fréttir eða upplýsingar sem löngu er búið að svara og eiga ekki stoð í raunveruleikanum. Eins og t.d. veggurinn.is gerir nú þessa dagana. Þetta vaknar alltaf þegar erfitt er í búi hjá Sjálfstæðisflokknum. Þá er ekki horft í hvað sé satt eða rétt heldur hvaða skít getum við klínt á aðra til að taka athyglina frá því sem er verið að ræða. Svona bragð eins og við megum svindla af því að aðrir eru að gera það.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.4.2016 kl. 15:44

3 Smámynd: Guðmundur Ingólfsson

En er þetta ekki bara alveg rétt hjá magnúsi Helga, ég var einmitt að lo0ka á tvo svona skítadreyfara á FB :)

Guðmundur Ingólfsson, 18.4.2016 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 3418316

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband