Leita í fréttum mbl.is

Framboð Davíðs

sem nýtur langmests trausts í íslenskra stjórnmálamanna eða rúmlega þrefalds á við næsta mann, vekur sterk viðbrögð með og á móti.

Rógur andstæðinganna er hinsvegar gríðarlegur á móti Davíð. Sýnishorn er ekki langt undan ef tekinn er kafli úr skrifi prófessors doktors Þorvaldar Gylfasonar í Fréttablaðinu í dag, sem hefur verið óskorað málgagn Samfylkingarinnar og VG.

 

"..... Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn gengur sundraður til næstu alþingiskosninga þar eð Viðreisn Benedikts Jóhannessonar tölfræðings er fyrst og fremst stefnt gegn Sjálfstæðisflokknum vegna vanefnda flokksins í Evrópumálum.

Það veikir flokkinn enn frekar að nú hefur fv. formaður flokksins, forsætisráðherra og seðlabankastjóri tilkynnt framboð sitt til forseta Íslands, maður sem hefur skilið eftir sig sviðna jörð hvar sem hann hefur drepið niður fæti sl. aldarfjórðung. Hann kýldi kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins niður um þriðjung, kýldi lestur Morgunblaðsins niður fyrir Bændablaðið, keyrði Seðlabanka Íslands í þrot... 

....Rannsóknarnefnd Alþingis ályktaði að hann hefði líkt og sex aðrir menn gerzt brotlegur við lög í aðdraganda hrunsins.

Fjórir af þessum sjö voru hátt settir sjálfstæðismenn. Nánar tiltekið segir RNA í skýrslu sinni (2. kafli, bls. 46) að seðlabankastjórinn þáv. „hafi sýnt af sér vanrækslu í skilningi … laga … í tilteknum störfum sínum við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi og eftirlit með henni.“

Ætla má eftir allt sem á undan er gengið að einhverjir flokksmenn sjái e.t.v. votta fyrir tormerkjum á að senda mann með slíkan feril til Bessastaða. Stjórnmálaflokkar hafa losnað úr límingunum af minna tilefni.

Spyrjið repúblikana."

Þetta er ekki dæmigerður rógur andstæðinga Davíðs enda er prófessorinn ekki venjulegur maður heldur langt þar fyrir neðan.

En þetta er samt sagt um manninn sem sagði Íslendinga "ekki eiga að borga erlendar skuldir óreiðumanna".  Þvert ofan í það sem prófessorinn og meðreiðarsveinar hans úr Háskólanum sögðu, Kúbu Gylfi, Stefán Ólafsson og hvað þeir nú heita allir saman, Steingrímur Jóhann Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir.

Hvert einasta orð og atriði í grein prófessorsins um Davíð Oddsson í tilvitnaðri grein er lygi og aftur lygi. Af því að það er prófessorinn sjálfur sem skrifar þetta undir nafni þá æsir sig enginn upp yfir þessu. Það vita allir hvernig hann doktor Þorvaldur er innréttaður.

Ég er persónulega ekki hrifinn af framboði Davíðs af þeirri eigingjörnu ástæðu að ég les hvert orð sem hann skrifar í Mogga með áfergju. Hann er besti stjórnmálapenni þjóðarinnar og sá maður sem hefur næmastan skilning á eðli hlutanna. Og man fleira en aðrir menn og kann að nota það. Reynsla hans og þekking er ótrúlega víðfeðm.  Þess vegna hefði ég viljað hafa hann á Mogganum áfram til að kveða niður daglegar lygar vinstri pressunnar.

En ef hann endilega vill þetta maðurinn, þá verð ég auðvitað að gera það sem hann biður um. Og áreiðanlega verður Davíð góður Forseti, það efa ég ekki.

En ég er ekki viss um að þjóðin hafi vit til að gera sér þetta ljóst og það verður henni kannski líka fyrir bestu þegar upp verður staðið því Davíð hefur lofað að fara aftur á Moggann ef hann tapar. Og það er þá líka best eins og hann Árni Oddsson heitinn í Steypustöðinni gæti hafa orðað það.

En á meðan hann Davíð er í framboði þá hefur fólkið valið. Hvernig sem kosningin fer þá vinnur þjóðin. Það er þjóðin sem verður sigurvergarinn á hvorn veginn sem er þegar framboð Davíðs Oddssonar er gert upp. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Líklega er Þorvaldur lygnasti starfsmaður Háskóla Íslands.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.5.2016 kl. 13:05

2 Smámynd: Elle_

Já kannski Heimir. Og alveg óvanalega ósvífinn.

Elle_, 12.5.2016 kl. 15:04

3 identicon

Halldór

Það er ekki fallegt af þér að tala svona um Þorvald, vitandi hvað að honum amar. Hins vegar er ámælisvert af Fréttablaðinu að birta þetta án þess svo mikið sem að lesa yfir. Hver ber eiginlega ritsjórnarábyrgð á því blaði?

Bestu kveðjur

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 12.5.2016 kl. 16:28

4 identicon

Halldór

Það er ekki fallegt af þér að tala svona um Þorvald, vitandi hvað að honum amar. Hins vegar er ámælisvert af Fréttablaðinu að birta þetta án þess svo mikið sem að lesa yfir. Hver ber eiginlega ritstjórnarábyrgð á því blaði?

Bestu kveðjur

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 12.5.2016 kl. 16:29

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Einar minn gamli vinur, ég marka ávallt það sem þú segir. Ég hef alltaf reynt að tipla a tánum i kring um hann Þorvald vegna þessa sem þú nefnir. Og svo var hann faðir hans í sérstöku uppáhaldi hjá mér í hópi fimm bestu kennara sem ég hef haft á lífsleiðinni eðalþjóðleg nöfn. Í þetta sinn hef ég kannski gleymt því.

En þetta sem Þorvaldur segir um Viðreisnina hans benedikts þá er leiðinlegt að vita til þes hvernig sá góði drengur hefur misst sig í þessari ofsatrú á Evrópusambandið. Þetta er ekki lengur stærðfræðileg greining gáfumannsins heldur eitthvað annað. Kannski svipað og hrjáir doktor Þorvald þegar trúin tekur við af rökfræðinni og djöflahræðsla blandast vísindalegri hugsun. 

Halldór Jónsson, 12.5.2016 kl. 20:49

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

"sem nýtur langmests trausts í íslenskra stjórnmálamanna eða rúmlega þrefalds á við næsta mann." Um hvað ertu að tala nákvæmlega Halldór. Ég hef sennilega misst af einhverju. Síðast þegar ég vissi var hann með 13 % fylgi. Hefur einhver ný könnun verið gerð?

Jósef Smári Ásmundsson, 12.5.2016 kl. 21:19

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fylgstu með Jósef,Davið mældist ekki allan tímann sem tölur tikkuðu með Guðna.

Helga Kristjánsdóttir, 13.5.2016 kl. 03:30

8 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Jú reyndar Helga. Í fyrri könnun var það ekki. Þá var aðeins hluti kjósenda sem fengu kost á að velja Davið enda fékk hann þá ekki nema 3% ef ég hef tekið eftir rétt. En hvaða könnun er það sem hann fær þrefalt fleiri en næsti maður, eða er maðurinn að tala um eithvað annað ? Og hvað liggur þá að baki þeim orðum? Það er það sem ég er að spyrja um.

Jósef Smári Ásmundsson, 13.5.2016 kl. 06:27

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

 Rangt hjá þér Helga, í könnunni sem Jósef vísar til voru þeir báðir, Guðni og Davíð, með í könnunni allan tímann. Í könnun sem birt var þar á undan og Davíð mældist með 3 eða 4%, var hann ekki með nema í hluta hennar.

Sýni næstu kannanir að þetta sé fylgi Davíðs mun hann hætta við framboð, enda gunga þegar á reynir.

Þá semur hann svo hugljúfa skýringu á hugleysinu að þið hafið aldrei séð annað eins hugrekki og mannfórn og fallið að fótum meistarans.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.5.2016 kl. 06:34

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er nákvæmlega sammála orðum þínum, Halldór, um Davíð Oddsson: "Hann er besti stjórnmálapenni þjóðarinnar og sá maður sem hefur næmastan skilning á eðli hlutanna [í stjornmálum]. Og man fleira en aðrir menn og kann að nota það. Reynsla hans og þekking er ótrúlega víðfeðm."

En á Þorvaldi Gylfasyni sem þjóðfélagsfrömuði og Fréttablaðspenna hef ég ekkert álit. Einna makalausust er blekkingarstarfsemi hans um "stjórnlagaráð" og ESB-jarðýtuvinna hans á þeim vettvangi.

Jón Valur Jensson, 13.5.2016 kl. 12:05

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jósef, Axel afsakið hafa skal það sem sannara reynist drengir. 

Helga Kristjánsdóttir, 17.5.2016 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband