Leita í fréttum mbl.is

Von á nýrri bylgju flóttamanna

frá Sýrlandi í haust. M.a. er Kópavogur viðtökusveitarfélag.

Ég þykist vita að það þýðir ekki að tala fyrir eyrum Sjálfstæðisþingmanna um málefni flóttamanna þó að þeir þurfi á mér að halda í prófkjöri í september. Því beini ég orðum mínum til míns fólks í sveitarstjórn hér í Kópavogi.

Er ekki líklegt að kristnir Sýrlendingar yrðu fljótari að aðlaga sig kópvægskum veruleika en múslímskir? Þó ekki væri nema í klæðaburði og venjum? Ég tala nú ekki um ef þeir væru læsir og skrifandi. Hvað þá með einhverja menntun til munns eða handa.

Er það útilokað að þið fáið eitthvað að velja úr mengi sýrlenskra flóttamanna? Ef svarið er neikvætt, af hverju má ekki velja? Séu þetta kvótaflóttamenn er það þá ekki talan sem ræður? Eða má ekki mismuna eftir trúarbrögðum? Eftir hverju þá?

Þessi bylgja flóttamanna kemur hvað sem ég kýs í prófkjörinu og hvað sem ég segi.Til viðbótar við stöðugan straum sómalskra hælisleitenda sem Svíar þekkja manna best.

Af hverju vill enginn stjórnmálamaður tala við mig um málefni flóttamanna og hælisleitenda? Er ég svona mikið fíbjakk af því ég vil reyna að leita bestu lausna?

Skyldi bara Helgi Helgason vilja tala við mig þegar vona er á nýjum bylgjum flóttamanna um prófkjörstímann?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Íslenzka Þjóðfylkingin: þeirra Helga nafna míns Helgasonar, á gnægð sóknarfæra, í þeirri alvarlegu stöðu, sem er að myndazt í landinu / og þegar orðin: að nokkrum veruleika, sé miðað við ÓHEFT aðstreymi Múhameðstrúar liðsins, hingað.

En - nafni (Helgi Helgason), virðist vera óþarflega hljóð látur:: jafnframt, einhvers konar feimni haldinn, sem og daufgerð, fari hann ekki að bretta upp ermar sínar.

Þjóðfrelsisflokkar: sem Landvarnamenn : Ungverjalands / Slóvakíu / Austurríkis / Póllands og Tékklands, eru fyrir löngu teknir að undirbúa harðneskjuleg átök, við innrásarlið Mið- Austurlanda og nágrennis, í sínum löndum, svo fram komi.

Geri ráð fyrir - að félagar mínir, Falangistar á Spáni og í Portúgal séu í startholum einnig, m.a.

Svefndrungi og doði: ísl. ráðamanna, er með öllu forkastan legur, að minnsta kosti.

Og ekki bætti úr skák - tilkoma Pírata ófögnuðarins hér á landi:: fólks, sem skirrizt ekki við, að rífa niður allar stoðir Siðmenningarinnar, hvar: sem þeir geta því við komið.

Með beztu Falangista- og Kúómingtang kveðjum, af Suðurlandi /

  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.5.2016 kl. 12:31

2 identicon

.... þá: eru það gleðitíðindi mikil, að Bhúddistar austur í Búrma (Myanmar), gera eindrægar kröfur til stjórnvalda þar í landi, að Múhameðstrúarmenn og iðkun þeirra kreddu, verði ÚTLÆG gerð, þar í landi.

Góð tíðindi - frá Suðaustur- Asíu !

Rakst á þessa frétt: á ýmsum útlendra vafra, fyrir stundu.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.5.2016 kl. 12:51

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég held að ef við ættum að velja eftir trúarskoðunum út frá því hverjir ættu best með að aðlagast íslensku þjóðfélagi þá ættum við að velja trúlausa enda íslenskt þjóðfélag blessunarlega að verða þannig að trúarbrögð skipta æ minna máli í þjóðfélaginu. 

Við fáum að velja út þá flóttamenn sem við teljum best til þess fallnir að aðlagast íslensku samfélagi en þar skipta trúarbrögðin einfaldlega engu máli. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að þeir sem eigi að velja eigi ekki að hafa upplýsingar um trúarskoðanir usækjenda svo tryggt sé að þeir emismuni ekki eftir trúarskoðunum.

Bússistarnir í Burma eru ekki bara að heimta að Islam verði útlægt í landinu heldur öll önnur trúarbrjgð en Búddismi. Þeir hafa lengi kúgað kaþólskan þjóðflokk í landinu og er stór hluti hans fyrir vikið í flóttamannabúðum í Tælandi.

En þetta trúarofstæki þarf að uppræta þannig að allir trúarhópar geti liðað í sátt í landinu. Það þarf að taka á þessum öfgafullu búddistum rétt eins og öllum öfgafullum trúarhópum. 

Það er hræsni og tviskinnungur í því svo vægt sé til orða tekið að fólk sem fordæmir það þegar kristnir menn eru ofsóttir, þeir hraktir á flótta eða kirkjur þeirra brenndar en fagnar því að múslimar fái sömu meðferð. Það er engin munur á því að brenna kirkju og brenna mosku eða hrekja múslima úr landi og hrekja krisna úr landi. Það er heldur engin munur á því að banna byggingu kirkju og að banna byggingu mosku.

Sigurður M Grétarsson, 26.5.2016 kl. 07:45

4 identicon

Sælir - að nýju !

Sigurður M Grétarsson !

Hérna: ræðir aðeins, um fullkomna samkvæmni.

Bhúddistar í Búrma - hafa einnig FULLAN RÉTT TIL:: að útiloka viðveru Kristinna manna í landi sínu, ekkert síður en annarra.

Búrma (Myanmar): er einfaldlega, eitt Höfuð- vígja Bhúdd ismans, hvort sem þér eða mér:: eða öðrum líkar.

Því - styð ég þarlenda ALGJÖRLEGA, sem halda vilja utanum sínar Pagóður / en vilja hvorki moskur, né Kirkjur Kristinna manna, eða aðrar byggingar annarra trúarbragða, yfirleitt.

Ekki flókið Sigurður minn: snýst ekkert um ofstæki af Bhúddista hálfu, heldur RÉTT þeirra, að fá að hafa hlutina í friði fyrir annarra ágengni og ásælni, þar heimafyrir !

Alfarið !

Hinar sömu kveðjur - sem seinustu / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.5.2016 kl. 12:42

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þeir kristnu menn og múslimar sem hér er verið að ofsækja eiga alveg jafn mikið í landinu og búddistarnir enda fæddir þar og geta rakið ættir sínar í landinu alveg jafn langt aftur í ættir og búddistarnir. Það er ekkert sem réttlætir ofsóknir meirihluta gegn minnihluta og trúfrelsi eru ein af grundvallarmennréttindum. Því hefur engin meirihluti rétt á að banna þeim sem játa önnur trúarbrögð en þeir að iðka trú sína með sama hætti og þeir sjáflir.

Búrma (Myanmar) er ekkert meira höfuðvígi búddisma en önnur austur Asíu ríki. Tæland er ekkert minna búddaríki en Burma en þar ríkir trúfrelsi og þar eru fullt af moskum og kirkjum. Þeir hafa meira að segja tekið við bæði krostnum og múslimjum sem hafa flúið yfir landamærin vegna ofsókna í Burma. Ég hef sjálfur komið inn í flóttamannabúðir kaþólsks ættbálds í Tælandi.

Sigurður M Grétarsson, 26.5.2016 kl. 14:29

6 identicon

Sælir - sem jafnan, og áður !

Sigurður M !

Gildir einu: Sigurður minn.

Búrmanar - líkt öðrum nágrönnum sínum, eiga að geta haft alla þá hentisemi sína sem þeir kjósa, hvað sem tauti og rauli okkar (mín og þín) eða annarra líður, ágæti drengur.

Kristnir menn: líka sem aðrir, verða að þekkja sín takmörk / ekkert síður þarna austurfrá, sem annarrs staðar, Sigurður minn !

Sízt síðri kveðjur - en öðrum, og fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.5.2016 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband