Leita í fréttum mbl.is

Tesla

er einskonar "personal relocator" eða flutningstæki sem er ætlað til þess að flytja egóið þitt á milli hnita á jarðkúlunni. Flest svona tæki kallast bílar. Tesla er eitthvað í þá átt og eins í laginu en svo gersamlega bí bí langt inn í framtíðinni í dag að maður er bara forngripur.

Vinur minn tók mig með í spinn á þessu 700 hestafla fjórhjóladrifna trölli sem er takkalaus stafræn tölva sem ég skil ekki af hverju Árni Matt er ekki búinn að skrifa um í Mogganum.

Þetta tæki ferðast sjálft  eftir miðlínum línum og vegköntum, sér alla bíla í kringum sig og víkur sér undan ef þeir ætla að keyra á þig, lendir aldrei aftan á bílum, bremsar betur en nokkuð annað og enginn fer fram úr því ef því er að skipta. Notar hreyfiorkuna til að hlaða batteríin þegar það bremsar.

Fyrir utan þetta er þetta bráðfallegur bíll. Hann er í beinu sambandi við fæðingarstað sinn í Kaliforníu og fær fídusa senda yfir netið. Þegar Elon Musk og hans lið eru búnir að finna þá upp eru þeir komnir í þinn bíl daginn eftir og virka. Einn daginn fór þessi ársgamli bíll að keyra sjálfur upp úr þurru því það var búið að finna appið upp. Ef þú keyrir á hringja þeir  strax í bílinn til að spyrja hvort þeir geti aðstoðað.

Ef þú kemst ekki bílinn vegna þrengsla þá bara læturðu hann bakka út með fjarstýringu. Þú stoppar fyrir framan bílskúrinn og hann sér um að opna hurðina og fara inn og loka á eftir sér. Þú sérð allt umhverfið í sjónvarpsskjáum. Hann man þegar hann kemur á svæði þar sem þú hafðir kosið að hækka hann upp vegna ófærðar og hækkar sig upp til öryggis. Ég veit ekki helminginn af því sem hann getur.

Á leynistað er svona 200 metra malbikaður vegur með engum gatnamótum. Ertu tilbúinn spurðu vinurinn. Já sagði ég án þess að vera það og kýldist umsvifalaust kirfilega án hreyfigetu í sætið og hauspúðann á næstu þremur sekúndunum þegar bremsað var úr hundrað niður í núll á minna en hundrað metrum.  

Það tekur klukkutíma að hlaða inn hverja hundrað kílómetra í drægi að 430 kílómetrum. Húddið er tómt og skottið líka. Þú ert bara orðlaus. 

Tesla er ekki bara bíll, þetta er uppplifun, tækniundur.

Framtíðin er komin hingað og heitir Tesla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Já, nafni. Tesla er hrein og klár snilld. Get verið algerlega sammála þér um það. Unun að aka þessu tækniundri, með öllu sem boðið er uppá. Get tekið undir það með þér að manni finnst sem maður sé eiginlega orðinn úreltur sjálfur, hafandi ekið Tesla. Nú eru þeir að koma með minni bíla á lægra verði og eins eru þeir með jeppling á leiðinni, ef hann er ekki þegar kominn erlendis. Rafhlaðan frá Tesla, ein og sér, er ekki síður byltingarkennd. Hér á landi væri hægt að nota hana ásamt góðri vindmyllu, til að framleiða allt það rafmagn sem þarf til að nota í heilu húsunum.

Göðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 7.6.2016 kl. 01:46

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Netop Nafni

það er gaman að heyra þig tala um þetta áhugasvið mitt. Ég var við að setja upp vindmyllurnar í Þykkvabæ. Nú er Steingrímur Erlingsson sem á þær að kaupa lönd þarna og vill fá a reisa 15 stk alvöru vindmyllur, 50 megawött.

Þá er hinsvegar svo flókið að finna út hvort einhverjar kellingar séu á móti þessu því þeim finnist vindmyllur ljótari en háspennuturnar sem eru út um allt á þessu svæði.Rautt blikkljós skiptir orðið einhverju höfuðmáli.

Það á að rannsaka hvort fuglar hugsanlega drepist á þessum vindmyllum og kaupa einhverja sérfræðinga að norðan  til þess fyrir milljónatugi til að reikna út líkindi á því? Þeir hefðu getað spurt mig eða Steingrím hversu margir fuglar hefðu drepist á þeim bráðum tveimur árum sem fyrstu tvær vindmmyllurnar hafa snúist upp á hvern dag, í náttmyrkri sem sólskini.

Ekki einn einasti,

Er það einskis virði í svona mati á umhverfisáhrifum? Af hverju þarf að kaupa einhverja hægrabrjóstssérfrælðinga til þess að komast að þessu eða hinu? Hvort gróðurskilyrði batni eða versni við vinmyllur? það er vitað frá USA að þau stórbatna. Af hverju skydlu þau ekki gera það í Þykkvabæ?

Nún verpir lóa beint fyrir neðan skurðpunkt snúningsplans spaðans á annarri myllunni.Er hún búin að uppgötva að mávurinn á erfiðara með að komast að egggjunum og ungunum þegar myllan hvæsir á hann? Sauðféið leggst í skuggann af myllunni í hita og flytur sig eftir sólinni. Þarf að kaupa sérfræðinga frá RALA til að rannsaka samlíf kinda og vinmylla. Má ekki horfa á það þarna ókeypis?

Sama með hesta og beljur, álftir og gæsir sem bíta gras og rífa kartöflur upp undir myllunum. Pétur skipulagsfulltrúi á Laugarvatni telur alveg frágangssök að reisa vindmyllur í sínu umdæmi fyrr en allar svona rannsóknir hafa verið gerðar. Og Kristófer sveitarstjóri tekur undir með allri sveitarstjórninni. Allt nema að greiða fyrir atvinnuuppbyggingu virðist vera mottó þessarra manna.

Við erum með nýja borholu á Bergstöðum þarn í umdæmi þeirra. Við viljum setja upp gróurhús með afgangsvatninu sem er kássa af og rennur ónotað í Tungufljót. Kannski hitar það hana upp svo lax geti þrifist í ánni sem er og hefur verið of köld fyrir hann í gegn um aldirnar því annar hefði lax alltaf verið í Tungufljóti. Við erum búnir að sækja um til Péturs á laugarvatni um að setja um vindmyllu við holuna til að lýsa gróðurhúsin. Nei, ekki virtir viðlits. Þeir eiga eftir að búa til samræmda vindmyllustefnu fyrir landið skilst mér. Tekur mörg ár segir hann eftir að þeir sendu marga menn á kostnað skattgreiðendanna þarna til að horfa á vindmyllur í Bretlandi. Heimlomnir var það eitt vitað að það væri eðlilegt að sveitarstjórnir tækju sér mörg ár í að afgreiða svona umsóknir.

Þetta er ekki grín heldur sannleikur um vitleysuna sem viðgengst á þessu landi nafni minn.

Ég er búinn að sjá nýja Tesla battaríið og ætlaði sannarlega að kaupa mér eitt slíkt í bústaðinn minn og fá rafmagn úr vindmyllunni og borga henni þessi á annað hundrað þúsunda sem rafmagnsreikningurinn er núna bara hjá mér. Nei, Pétri á Laugarvatni og hans liði finnst ekki liggja á neinu slíku fyrir Ísland.

Ég bið að heilsa mörgæsunum þarna suðurfrá. Spurðu þær hvað þeim finnist um vindmyllur eða umboðsmenn þeirra. Ég er viss um að þu færð skýrari svör en fást hjá  yfirvöldum á Íslandi og sérstaklega í Bláskógabyggð og  Árnessýslu.

 Nema í Rangárþingi Ytra, þeir styðja vindmyllurnar með ráðum og dáð, án þeirra velvilja hefðu myllurnar aldrei risið í Þykkvabæ. Og þykkvibær er líka á Íslandibara svona 50 kílómetra frá Skeiðunum.  Enda voru það bændur úr Ánessýslu og af Skeiðunum sem riðu til Reykjavíkur 1905 til að mótmæla Símanum.

Á Skeiðunum  á Steingrímur Erlingsson stórt lands sem hann keypti í Vorsabæ. Þar ætlaði hann að reisa myllurnar þegar fyrrnefnd yfirvöld komu í veg fyrir það. Þá komu þeir í RY til bjargar og myllurnar risu. Hugsaðu þér nafni, þú kaupir land fyrir milljónatugi þar sem þú ætlar að gerast orkubóndi. Einhverjir bibbnir strumpar og sumarbústaðakellingar í nágrenninu geta stöðvað þinn búskap á eigin landi. Þeim er öllum svo gersamlega sama, það snertir þá ekki þó að þvú tapir skyrtunni á þessu.

Bestu kveðjur til þín nafni og vel þér veiði eins og Stjáni blái fékk frá Drottni sjálfum.

Halldór Jónsson, 8.6.2016 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband