Leita í fréttum mbl.is

Píratar

brilléra með þessum sjónvarpsþáttum ungu kvennanna. Stíliséruð mynd af Vilmundi Gylfasyni svífur í bakgrunninum. Alveg eins og á Kúbu þar sem andlit Che er ávallt einhversstaðar í bakgrunni sem er ennþá sálin í byltingunni.

Þær sópa upp fylginu milli 18 og 34 ára.

Nú er Vigdís Hauks að hætta. Hún boðar stórsprengingu í kring um Steingrím J. Sigfússon þegar aðgerðir hans koma upp á yfirborðið. Nú skilur maður betur hvervegna hann heldur áfram og hleypir engum nýjum að í þessu VG. 

Framsókn virðist heillum horfin. Eftir happið sem hún hlaut að fá Sveinbjörgu og Guðfinnu í Reykjavík og Frosta a þingið, þá liggur leiðin lóðbeint niður. Eins og þær Vigdís og Lilja Alfreðsdóttir hefðu getað sópað sviðið hér í Reykjavík með Frosta og stöllunum úr bæjarstjórn með flugvöllinn í núverandi stöðu, þá er bara uppgjöf og flótti úr flokki Framsóknar. Hvað veldur? Sigurður Ingi?

Hvað fáum við eiginlega í staðinn á þingið? Þór Saari á rúllukragapeysunni fyrir Frosta? Einhverja óþekkta nafnleysingja fyrir Vigdísi, Einar Kristinn, Ögmund, Kristján, Rönku. Það verður fróðlegt að fylgjast með þessum nýju amatörum á þinginu. Kannski er gott að þar verði þó einn vanur maður til 30 ára nema að hann verði svo upptekinn í Landsdómi.

Píratarnir munu færa okkur áður óþekktar víddir í pólitík í haust.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veit ekki með að í haust komi hópur af "amatörum", veit ekki að á Alþingi hafi verið kosinn nýliði með mikla þingreynslu en hver veit.

Varðandi Steingrím, ekki ætlar þú þeim þingmönnum sem nú sitja á þingi og gagnrýndu "landsdómsmálið" að þeir vilji Steingrími jafn illan leik ? Það væri þá ekki í anda þeirra orða að Landsdómur eigi ekki að nota sem pólitísk réttarhöld. 

Það er aldrei gott að hóta fólki, líkt og formaður Fjárlaganefndar vill gera nú um stundir. Hún hefur jú leikið þetta áður en sem fyrr send heim með skottið það sem það er best geymt og rýmar við braut. Minni bara á "leyniboxmálið" sem hún vann að með ákveðinni útvarpsstöð hér í borg og var svo rasskellt illilega af Helga Hrafni Pírata þegar hann upplýsti um hvað málið snerist. En títtnefnd Vigdís verður að velja sér sína útgöngu. 

Sigfús (IP-tala skráð) 11.7.2016 kl. 21:10

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er ekki aðalmálið að þingmenn viðurkenni Alþingi Íslendinga sem helgidóm? Hvernig komumst við af áður fyrri í deilum sem snerust nær eingöngu um stórframkvæmdir innanlands,eins og "hægri umferð"og Borgarfjarðarbrúna. --Þótt gott sé til þess að vita að menn hafi nokkra reynslu í pólitík,er að mínum dómi miklu mikilvægara að kjósendur hafi mikla reynslu af kosningaloforðum virkra flokka. Flestir óska sér réttsýnna Íslandsvina á Alþingi,sem hafa visku og kjark til að standa gegn gráðugum auðhringum sem girnast landið í meira en einum tilgangi.- Annars er komin styggð að stóðinu og við ætlum að meina því að taka á rás hingað. 

Helga Kristjánsdóttir, 12.7.2016 kl. 06:38

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Óháð allri tímabundinni PR-mennsku og auglýsingaskrumi munu Píratar ugglaust duga skást að sínu eigi "undoing" rétt eins og "Besti flokkurinn" og Jón Garr.

En það er einn hvimleiðasti gallinn á seinlegri virkni pólitískra lærdóma meðal þjóðarinnar, að það skuli þurfa heilu kjörtímabilin, jafnvel mörg, til að menn átti sig á, hvar einnota ruslið er að finna.

Jón Valur Jensson, 12.7.2016 kl. 18:28

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

... sínu eigin "undoing" ...

Jón Valur Jensson, 12.7.2016 kl. 18:29

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Halldór, vinstri menn hafa aldrei verið dæmdir fyrir neitt alvarlegra en að haf kúkað á slóðina.  En þeir hafa sakkað alla um að vera ekki kommúnistar  og þar með dæmdu þeir þá réttdræpa  eins og sannaðist fyrir stríð er Moskvu þjálfaðir hryðjuverka menn hugðust drepa lögreglumenn sér til gagns og gamans sem og sönnun til Moskvu að þeir væru dugandi.

 Auðvita leika íþrótta menn samkvæmt reglum, en kommúnistinn Steingrímur er ekki íþrótta maður, frekar en rotta er fótbolta hetja.  

Tek undir orð Helgu um að hafa þurfi stjórn á stóðinu og af því að ég er Húnvetningur og þar með af snjöllust sauða og hrossaþjófum Íslandsögunnar þá er það svo að nú er engin þörf á að breyta mörkum, eða skera mörk af sviða hausum  því það eru engin takmörk og allt leyfilegt sem skaðar ekki efnaða.

Það sannaðist  þá fjórmenningar af heldri gerð áttu að vistast á Kvíabryggju en þurftu  náttúrulega ekki að gista fangaklefa og þar sem ráðsmaðurinn var af bæ þá fengu þeir þar vist, en fengu þó ekki rauðvín frá ríkinu en gátu kleyft að vild á eigin kostnað, svo sem aðrir ekki fangar.

Svo kom hér yfyr Grundarfjörð þyrla og hringsólaði yfir Kvíabryggju og Kirkjufelli og lenti þar á hæsta toppi og sleppti út manni og hringsólaði svo þyrlan að líkkindum til myndatöku en lenti síðan aftur og tók upp leikarann.  Daginn eftir þá laskaðist Óli, eða ekki Óli í Þyrluslysi?  

Hrólfur Þ Hraundal, 12.7.2016 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418315

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband