Leita í fréttum mbl.is

Bravó Elín Hirst

sem skrifar svo í Mogga í dag:Bloggari stjórnar svigum og feitletrunum)

"Ég styð það að málefni Reykjavíkurflugvallar verði tekin upp á sumarþingi Alþingis sem hefst nú í ágúst.

Samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar er svokölluð neyðarbraut eða braut 06/24 á förum og eini möguleikinn til að koma í veg fyrir það slys er að Alþingi skerist í leikinn.(Eftir ástæðulaust hryðjuverk Hönnu Birnu Krístjánsdóttur ráðherra Sjálfstæðisflokksins og einhvers Jón Gnarrs...)

Leggja verður fram frumvarp til laga til að bjarga flugvellinum og ég hvet Ólöfu Nordal innanríkisráðherra til að vinna hratt og örugglega að slíku þannig að hægt verði að mæla fyrir frumvarpi. Ef vel tekst til má afgreiða slíkt frumvarp á komandi sumarþingi.

Annar möguleiki er sá að nýtt þingmannafrumvarp verði lagt fram um málið sem breið pólitísk samstaða gæti skapast um. Ég kalla eftir samvinnu við hin dugmiklu samtök Hjartað í Vatnsmýrinni í þeim efnum. Nauðsynlegt að bregðast við fljótt og örugglega Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni nýtur stuðnings mikils meirihluta landsmanna. Það er mjög eðlilegt því helstu rökin með flugvellinum eru öryggi og almannahagsmunir. Reykjavíkurflugvöllur er nefnilega mikilvægasti hlekkurinn í keðjunni til þess að koma Íslendingum sem búsettir eru á landsbyggðinni undir læknishendur þegar mikið liggur við. Hver vill skerða þetta öryggi?

Ljóst er eftir dóm Hæstaréttar að gjörningar þeir sem stjórnvöld illu heilli hafa gert í þessu máli eru bindandi og eftir þeim verður að fara. En það útilokar alls ekki lagasetningu Alþingis í þessu máli, eins og Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, bendir á í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið laugardaginn 23. júlí.

Ég tek undir með Guðna og þakka honum kærlega fyrir þessa þörfu brýningu til Alþingis Íslendinga um að láta ekki „sparka þjóðarflugvellinum burt úr höfuðborginni“, eins og hann orðar það með svo beinskeyttum hætti.

Verkefni okkar þingmanna er að finna grundvöll nýs frumvarps sem tryggir almannahagsmuni og er samhljóða vilja mikils meirihluta landsmanna."

Hér kveður við annan tón  en hinn venjulega heybrókartón þingmanna Sjálfstæðisflokksins þegar minnst er á Reykjavíkurflugvöll. Hér kemur kona ú þingliðinu og henni er greinilega alvara með að gera eitthvað. 

Ekki er að efa það að hún fær alla aðstoð sem Vallarvinir geta í té látið og þá þekkja menn formanninn Friðrik Pálsson illa ef þeir halda að hann sé búinn að segja sitt síðasta orð um þetta alvörumál.

Nú skulum við grasrótin fylgjast vel með því hvað þingmenn Sjálfstæðisflokksins gera í framhaldi af þessari herhvöt valkyrjunnar Elínar Hirst. Ekki sleppa þeim með neitt B-S heldur hrein og klár svör og stuðning. Sá þeirra sem ekki vill skrifa undir stuðning við Elínu og flugvöllinn samkvæmt ályktunum Landsfundar skal hitta fjandann fyrir í næsta prófkjöri.

Ég er ekki neitt hræddur um að annarra flokka þingmenn muni ekki fylgja sannfæringu sinni í þessu máli þegar Elín leitar eftir því.

Bravó fyrir Elínu Hirst!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 3419866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband