Leita í fréttum mbl.is

Dagur allsherjar

birtist mér á skjánum í Biskupstungunum þegar ég ætlaði að skemmta mér við sjónvarpið frá Armarhóli.

Í fyrra skemmti ég mér vel við söng þeirra Egils og Sylvíar Nætur. Þá tók ég eftir því að krakkarnir á Arnarhóli tóku duglega undir  og mikil stemning ríkti meðal þeirra.

Núna fylltist sviðið af gömlum gráhærðum köllum sem hefðu allir getað verið langafar krakkana á hólnum. Þeir reyndu að kveða gamlar rímur sem jafnvel ég kann og get raulað með. Bubbi var hörmulegur, gamallegur og órakaður með sólgleraugu, á slitnum leðurjakka og með græna sundhettu. Vælið í honum átti greinilega ekkert erindi til krakkanna sem tóku ekki undir fyrir tvo aura. Og þó er Bubbi í hópi þeirra tónlistarmanna sem ég dáist að fyrir margsannaða hæfileika.

Og svo dansaði Helgi Björnsson, eldgamall poppari liðins tíma um sviðið í álíka tötramúnderingu og Bubbi  og kyrjaði einhverjar stemmur sem enginn á Hólnum tók undir.

Og svo var eins og áður sagði Dagur Bé sjálfur kominn á sviðið til að syngja. Maður vissi sosum um sjálfsánægjuna sem fylgir mörgu fólki. En þarna féll hann algerlega inn í aldursmunstur tónlistarfólksins og hafði ekki sýnilega áhrif á áheyrendur frekar en hinir söng-og dansarar.

Ung stúlka á byrjun táningaaldurs var í hópnum á Hólnum. Ég heyrði haft eftir henni í morgun að henni og félögum hennar hefði fundist þetta allt með ömurlegasta móti. Hvaða tengsl hafa táningar við BG og Ingibjörgu þá ég og Óli bróðir sem er 10 árum yngri en ég höfum haft gaman af upprifjun gamalla kynna.

Hvernig dettur mönnum í hug að gamlir gráhærðir bítlar geti skemmt krökkunum sem standa við girðinguna með dósina sína. Jú, Degi Bé. getur dottið svona í hug þar sem hann stjórnar.

Hann er jú Dagur allsherjar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Loksins erum við sammála Halldór. Konan og dóttir fóru niður á Arnarhól að fylgjast með dýrðinni en ég ávað að láta sjónvarpið duga. Og til að gera langa sögu stutta voru mæðgurnar komnar heim fyrir kl:22.00 og þá var ég löngu búinn að skúfa niður í sjónvarpinu.

Þvílík menning.

Steindór Sigurðsson, 21.8.2016 kl. 14:01

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Steindór, ég skil ykkur fjölskylduna. Maður verður að þekkja áhorfendurna og hlustendurna. Það er ekki sama útaf hvaða Guðsplalli er lagt við öll tækifæri.

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 3420925

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband