Leita í fréttum mbl.is

Af tvennu illu

er betra að kaupa hælisleitendur af sér en að taka við þeim á grundvelli rangra og óstaðreynanlegra upplýsinga sem þeir gefa við komuna til landsins.Enoch Powell var með svipaðar hugmyndir á sinni tíð sem ekki var á hlustað í Bretlandi. Nú er orðið seint að iðrast.

Björn Bjarnason skrifar þunga grein um vandamálin í Nígeríu í Mbl. í dag. En það er núna að leiða fljóðbylgjur fólks þaðan yfir Evrópu.

Ætlum við Vesturlandabúar að láta drekkja velferðarþjóðfélögum okkar eins og við þekkjum þau með því að gera ekki nauðsynlegar ráðstafanir til varnar? Viljum við minni velferð okkur sjálfum til handa? Það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Fyrir okkar fámennu þjóð skiptir öllu máli að hafa stjórn á aðstreymi óæskilegra innflytjenda sem munu aðeins verða til vandræða sjálfum sér og okkar samfélagi.

Af tvennu illu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég tek hjartanlega undir þitt mál, Halldór, sem oftar.

En mér sýnist þú illa staddur í flokki nú um stundir!

Væri ekki ráð að færa sig yfir í Íslensku þjóðfylkinguna eins og hann Gústaf okkar Níelsson?

Jón Valur Jensson, 16.9.2016 kl. 14:15

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heill og sæll Halldór.

Það er gott og fallegt að hugsa hlýlega til hælisleitenda sem margir hverjir eru sannanlega flóttamenn í fyllsta skilningi þess orðs, en sumir virðast vera nota sér eymd annarra til að smeygja sér inn á velferð vesturlanda í skjóli þeirra sem í raun eru í neyð.

Mér sýnist ef fram fer sem horfir og vinstri öflin No Border berjast fyrir, það er að galopna landamærin fyrir öllum sem koma vilja, að þá endi það með ósköpum ekki bara fyrir okkur vesturlandabúa heldur einnig fyrir hælisleitendurnar.

Mikill kostnaður mun falla á skattgreiðendur á sama tíma og kvartað er undan illri meðferð á þeim sem fyrir eru, þá er ég að tala um innborna ellilífeyrisþega, öryrkja, einstæðar mæður o.fl. sem hafa lent milli þylja í kerfinu, ef svo má að orði komast.

Þegar milljarðar munu fara í að taka á móti ótilteknum fjölda fólks þ.e. húsnæði, uppihald, skóla fyrir börnin, fræðsla fyrir hina fullorðnu, túlkun o.fl., o.fl. Ég held að Góða fólkið hafi ekki reiknað dæmið til enda.

Ég held að raunhæfara væri fyrir vestræn stjórnvöld að setja fé í að byggja upp svæði á heimaslóðum þessa fólks, hjálpa því til sjálfsbjargar og verja það fyrir ógnum hryðjuverkamanna.

Ef við ætlum að taka á móti fjölda hælisleitenda mun efnahags- og félagskerfi okkar hrynja, það mun ekki geta staðið undir óendanlegum útgjöldum sem það mun hafa í för með sér.

Það versta er að stjórnmálamenn í meðvirkni sinni og af ótta við pólitískan rétttrúnað, þora ekki annað en að fylgja já-liðinu af ótta við að verða úthrópaður sem öfgamaður/kona.

Við þurfum fólk á Alþingi og í ríkisstjórn sem þorir að hafa skoðanir sem jafnvel falla ekki að vinsældum vinstri hjarðarinnar, en eru raunhæfar og sanngjarnar og þjóð okkar til framdráttar.

Tómas Ibsen Halldórsson, 16.9.2016 kl. 16:15

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Svo vill til að IOM er viðurkennd alþjóðleg stofnun sem aðstoðar flækingsfólk til þess að snúa aftur til síns heima.

Hefur ekkert að gera með aðstoð við alvöru stríðsflóttafólk eða ofsótta en í samvinnu við Útlendingastofnun myndi eflaust leysa vanda Eimskipa við Sundahöfn.

Kolbrún Hilmars, 16.9.2016 kl. 16:58

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er erfitt að flytja gamla ketti, þeir leita á gamla saðinn fyrr en varir. En samhljóm með ykkur í ýmsum málum finn ég mikin og hef velt þessu fyrir mér.Það er hægt að ganga fram af mér og það er eins og að margt í mínum flokk stefni í þá átt því miður.

Halldór Jónsson, 17.9.2016 kl. 06:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 77
  • Frá upphafi: 3418309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband