19.9.2016 | 21:53
Frábær grein Jóns Magnússonar
um hvert fjölmenningarstefna Merkel er að leiða Þýskaland sem hann birtir á bloggi sínu í dag.
Greinin er svohljóðandi:
"Angela Merkel og flokkur hennar tapa og tapa fylgi Þýskra kjósenda. Andstöðuflokkurinn við innflytjendastefnu Kristilegra Demókrata(CDU) og Sósíalista (SPD), AfD(Alternative für Deutschland) vinnur stöðugt á og tekur fylgi frá báðum stóru flokkunum þó aðallega CDU. Í gær vann flokkurinn stórsigur í kosningum í Berlín.
Angela Merkel segir að Fjölmenningarsamfélagið sé ekki að virka og innflytjendur þurfi að gera meira til að aðlagast t.d. læra þýsku og verða virkir þáttakendur í þjóðlífinu.
Horst Seehofer formaður CSU systurflokks CDU segir að fjölmenningin sé dauð og Friedrich Ebert stofnunin áætlar að yfir 16 milljónir innflytjenda í Þýskalandi séu þangað komin til að njóta þess að vera á velferðarkerfinu.
Árið 2010 sagði Thilo Zarasin sem var stjórnandi í Seðlabanka Þýskalands að engin þjóðfélagshópur annar en Múslimar lægju jafn þungt á velferðarkerfinu eða ástunduðu glæpi í jafn ríkum mæli. Hann þurfti að segja af sér en engin hefur hrakið ummælin.
Það var athyglisvert að lesa þessi viðhorf þ.19.9.2016. En þau eru raunar frá því 17.10.2010 eða fyrir tæpum 6 árum síðan. Það sem síðan hefur gerst er að Merkel þessi hefur hleypt um milljón innflytjendum til viðbótar til Þýskalands og 16 milljónirnar sem Ebert stofunin sagði að héngi árið 2010 á velferðarkerfinu eru sjálfsagt í dag orðnar 160 milljónir.
Hvað segir svo Merkel 19.10. 2016 eftir að flokkur hennar beið afhroð í Berlín. Hún segir að það hafi verið alvarleg mistök á árunum eftir stríð sú langvarandi tregða að samþykkja umbreytingu Þýskalands í fjölmenningarsasmfélag. Einmitt þetta sama fjölmenningarsamfélag og hún lýsti yfir fyrir 6 árum að væri ekki að virka. Var það e.t.v. vegna mistaka frá árinu 1955 eða 1965?
Þá hefur fólk það. Þeir sem gerðu mistökin voru Konrad Adenauer og Willy Brandt en ekki Angela Merkel að eigin dómi. Lengra verður vart seilst til fanga. Jafnvel Steingrímur J. Sigfússon hefði aldrei látið sér detta það í hug að kenna Ólafi Thors og Hermanni Jónassyni um fjármálakreppuna árið 2008 eins og Angela Merkel seilist nú til fanga varðandi vonlausa vörn fyrir innflytjendamistökum sínum.
En staða Merkel getur og á bara eftir að versna eins skoðanasystra hennar Unni Brá Konráðsdóttur, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Semu Erlu Serdar sem boða opin landamæri á kostnað alþýðu þessa lands."
Það er sérlega athyglisvert að formaður Sjálfstæðisflokkssins skuli hafa notað Áslaugu Örnu sem hrísvönd á þingflokk Sjálfstæðismanna til niðurlægingar þeirra og fyrirskipunar til allra flokksmanna að falla fram og tilbiðja hana. Hún væri þvílíkt að sínu skapi.
Við sem sátum síðasta Landsfund fengum þar alveg nóg af henni.
Það er greinilega ekki á dagskrá Sjálfstæðisflokksins að ræða innflytjendamálin á vitrænan hátt hvað sem tautar.
Við Jón Magnússson megum því tala við sjálfa okkur náðarsamlegast í næstu kosningum. Er Íslenska Þjóðfylkingin smasvörun við AfD(Alternative für Deutschland)? En sagt er að svo megi brýna deig járn að bíti.
En takk fyrir Jón fyrir þetta yfirlit.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sexflokkurinn á Alþingi stendur allur að útlendingalögum þeim sem boða opnu landamærin sem Jón Magnússon endaði á því að gagnrýna. Samstaða hefur naumast verið meiri um önnur mál á Alþingi.
Þeim mun athyglisverðari er stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar, sem ein flokka hafnar þessu kerfi, þessari fífldirfsku að ætla sér að endurtaka reginskyssur Þjóðverja og Skandinava á síðustu áratugum. Þær skyssur eiga sannarlega eftir að kosta þær þjóðir mikið, rétt eins og mistök Sjálfstæðisflokksins o.fl. flokka í málinu í sumar eiga eftir að kosta þá sívaxandi fjölda atkvæða.
En það verður ekki Jóni hrl. Magnússyni að kenna, né þér, Halldór!
Jón Valur Jensson, 20.9.2016 kl. 01:49
Ég skil ekki eftirfarandi málsgrein í bloggi Jóns:
"Það var athyglisvert að lesa þessi viðhorf þ.19.9.2016. En þau eru raunar frá því 17.10.2010 eða fyrir tæpum 6 árum síðan. Það sem síðan hefur gerst er að Merkel þessi hefur hleypt um milljón innflytjendum til viðbótar til Þýskalands og 16 milljónirnar sem Ebert stofunin sagði að héngi árið 2010 á velferðarkerfinu eru sjálfsagt í dag orðnar 160 milljónir."
Hvernig geta 16 milljónir + 1 milljón orðið að 160 milljónum?
Hilmar (IP-tala skráð) 20.9.2016 kl. 06:15
En talandi um íslensku þjóðfylkinguna þá gæti ég alveg trúað því að hún ætti eftir að ná a.m.k. 5% markinu í næstu kosningum og jafnvel þar yfir, nóg virðist a.m.k. af rasistum og nasistum í þjóðfélaginu sem er nógu illa gefið til að kjósa einsmálsflokk í þessum efnum. Gæti reyndar vel trúað að Jón Magnússon hyggist bjóða sig fram fyrir flokkinn, enda á réttum stað þar.
Hilmar (IP-tala skráð) 20.9.2016 kl. 06:28
Hilmar, ég hnaut um þetta líka og næ þessu akki ennþá, hugsanlega misritun.
Ég skil ekki hvernig þú getur skilgreint alla þjóðfylkingarmenn sem rasista og nasista.Þarna er verið að tala um mannúðarsjónarmið gagnvart innflytjendum ekki hvað síst
Halldór Jónsson, 20.9.2016 kl. 08:37
Þetta er bara dæmigerður málflutningur hjá Hilmari og "Góða Fólkinu" yfirleitt, þeir sem EKKI eru sammála málflutningi þeirra eru afgreiddir sem rasistar, fasistar og nasistar.
Jóhann Elíasson, 20.9.2016 kl. 11:13
Halldór, ég var ekki að skilgreina "alla" þjóðfylkingarmenn þannig, en sé núna að auðvitað má skilja orð mín svo - og biðst velvirðingar á því. Það er örugglega margt fínt fólk í þjóðfylkingunni eins og öðrum flokkum, en það sem ég átti við er að þjóðfylkingin er líklegust flokka til að draga að sér fylgi rasistanna og nasistanna í þjóðfélaginu umfram aðra flokka. Þess vegna kæmi mér alls ekkert á óvart ef þjóðfylkingin fengi yfir 5% fylgi, hafandi t.d. í huga gríðaraukið fylgi Framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2014 þegar hann flaug upp í fylgi á einni viku eftir moskuútspilið auk fylgisaukningar við slíka flokka í öðrum löndum undanfarið. Ég yrði reyndar ekkert hissa að sjá þjóðfylkinguna með 8%-10% fylgi þegar talningu lýkur.
Hilmar (IP-tala skráð) 20.9.2016 kl. 11:13
Jóhann Elíasson: Frá málefnalegu sjónarhorni þá er enginn munur á þér og kartöflupoka með gleraugu.
Hilmar (IP-tala skráð) 20.9.2016 kl. 11:18
Ég tel mig hvorki rasista né fasista en sé ekkert athugavert við að hafa meiri hug til velferðar landaminna en erlendra manna.
Eygló Harðardóttir er hinsvegar einkvers konar falsisti sem gefur sig út fyrir að gæta hagsmuna íslendinga í húsnæðisvandræðum, en hlær svo í hjarta sínu þá hún finnur útlendinga sem kunna ekki að eiga heima hjá sér og tekur þá fram fyrir landa mína sem þá þurfa að flytja til útlanda.
Núverandi stjórn völd virðast vera hjartanlega sammála þessum falsista með allt niðurumsig, frú Eygló Harðardóttur, því ekki heyrist æmt frá því setti þar um.
Hrólfur Þ Hraundal, 20.9.2016 kl. 11:37
Talandi um fasista þá sé ég að Helgi Helgason formaður íþ skilgreinir íslensku þjóðfylkinguna sem fasista í innleggi á fésbókarsíðu flokksins í gær.
Hann segir annars vegar: "Fasismi gengur út á að banna öðru fólki að hafa skoðanir, en sem samrýmast skoðunum þeirra."
Og segir í sama innleggi um stefnu íþ: "Það er stefna okkar að útiloka þá sem eiga ekki samleið með okkur í skoðunum."
Þetta er mjög skýrt hjá formanninum og tekur af allan vafa um að íþ er að höfða til fasista að þessu leytinu til, auk nasista og rasista.
Hilmar (IP-tala skráð) 20.9.2016 kl. 12:16
Ég skildi Helga nú þannig að hann vildi ekki að aðrir væru að skrifa um flokksmálin á ákveðnum stað en flokksmenn sem mér finnst í góðu lagi. ÞMenn mega eiga eitthvað p´rivat.
Halldór Jónsson, 20.9.2016 kl. 12:49
He he hehe...kartöflupoki með gleraugu...ekki datt mér þetta í hug.
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 20.9.2016 kl. 15:08
Hinn háttvísi og hófsami Helgi Helgason stjórnmálafræðingur, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar, er algerlega laus við að vera rasisti, hvað þá fasisti!
En huldumaðurinn Hilmar er alls ekki laus við það að fara á stundum langt yfir strikið í rangtúlkandi innleggjum sínum.
Jón Valur Jensson, 21.9.2016 kl. 02:30
Helgi er líka uppalinn hjá mér í Sjálfstæðisflokknm í Kópavogi og ég þekki hann og foreldra hans bara að öllu góðu.
Halldór Jónsson, 21.9.2016 kl. 07:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.