Leita í fréttum mbl.is

Tækniframfarirnar

hafa gert ótrúlega hluti fyrir okkar fólk sem við tökum bara ekki eftir.

Hefur nokkur spáð í það hversu miklu  auðveldara það er að eignast nýjan bíl núna en það var upp úr síðustu aldamótum?

Vinur minn dr. Kristján Ingvarsson ræðismaður Íslands í Orlando og uppfinningamaður var að spjalla við mig í gær. Í spjallinu sagði hann mér að hann hefði einu sinni á ævinni keypt sér nýjan bíl. Þau Guðrún keyptu Chrysler Voyager fjölskyldubíl sem Guðrún keyrir á ennþá fyrir 13 árum síðan. 

Hann kostaði 34.000 dollara sagði Kristján. Við vorum lengi að borga hann en það kláraðist. Hvað kostar svona bíll í dag 13 árum seinna, spurði Kristján? Hann kostar nákvæmlega 34.000 dollara segir hann svo. Alveg eins bíll. Og hvað hefur dollarinn rýrnað mikið á 13 árum spyr hann svo? 

Þetta eru bara tækniframfarirnar í bandarískum bílaiðnaði.Róbotar og aukin framleiðni þrátt fyrir miklar kjarabætur verkamanna. Detroit bara tók sig á segir Kristján.

Hvað rýrnaði ekki krónan okkar í hruninu? Núna styrkist hún á ný meðan kaupmátturinn hefur þotið upp? Hvað hefur ekki gerst í sjávarútveginum okkar? Mann hreinlega  sundlar að sjá allan vélbúnaðinn og sjálfvirknina á myndum úr þessum nýju húsum sem hefur komið þar inn.

Það er tæknin og sjálfvirknin sem er afleiðing af hugvitinu, sem stendur undir öllum þessum lífskjarabótunum á Vesturlöndum. Allir hafa það betra en þeir höfðu það þó jarmið um annað sé sífellt og sárt.

Heilbrigðiskerfið hefur stórbatnað á 13 árum hvað sem sagt er annað. Það er helst að menntakerfið hafi dregist aftur úr með ásókn tölvuleikja og allskyns vitleysu sem því fylgir að fólk lærir ekki lengur margföldunartöfluna eða hugarreikning sem fylgdi reiknistokkunum. Hvað þá biflíusögur eða kvæði utanað.

Stærðablint fólk reiknar á símann sinn og fær auðveldlega snarvitlausar útkomur þó allir aukastafirnir stemmi. En það getur raðað inn selfies á fésbókina og gert allan fjandann með forritum. Veit allt með hjálp Google. Reiknar það flóknasta með Wolfram Alpha. Og símarnir og netið eru tækniundur sem hafa gert heiminn aðgengilegri fyrir alla.

Ja hérna. Þegar maður hugsar um það. Hvað heimurinn hefur ekki breyst við tækniframfarirnar?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband