Leita í fréttum mbl.is

Olíudraumar Íslendinga

geta verið að fjarlægjast.

Wolfchamp svæðið í vestur Texas er líklega stærsti olíufundur til þessa.Bara liggur þarna og bíður eftir að vera tappað af því. Hagkvæmt að vinna jafnvel þó að olían lækki frá því sem nú er.

Þessi Permíska myndun er talin innihalda 75 billjónir olíufata sem nálgast Ghavarsvæðið Saudi-Arabíska og gríðarlegt gas.

Eru mikil líkindi til að að olíuboranir út í ballarhafi á Drekasvæðinu geti keppt við landvinnslu á þessum stað? Það gæti verið mikil spurning að spyrja.

Lesið meira hér:http://www.star-telegram.com/news/business/article114931993.html#storylink=cpy

Alltaf þegar menn fara að tala um að allt sé að verða uppurið finnst mikið meira af olíu.

Það er varlegra að bíða og sjá hver þróunin verður áður en við látum okkur dreyma mikla olíudrauma fyrir Ísland.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það verður þrefalt dýrara að vinna olíu á Drekasvæðinu en er núna í Arabalöndunum. Bara af þeim sökum er fráleitt að við æðum út í það að verða olíuþjóð og svindla með því í raun varðandi Parísarsamkomulagið. 

Ómar Ragnarsson, 16.11.2016 kl. 20:59

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þá sérðu við hvað er að fást? Á að niðurgreiða olíu af Drekasvæðinu eins og landbúnaðarafurðir? Af því hún er þjóðleg?

Halldór Jónsson, 16.11.2016 kl. 21:55

3 identicon

Er Þóríum lausn á orkuþörf heimsins? Hér er eitt af mörgum myndskeiðum sem fjalla um Þóríum sem framtíðar orkugjafa:Thorium - The future of Energy 

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 16.11.2016 kl. 22:53

4 identicon

Er Þóríum lausn á orkuþörf heimsins? Hér er eitt af mörgum myndskeiðum sem fjalla um Þóríum sem framtíðar orkugjafa:Thorium - The future of Energy 

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 16.11.2016 kl. 22:55

5 identicon

Við hvorki borum eftir né vinnum olíuna. Kostum engu til og þurfum ekkert að pæla í olíuverðinu eða kostnaðinum við uppdælinguna. Vilji eitthvað olíufyrirtæki borga okkur fyrir að leita að olíu og vinna ef olía finnst þá kostar það okkur ekkert.

Svo eru tölurnar um Wolfcamp rangar hjá þér þó þetta sé stærsti fundur í Bandaríkjunum. Þú mátt deila með fjórum ef opinberar tölur ríkisstofnana Bandaríkjanna frá því í gær eru marktækari en slúðursíðan sem þú sækir upplýsingar til.

Vagn (IP-tala skráð) 17.11.2016 kl. 00:29

6 identicon

Shale production er svo dýr að hún borgar sig ekki, og Bandaríkin verða að leggja niður framleiðslu niður á 2014 stig.  Saudi Arabia, er búinn að teygja sig að fullu og verður að minnka framleiðslu.

Þessir "olíu" fréttir, eru blekkingar ... fjármagnsstríð gegn Rússum.  Norðmenn eru að fara á hausinn, bretar eru að fara á hausinn ... Bandaríkjamenn rændu Rússa á Möltu, og "lifa" á ránsfengnum enn ... en hversu lengi það varir, er spurning. stærsti olíu fundurinn er í Suður Kínahafi ... þess vegna er "baráttan" þar svona hörð.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 17.11.2016 kl. 05:52

7 identicon

Hvað varðar olíulyndir við Jan Mayen ... þá verða Íslendingar að stappa í sig stálið, ef þeir ætla að taka eitthvað af Norðmönnum.  En það verður ekki mikið eftir handa Íslendingum, nema verðið á olíu fari upp aftur ... en það er einungis tímabundið, og að öllum líkindum aðeins fyrir vesturlönd.  Í Kína kostar líterinn skít og kanel, og fer lækkandi þegar þeir fara að dæla upp úr Suður Kína hafi ...

Fyndið, að hafið heitir "Suður Kínahaf" og svo eru menn að atast út í að það tilheyri ekki Kína.  Kaninn gengur að baki undirritaðs samnings frá Síðari heimstyrjöld ... vegna olíunnar.

Leggið niður þessa drauma ... nema þið viljið verða næsta Sýrland eða enn verr þegar fram í sækir.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 17.11.2016 kl. 05:56

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Eg hef trú á Þóríum orkuverum Hörður. En hvenær heldur þú að það megi ræða það upphátt hér á landi vegna vinstri vitringanna sem umræðunni stjórna?

 Vagn spekingur, hvar eru þínar betri tölur a finna úr því að mínar eru slúður? Þær komu til mín frá manni sem ég hygg að standi þér ekki mikið að baki.

Og Bjarne Örn veit allt um shale oil production sem sé svo dýr að enginn stundi hana.Hann vill greinilega að Kínverjar fái sínu framgengt á suðurhafinu sínu. Líklega kaus hann ekki Trump? 

Halldór Jónsson, 17.11.2016 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3418223

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband