Leita í fréttum mbl.is

Þeir láta ekki laust

stríðsæsingamennirnir í kring um Hillary Clinton.

 Nú ætlar hún að kæra kosninguna.

Kerfið er búið að kjósa og það skiptir engu máli þó að hún hafi fengi fleiri atkvæði í heild. Kjörmannakerfið er til þess að ekki bara fjögur ríki ráði forsetakosningum.

electoral system

 

Heiminum var létt þegar Hillary og Obama stjórni töpuðu. Það virðist geta orðið breyting í átt til spennuslökunar með Trump.

Þetta sprikl í frúnni er ekki til fagnaðar hjá neinum sem hugsar um friðarmál.

Mál er að linni. 

Þeir verða að sætta sig við orðinn hlut sem verst láta hérlendis og þar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Reyndar er það Jill Stein sem heimtar endurskoðun.  Sem gerir málið enn dularfyllra því hún hefur ekkert að vinna og engu að tapa.

Kolbrún Hilmars, 27.11.2016 kl. 18:49

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Sjálfur hélt Trump því fram að svindlað yrði í þessum kosningum svo þetta er bara eðlilegt. Það er heldur ekkert einsdæmi að endurtalið sé í forsetakosningum.

Jósef Smári Ásmundsson, 27.11.2016 kl. 21:17

3 Smámynd: Halldór Jónsson


Here are the election results for Wisconsin, nothing will change.  Just a waste of time and money.  Trump is more than 27,000 votes ahead, in Michican over 10,000 and in Pennsylvania over 70,000.  The word is this woman is just trying to gather funds for her future political gain.  And Hillary has joined in despite of her former conceding to Trump.  Just another political ploy for the left.

http://tribunist.com/news/obama-white-house-just-crushed-hillary-campaigns-recount-hopes-with-new-announcement/?utm_source=ConAm

Halldór Jónsson, 27.11.2016 kl. 21:39

4 identicon

Það sorglega við þetta allt saman er að við Bandaríkjamenn búum ekki við lýðræði sjálfir, þótt við heimtum að aðrar þjóðir taki upp það kerfi. 

Ástæðan fyrir þessu er sú að hin einstöku ríki semja kosningareglurnar. Kjördæmalínur eru dregnar á tíu ára fresti. Stjórnarskráin fyrirskipar manntal í lok hvers áratugs. Þingmenn neðri deildar eru 435 og breytist sú tala ekki,þótt íbúum fjölgi. Þá er ýmsum brögðum beitt. Einn að höfundum frelsisyfirlýsingarinnar var maður að nafni Gerry (borið fram með hörðu g-i)

Hann fann upp það, sem kallað er Gerrymandering, að draga kjördæmalnur einum flokki í hag. Þetta er notað óspart í dag.

Væri þetta leyft á Íslandi, gæti kjördæmi á Reykjavík náð austur í Vík í Mýrdal.

Afleiðingin er sú að í fylki með svotil jöfnum atkvæðafjölda flokkanna tveggja getur ráðandi flokkurinn fengið allt að þrefallt  fleiri þingmenn en hinn.

Einnnig tíðkast að meina þeim, sem grunaðir eru fylgi við annan flokkinn, aðgang að kosningum. Supurríkin meinuðu svertingjum að kjósa með því að heimta af þeim þekkingu,sem hvítir þurftu ekki að hafa.

Þetta var lagfært að vissu marki með lögum, sem Lyndon Johnson stóð fyrir. Hæstiréttur, undir handleiðslu Antonin Scalia dró úr þessum lögum og innan tveggja daga frá þeim dómi var Texas búið að setja lög til höfuðs grunuðum demókrötum.(Þegar Scalia dó, á dularfullan hátt, töluðu hægri menn um þennan ótímabæra dauðdaga.Vinstri menn voru sammála því,en sögðu hann hafa dáið alltof seint).

Koch bræður (Borið fram Kók), ríkustu menn hér í landi,sáu sér leik á borði og fjármögnuðu Teboðsmenn og tókst þeim að ná völdum í mörgum ríkjum þar sem demókratar voru fjölmenari.

Ohio er gott dæmi.Ríkið hefur svotil nákvæmlega jafnt af repúblikönum og demokrötum.Aratugsárið 2010 komust republikanar til valda þar og drógu nýjar kjördæmalínur. Hefur ríkið 16 þingmenn í neðri deild í Washington, 12 repúblikana og 4 demókrata.

Ohioríki hefur þar að auki oft haft einkennileg kosningaúrslit, tl dæmis 2000 og 2004 þegar frávik lokatalna frá útgönguspám (exit polls) voru langt utan við hugsanlega skekkju.

Það má vel segja að Bandaríkin séu vagga lýðræðis en barnið í vöggunni var og er heldur pasturslítið en þetta getur nú allt batnað ef vilji er fyrir hendi.

Geir Magnusson (IP-tala skráð) 28.11.2016 kl. 10:03

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Og það sem verst er að: "Það hefur enga þýðingu að telja rafræn atkvæði...að nýju...þar sem engir seðlar séu til staðar vanti grundvöll fyrir endurtalningunni" - eða svo segir Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur í Mbl grein í dag.

Kolbrún Hilmars, 28.11.2016 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 3420554

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband