15.2.2017 | 20:38
Röng ályktun
hjá Hjálmari Sveinssyni bókmenntafræðingi og skipulagsyfirvaldi Reykjavíkurborgar sem fram kemur í eftirfarandi frétt í Mogga:
Hvernig sköpum við heillandi borg fyrir gangandi vegfarendur? Þeirri spurningu var varpað upp á fundi á Kjarvalsstöðum í gærkvöldi. Yfirskrift fundarins,sem umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stóð fyrir, var
»Borgin, heimkynni okkar«.
Ekki var greint frá fundarsókn í fréttinni sem líklega táknar Samfylkingartalningu í mótmælastíl gegn hægristjórn á Austurvelli þar sem ein fjöður hefur verið fljót að verða að tíu hænsnum í stíl H.C.Andersen.
Hjálmar Sveinsson, gagnfræðingur frá USA, fyrrum bóksali og því formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, segir "að lítið hafi farið fyrir umræðu um aðstæður gangandi vegfarenda."
»Umræðan snýst svolítið mikið um hjól, bíla og kannski strætó einstaka sinnum. Lítið heyrist um aðstæður gangandi vegfarenda í borginni. Því þótti ástæða til að taka það til sérstakrar umræðu,« segir Hjálmar.
Hann segir aðstæður gangandi vegfarenda hafa batnað á undanförnum áratugum. Það sjáist m.a. af því að fyrir um 15 árum hafi tveir gangandi vegfarendur látist að meðaltali á ári en tölfræðin sýni hins vegar að nú láti einn gangandi vegfarandi lífið annað hvert ár að meðaltali.
»Verkfræðingar sem ég hef talað við telja að innleiðing 30 km hámarkshraða í hverfum hafi haft heilmikið að segja um aukið öryggi gangandi vegfarenda,« segir Hjálmar.
Á fundinum var einnig rætt um fegurð borgarinnar. »Algengt er að menn segi að fegurðarskynið sé afstætt þar sem sumum finnist eitt fallegt en öðrum annað. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að það er alls ekki þannig.
Langflestu fólki finnst ákveðin tegund af götum og borgarhverfum falleg og ákveðin tegund ljót. Það virðist skipta máli að húsum sé vel viðhaldið og að þar sé skjól. Ekki séu langir gluggalausir veggir með veggjakroti. Fegurðarsmekkurinn er því öfugt við það sem margir halda ekki afstæður,« segir Hjálmar.
Gísli Marteinn Baldursson borgarfræðingur, Ragnheiður Einarsdóttir, sérfræðingur á skipulagssviði Strætó, og dr. Harpa Stefánsdóttir arkitekt héldu einnig erindi á fundinum. "
Þarna sameinuðust vinstrimenn enn eina ferðina enn um að finna fleti á því að fjandskapast enn frekar við einkabílinn. En einkabíllinn er sá ferðamáti sem fólkið hefur kosið sér. Enda sjá flestir að almenningssamgöngur þjóna ekki þeim kröfum um hraða, sem daglegt líf reykvísks vinnudags í nútímanum gerir til venjulegs fólks sem þarf að skutla börnum fram og til baka og vinna líka.
Gegn þessu vali fólksins berst Borgarstjórnarmeirihlutinn með kjafti og klóm og vill hafa vit fyrir kjósendum. Hann neitar að fjölga akreinum þar sem "þær fyllast bara af bílum" svo notuð séu orð Hjálmar sjálfs. Neitar að úthluta eða fjölga lóðum í Úlfarsfelli því þá verður væntanlega bara byggt á þeim!
Síðasta verkið var að skipa samstarfshóp til að komast að þeirri niðurstöðu Hjálmars að lækka hámarkshraða á höfuðbrautum Borgarinnar úr 50 km/klst í 30. Þvílík hugdetta þegar jafnframt er sama dag upplýst að fólkið ekur yfirleitt langt yfir núverandi hámarkshraða vegna álags hins daglega lífs í Reykjavík. Samt fækkar slysunum eins og Hjálmar lýsir?
Hjálmar þakkar fækkun banaslysa úr tveimur í einn fjórða á ári því að hann hefur lækkað hámarkshraða í mörgum íbúðarhverfum úr 50 í 30. Hann er búinn að ákveða að framkvæma þessa breytingu á höfuðumferðaræðunum, hvað sem samráðsnefndin sagði í algerlega klofinni niðurstöðu sinni, 2 á móti einum. Þetta er samráð við kjósendur að hætti vinstri manna um að þvinga Borgarbúa til að gera það sem þeir vilja ekki sjá. Þeir vilja ekki búa í 101 á rándýrum lóðum með börn sín innan um öskrandi fyllibyttur á menningarnóttum Samfylkingarinnar, hvað sem hún heldur annað.
En Hjálmar athugar ekki, að gerbylting hefur orðið í uppeldi ökumanna á síðustu 15 árum. Bílar hafa stórbatnað tæknilega og eru öruggari á allan hátt. Stóraukin umferðarfræðsla hefur haft í för með sér að ökumenn eru nú langt um tillitsamari gagnvart gangandi umferð en þá tíðkaðist.Um það get ég vitnað eftir um 60 ára óslitinn ökuferil á höfuðborgarsvæðinu. Umferðarmenning er nú eins og dagur og nótt miðað við það sem áður var.Orðin kurteis og tillitssöm eins og erlendis gerist best.
Hraðahindranir og gangbrautarljós auka alls staðar á öryggið þar sem þess er þörf um leið og þetta tefur stórlega fyrir umferðinni eins og sjá má víða. Þetta notar Hjálmar til að draga þá ályktun að hámarkshraða skuli lækka á Miklubrautinni úr 50 í 30 og hana skuli grafa niður í margra milljarða stokk með tilheyrandi slysa-og loftræsingarvandamálum!
Sem sagt algerlega rangt ályktað af draumóramanni, til þess að fá fram hugsjónaniðurstöðu hjólreiðamannsins Hjálmars, sem er auðvitað í engu samhengi við nútíma viðhorf Borgarbúanna sjálfra. Hann lýsir því svo á Útvarpi Sögu hvernig hann ætlar að koma í veg fyrir að fjölskyldur í Borginni reisi sér hurðarás um öxl með því að eiga tvo bíla. á sama tíma sem hann segist vilja að fólkið velji sinn lífsmáta sjálft?
Lausn Hjálmars Sveinssonar er greinlilega sú að hann ætlar að láta fólkið búa nógu þétt saman þannig að vegalengdirnar í allt styttist. Fólk á að geta fæðst,lifað og dáið í 101 Reykjavík á flugvallarlandinu m.a. án þess að þurfa að hreyfa sig nema upp í Gufunes í síðustu utanbæjarferð sína.
Draumóramenn ráða för í Reykjavík á grunni rangra ályktana þetta síðasta ár fyrir kosningar. Gefa sér niðurstöðuna fyrst og fá svo helst virta verkfræðistofu til að skrifa röksemdafærsluna.
Reykvíkingar þurfa að draga rétta ályktun af framferði Hjálmars Sveinssonar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þú ferð mikinn.
Ég man ekki betur en það hafi verið löngu fyrir tíð R-lista, að byrjað var að lækka hámarkshraða í íbúðahverfum niður í 30 km/klst. Það fækkar slysum (og tjónum). Það er staðreynd.
Gleymdu því heldur ekki að margir fleiri en börn og próflausar fyllibyttur vilja frekar nota almenningssamgöngur, enda hafa þær marga kosti þótt þær taki aðeins lengri tíma. Varla viltu skikka alla til að fara um á einkabílum, sem geta ekki farið ferða sinna gangandi eða hjólandi?
Vésteinn Valgarðsson, 15.2.2017 kl. 21:37
Fjarri því Vésteinn, mér sýnist fólk vilja eignast bíla frekar en hjól
Halldór Jónsson, 15.2.2017 kl. 22:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.