Leita í fréttum mbl.is

Fyrir hverja er Landsbankinn?

Fyrir starfsfólkið sem stundar sjálftöku á bónusum?

Eru  þeir ekki núna að hesthúsa hagnað af sölu hlutabréfa  sem þeir gáfu sjálfum sér af þjóðareigninni sem er bankinn með hurðum og gluggum?

Ég átti þennan banka áður en ríkið stal honum af mér á þeim forsendum að hann væri kominn á hausinn. Var hann nokkurn tímann settur í skiptameðferð samkvæmt lögum? Hanga ekki málverkin enn á sínum stað? Af hverju eiga starfsmennirnir þau en ég ekki neitt?

Fyrir mér er þetta bara þjófnaður um hábjartan dag?Svona svipað og að ræna Apótek án þess að brúka exi?

Sveiattan. Virðast Landsbankinn og aðrar fjármálastofnanir ekki bara vera til fyrir sjálftöku-bónusa handa einhverju starfsfólki? Ekki stundum kallað fjárdráttur annarsstaðar í viðskiptalífinu?

Svo tala þeir um að það þurfi að byggja upp traust á fjármálasviðinu?

Traust á hverju? Sjálftöku-Bónusum?

Hvar verður traustið á Arion-banka í eigu mútugreiðenda og Afríku-reyfara?

Fyrir hverja er samfélagsbankinn Landsbankinn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hver er stefna hinna ýmsu flokka tengt eignarhaldi ríkisins á viðskiptabönkum?

Hvað myndir þú ráðleggja okkur að kjósa í næstu Alþingiskosningum til að tryggja hag almennings þessu tengdu?

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2192662/

Jón Þórhallsson, 19.4.2017 kl. 11:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er sama r...undir þeim öllum. Harðsvíraðar klíkur og sjálftökulið. Heldurðu Jón að Che Smári og kommaflokkurinn nýi sé kannski skárri en Steingrímur landsdómsbandítt og sá kommaflokkur. Það er ekkert til að kjósa sem breytir þessu eitthvað eða heldur þú það?

Halldór Jónsson, 19.4.2017 kl. 13:32

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að þú Halldór, værir alvaldur í landinu;

hver væri þá þín stefna   tengt eignarhaldi ríkisins á viðskiptabönkum? 

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2187053/

Jón Þórhallsson, 19.4.2017 kl. 14:56

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þá ætti ríkið þessa banka og myndi senda mér hlutabréf. Lýðurinn sem myndi vinna hjá þeim væri upp á kaup eftir launaflokkum ríkisstarfsmanna og fengju enga bónusa ofan á kaupið frekar en löggur og ráðuneytislið

Halldór Jónsson, 19.4.2017 kl. 17:42

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

AMEN á eftir þinni ræðu!

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2187053/

Jón Þórhallsson, 19.4.2017 kl. 18:58

6 identicon

Gamla ríkisbankakerfið var miklu betra en þetta mafíukerfi þar sem fámenn klíka sýgur allt til sín og við almenningur horfum upp á þetta með sárt ennið, bankar eiga ekki að vera braskbúllur, þau eru til að þjónusta almenningi, ættu að vera það alla vega

böðvar (IP-tala skráð) 19.4.2017 kl. 20:24

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Er þessi bankabarátta ekki milli tveggja lögmannastýrðara bankaturna, sem bítast um fiskiútgerðar kónganna landbúnaðartortímandi, bankafyrirgreiðslu grasagræna, og hafdjúpanna arðráns skiptimarkaði?

Ég er ekki í neinum flokki. Og síst af öllu Sjálfstæðisflokknum Framsóknarflokks kúgandi til margra áratuga. Það er ekki nóg að kaupa einn Sigmund Davíð, (Ora Londron), til að blekkja almenning á Íslandi.

Sjálfstæðisflokki er ekki treystandi. Sjálfstæðisflokki sem hefur með sínum mútubretastýrðu krókaveiddum/trollaaraveiddum/landsbyggðarrændum Íslandsaflaránum náð til sín öllum "nýjum" og blýantskrossandi "lýðræðistalninganna" kosningalýðveldi?

Veldi Sjalla innan "nýrra" kúgaðra og Frímúraradómstóla/lögmanna páfapíndra Framsóknarliða (nýju framsóknar?)/Vinstri Grænnaliða/Bjartrar Framtíðarliða, Viðreisnarliða, og svo frv?

Hvaða flokkseignar-toppalið valdalögmannamafíunnar stýrir dómsstólum Íslands, og öllum dómara/lögmannastýrðum kosningasvikum á þessu skeri?

Það er frekar tilgangslítið að rífast um varnarlausa og hertekna flokkseigendanna þrælahald og stjórnarglæpi innan embættiskerfisins.

Hver hertók t.d. Samfylkinguna með sína samfylktu réttlætismálanna stefnu? Þolir það rannsóknarskoðun? Og hvaða flokkaforysta myndi dæma í því rannsóknarmáli?

Á bara að henda Samfylkingunni út af Sjallabryggjunni frí-múruðu eftir lögmanna/dómstóla blekkingameistaranna misnotkun, fyrir nýja kúgaða þræla Íslandspólitíska mafíuveldis lögmanna/dómstólakúgandi?

Það er margt í mörgu, í gjörspilltu embættiskerfis stýrðu mannsalsríki lögleysunnar á Íslandi!

Enginn, getur vænst réttlætis af óréttlátu og siðblindu valdaembættiskerfi bankastjórnanna, kauphallanna og sýslumannsembættanna rányrkju.

Enginn hlekkur siðmenntaðrar samfélagskeðjunnar á jörðinni verður sterkari en veikasti hlekkurinn. Svíkirðu vísvitandi og með aðstoð lögfræðiyfirvalds, veikasta og varnarlausasta hlekkinn, þá svíkur þú sjálfan þig. 

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.4.2017 kl. 21:58

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Anna mín, þú hlýtur að finna réttlætið í nýja flokknum hans Che Smára Egilssonar þar sem hann skilur orðið óréttlætið í þjóðfélaginu sem leyfir honum ekki að gefa út sín blöð með því tapi sem til þarf.Full ástæða til að hata allt samfélagið og óréttlætið í því sem Sjálfstæðisflokkurinn er holdgerfingur fyrir þó að réttlætið finnst ekki heldur í flestum öðrum flokkum. Niður með allt, hengjum og skjótum akka helvítis bófa sem eru annar hver maður Anna mín allir nema þú og kannski ég lúka- eða hvað?

Halldór Jónsson, 19.4.2017 kl. 22:27

9 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór

Getur þú ekki verið mér sammála um að nýtt þjóðernis afl þurfi til hér í ósómann til að stokka spilin upp á nýtt?

Ég bind t.a.m. helst vonir mínar við Flokk fólksins og auðvitað líka að ágætar hreifingar á borð við Dögun og Íslensku þjóðfylkinguna brjóti odd af oflæti sínu og komi í baráttuna.

Ert þú með?

Jónatan Karlsson, 20.4.2017 kl. 07:59

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Dettur það ekki í hug Jónatan að fara að eyða kröftum í vonlaust tætingslið eins og þú ert að lýsa.

Hugsjónir Sjálfstæðisflokksins hafa ekkert breytst og þær duga mér. Annað mál er hverju ég næ fram hverju sinni. En eigi ég samherja innan flokksins þá get ég haft áhrif.

Þannig er stjórnmálaflokkur. Ekki litlir fýluhópar eins og þú ert að lýsa sem engu ná fram vegna þess að að er samstilling kraftanna sem gildir, Dögun og og íslenka þjóðfylkingin og flokkur fólksins eru tilgangslausir sérstrúarsöfnuðir sem engu fá áorkað.

Ég og þú gætum gert hugsanlega eitthvað saman í stórum flokki og ef við hefðum hana Ingu Sæland með þá væri kannski hlutstað á okkur og við fengjum einhverju áorkað. En Inga nær engu fram sem sérvitringur úti í horni þó hún sé jafnvel betur máli farin en flestir sem hæst prumpa.

Halldór Jónsson, 20.4.2017 kl. 11:07

11 Smámynd: Jónatan Karlsson

Halldór.

Sannir sjálfstæðismenn eins og þú og margir fleiri, eigið sannarlega ekkert erindi í þjófabælið, Valhöll.

Venjulegir Íslendingar eru búnir að fá upp í kok af spillingu og einkavinavæðingu fjórflokksins, með þá frændur Bjarna og Benedikt í fararbroddi, svo örlög Sjálfstæðisflokksins verða örugglega fyrr en varir þau sömu og Samfylkingarinnar.

Jónatan Karlsson, 20.4.2017 kl. 12:56

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Jónatan, ég samþykki ekki að Valhöll sé eitthvað þjófabæli. Það má deila um margt sem gert hefur verið og líka um þátt einstakra manna.

En ég get ekki séð að þú getir ásakað Bjarna um óheiðarleika, hann hefur virkilega losað sig frá þessu viðskiptalífi þó hann geti ekki breytt ættartré sínu frekar en þú og ég.Í heild er Sjálfstæðisflokkurinn heiðarlegur hugsjónaflokkur þar sem menn takast á um málefnin.

En hvernig átt þú að geta sagt eitthvað um Ólaf kóng þar sem þú hefur aldrei heyrt hann né séð?

Halldór Jónsson, 21.4.2017 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband