Leita í fréttum mbl.is

Hver er ábyrgur ?

fyrir kvótaviðskiptum í útblæstri sem geir það að verkum að við Íslendingar framleiðum rafmagn á óvistvænan hátt með kolum og kjarnorku?

Hvað fengum við fyrir að selja hina hreinu ímynd vistvænnar orku virkjana okkar og taka á sig þennan stimpil Evrópusambandsins sem umhverfissóðar?

Hver nákvæmlega seldi ímyndina og á hvað?

Hverjir eru ábyrgir fyrir þessu nákvæmlega?

Fáum við allar þessar upplýsingar á borðið?

Eða er þöggunin alger og fjölmiðlar og sökudólgarnir í samsæri?

Bretar verðlauna fyrirtæki sem koma fram af ábyrgð í mengunarmálum með skattaafsláttum.

Í Bandaríkjunum þola sóðafyrirtæli refsingar markaðarins og almennings með viðskiptamissi. En Trump hafði vit til að stöðva Parísarvitleysuna sem lætur þá sem haga sér ábyrgt borga sóðunum fyrir að halda áfram svínaríinu. Fyrir það ráðast krateríið og góðafólkið á hann sem aldrei fyrr.

Bandarískur almenningur líður ekki endalaust svínarí í umhverfismálum. Pressan og fjölmiðlarnir sjá til þess að menn fá ekki að vera í friði með glæpsamlega eða umhverfisfjandsamlega  starfsemi. Hér er þetta svo samtengt og almenningur svo sljór, að stjórnmálamenn komast upp með allt svínarí á þeim forsendum að almenningur eigi sjálfur í hlut. Eins og til dæmis í Hellisheiðarvirkjun.

Þannig eigum við að taka á þessum umhverfismálum eins og Bretar en ekki með eyðilggjandi lagaþvingunum stjórnmálaskálka eins og við þekkjum þá versta. Við eigum að gera kröfur til fyrirtækja um útblástur sem okkur hentar sjálfum. En ekki að hlaupa eftir fíflsku ESB og okkar góða fólks sem samþykkir þessi EES-ákvæði sem henta okkur ekki endilega.

Þetta lætur okkur eyðileggja hreina orkuímynd okkar lands með kvótaviðskiptum til skamms tíma sem gerir okkar orku óhreina og kjarnorkuvæna. Það fást engin svör um það hverjir ákveða að fara svona að né hvað Landsvirkjun eða ríkissjóður fær fyrir þessa ömurlegu viðskipti.Og enginn reynir að áætla tjónið af því að ríkið sjálft er versti sóðinn.

Mikið af okkar verstu vandamálum er hvernig opinberir aðilar hegða sér eins og til dæmis í þessum memngunarkvótaviðskiptumi.Það er ekki almenningur sem stendur að þeirri ömurlegu heimsku heldur einhverjir í kerfinu og hugsanlega bakkaðir upp af pólitíkusum?Hver er sá Humpfrey þarna inni  sem gerði þetta og hvað fékk hann fyrir?

Hellisheiðarvirkjun er svo vitlaust hönnuð frá byrjun að henni ætti að loka strax og afskrifa vegna orkuskorts sem gerir hana svo óhagkvæma að framleiðslukostnaður er þrefalt söluverðmætið sem hún framleiðir.

Þá komast stjórnmálamennirnir sem ráða henni, sem er  Dagur B. Eggertsson og hans lið upp með það að gera mengunarráðstafanir sem kosta eitt söluverðmæti í viðbót með niðurdælingu CO2 og brennisteinsvetnis. Þetta framleiðir jarðskjálfta á kostnað almennings ern enginn veit hverju þessi peningabrennsla er að skila. Hér má benda á grein i Sámi fóstra þar sem þessu eru gerð skil.

https://issuu.com/radandi_auglysingastofa/docs/samur_fostri_1_tbl_april_2017_280x4

Allar þessar ráðstafanir sem almenningur hefur ekki kynnt sér  duga ekki til að stöðva þetta eiturspúandi mengunarskrímsli sem Hellisheiðarvirkjun er. Enginn veit hvaða tjón útblásturinn er að vinna á heilsu Sunnlendinga. Ef lungun í þeim fá ámóta áreiti og háspennuvirkin í nágrenninu þá eru skilyrðin líklega ekki heilsusamleg.

En það er haldið áfram á fullu af því að við skattborgarar virðumst ekki skilja hvað er verið að gera þarna fyrir okkar eigið fé. Virkjunin er tilkomin vegna óraunsærra áætlana R-listans á sinni tíð. Gusast í framkvæmdir af vitlausri bjartsýni og ekki hlustað á viðvörunarorð.  Vinstri menn viðurkenna aldrei mistök og því er haldið áfram að reka óhagkvæmasta fyrirtæki landsmanna og reynt að kítta í götin með endalausri vitleysu af því að almenningur krefst þess akki að spilin séu lögð á borðið.

Hver er ábyrgur og hvað kostar kílóvattið frá Hellisheiðarvirkjun?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Halldór

Þú spyrð hver er ábyrgur fyrir því að við neytendur orku hér á landi erum að nýta kjarnorku til að lýsa upp heimili okkar. Þeirri spurningu er fljót svarað, svona á einfaldan hátt, kjósendur. Þeir refsa aldrei stjórnmálamönnum, sama hvað þeir gera.

Flóknara svarið er að kontóristar innan ESB báknsins sömdu þessa vitleysu. Eins og með svo margt ruglið sem frá þeim kemur, þá samþykkti ESB þingið vitleysuna og þar með varð þetta að tilskipun til EES ríkja.

Aldrei hefur verið til staðar kjarkur innan Alþingis til að efast um þær tilskipanir sem frá ESB kemur og því þetta endemis rugl samþykkt þar. Þar með varð til heimildin.

Það eru því kontóristarnir í ESB og kjarklausir íslenskir stjórnmálamenn sem bera ábyrgð á heimildinni til kvótaviðskipta með hreinleika orkunnar. Í þessari heimild felst engin skylda.

Þeir sem svo bera raunverulega ábyrgð, þ.e. þeir sem nýta heimildina, eru aftur stjórnendur stæðstu orkuframleiðendanna hér á landi, Hörður Arnarson og Bolli litli Bollason. Það eru þeir sem nýta heimildina og sverta ímynd landsins.

Það eru svo stjórnmálamenn sem bera ábyrgð á því að þessir sótugu menn sitja enn í sínum stólum og því komum við aftur að ábyrgð okkar kjósenda.

Menn hafa skiptar skoðanir á þátt mannsins í áhrifum á loftslagið og skiptar skoðanir á því hver þau áhrif í raun eru. Það þarf ekki að fletta lengi í gegnum google til að komast að því að sú bábilja sem á okkur dynur, dags daglega, um að mannkynið sé að stúta jörðinni, er upp sprottin hjá stjórnmálamönnum sem margir hverjir græða miklar fúlgur fjár á. Vísindamenn eru aftur varkárari í sínum málflutningi og margir hverjir sem vilja meina að þessi áhrif séu hverfandi og jafnvel í þveröfuga átt við það sem stjórnmálaelítan heldur fram. Hvað um það, þá er ljóst að þessi reglugerð um kvótaviðskipti með mengun, hefur ekki leitt til neinnar minnkunar á mengun innan Evrópu, þvert á móti. Á sama tíma hefur dregið verulega úr mengun í USA, jafnvel þó þeir hafi aldrei tekið þátt í neinu "heimssamkomulagi" um minnkun mengunar.

Þetta er nokkuð merkilegt, eða þannig. Í raun er þetta augljóst.

Innan kaþólsku kirkjunnar ganga menn til skrifta og losa sig þannig undan illum verkum og hugsunum. Að vís þurfa menn að biðja einhverra bæna og kannski henda einhverjum aurum til einhvers dýrlingsins, svona ef sök er talin stór, en að öðru leyti kostar þetta ekki neitt og hinn seki gengur frjáls og hreinn maður út úr kirkjunni.

Kvótasölubréfin sem orkufyrirtæki versla með sín á milli skaða aftur þá sem fyrir slíkum viðskiptum verður. Þeir sem verða að lýsa sín hús með "óhreinni" orku þurfa að greiða stórar upphæðir fyrir og hinir sem selja sitja uppi með þessa "óhreinu" orku. Báðir tapa.

Þegar svo í ljós er komið að þetta hefur akkúrat engin áhrif til minnkunar mengunar, spyr maður sig til hvers af stað var farið.

Þá endum við aftur hjá misvitru kontóristunum í Brussel. Hugur þeirra er svo smár að þeir sjá ekki einu sinni niður á tær sér og því sitja þeir bara við skrifborð sitt og semja hverja vitleysuna af annarri.

Gunnar Heiðarsson, 10.6.2017 kl. 08:08

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Kærar þakkir Gunnar Heiðarsson fyrir þitt frábæra svar og góðu upplýsingar. Ég skil málið mun betur eftir að þu kemur þessu svona vel fyrir á mannamáli.

Við eigum hinsvegareftir að fá að sjá hvað græddi landið á þessu braski þeirra orkubræðra? Hvað er skaðinn mikill?

Halldór Jónsson, 10.6.2017 kl. 10:57

3 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Áhugarverð spurning. Í ársskýrslu Arion banka er kolefnisbókhald og þar er notkun 4 MW ársnotkun og kolefnisspor 693 tonn í CO2 ígildum. Tekið tillit til áhrifa af sölu upprunavottorða raforku og var skiptingin þannig; endurnýjanleg orka 71%, jarðefnaeldsneyti 17% og kjarnorka 12%.

ÁTVR er með 2 MW ársnotkun og 0 tonn í CO2 ígildum, allt keypt hjá Orkusölunni en hún er með 100% vatnsorka.

Þar sem þessi ágætu fyrirtæki eru í þjónustu, þá skiptir uppruni raforku ekki höfuðmáli, en ef fyrirtæki eru í útflutningi á hörðum samkeppnismarkaði, þá væri staðan alvarleg. Sótsporið hátt og mun skipta miklu máli í framtíðinni.

Sigurpáll Ingibergsson, 10.6.2017 kl. 22:29

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Get ég selt kolefniskvóta?  Hvað fæ ég fyrir hann?

Ásgrímur Hartmannsson, 11.6.2017 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418436

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband