Leita í fréttum mbl.is

Hvernig leysir Kaninn húsnæðisvandann?

Hann smíðar svona hús á hjólum og selur fyrir innan við 4 milljónir stykkið. Hingað komið kannski 8 milljónir með venjulegri lágvöruverðsálagningu?

Furnished-Tiny-House-750x364 1

 

 

 

 

 

 

Furnished River-Home-Interior-3

 

 

 

 

 

 

 

Hvar er Sveinbjörg nú?

Furnished River-Home-Interior 2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

svo kemur úlfurinn og blæs þessu rusli um koll

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 4.7.2017 kl. 09:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ætli sé ekki hægt að festa því?

Halldór Jónsson, 4.7.2017 kl. 12:01

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Og svo Viðlagatryggingin mar!

Halldór Jónsson, 4.7.2017 kl. 12:02

4 identicon

Og þú ætlast víst til að fá allt annað frítt. Niðurfellingu á gjöldum til ríkis og sveitarfélags upp á nokkrar milljónir. Og svo eru svona Amerísk hús ekki CE merkt og þarf því að breyta fyrir nokkra hundraðþúsundkalla. Viðinn þarf að meðhöndla sérstaklega fyrir Evrópu og það kostar sitt. Fermetraverð á þessum <30 fermetra íbúðum verður því þegar upp er staðið meðal þess dýrasta á landinu.

Gústi (IP-tala skráð) 4.7.2017 kl. 12:45

5 identicon

Merkilegt med allar gódar hugmyndir, hvad mikid er til af fólki sem vill tradka thaer nidur med ollum rádum.

Svona hús myndu falla undir faeranleg hús, jafnvel hjólhýsi, og thar med faeri obbinn af skammtheimtunni.

Einnig er haegt ad fá framleidenda til ad fá CE vidurkenningu ef framleidslan yrdi fyrir Evrópu markad og lágmarksfjolda nád í solu. Thar med dyttu nidur nokkrir hundrad thúsnd kallar. Vidinn tharf ekkert ad medhondla sérstaklega ef thetta er flutt inn sem slíkt. Gleymum ekki thví ad thau eru líka framleidd med álklaedningu.

Svona lítid byggdarfyirkomulag hefur thrifis mjog vel á Laugarvatni og ekki hvartar fólk undan skatti.

Vilji er allt sem tharf til ad gera thetta ad raunveruleika og gódan valkost fyrir ungt fólk ad byrja lífid.

Haettum ad tala allt nidur og jarda allar gódar hugmyndir sem gaetu hjálpad okkar unga fólki. Af hverju ekki ad gefa thessu gaum..???

Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 4.7.2017 kl. 13:32

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þetta gæti verið fín lausn, þar sem því verður við komið. Gæti verið hægt að koma fyrir "ristavél" (English muffins færslan;-)) í svona smáhýsum, eða ætli þær séu of háværar?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 4.7.2017 kl. 14:45

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Gústi myndi  líklega ekki ét english muffins úr ristavél þar vegna Brexit þar sem þær fengjust ekki CE merktar eins og flest allur varningur í Ameríku er víst.

Enda er hans lausn víst líklega hótel mamma áfram of 700.000 króna fermetri í verktakablokkunum. mér var sagt að fermetrinn í Byggung blokk í Kópavogi væri svona um 350.000 kallinn. Það er spurning hvort ungt fólk vill manselja sig í ánauð fyrir þá sælu. Ég veit um ungan mann sem er að byggja með eigin höndum og fjölskyldunnar. Fermetrinn er ekki kominn í hundraðþúsundkallinn ennþá og hann flytur inn fyrir svona fimmtíu í viðbót. Með lóð NB. Hann er bara ekkert að væla yfir vaxtaokri eins og Pétur á Sögu  heldur gengur bara í þetta.

Pétur blessaður, ein og hann er nú orðinn góður og klár gleymir alltaf styrkingu krónunnar í vaxta og fjármagnskostnaðar fabúlunni sinni. Lánin eru ekkert dýrari hér en annarsstaðar, stundum miklu ódýrari. Hvað heldur hann að Útvarp Saga myndi þurfa að borga í yfirdráttarvexti í Þýskalandi til dæmis? Það er ekki einsstafa tala get ég fullyrt. Hann ætti bara að spyrjast fyrir um það hjá Deutsche.

Halldór Jónsson, 4.7.2017 kl. 20:53

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Af hverju er fólk að borga yfirdráttarvexti? 

Yfirdráttarvextir eru okurlán, hef aldrei skilið af hverju fólk með sæmilega greind láti okra á sér.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 4.7.2017 kl. 22:23

9 identicon

Raftæki í Bandaríkjunum sem eru 110v eru ekki CE merkt. Gas og raflagnir í húsum ekki eftir Evrópskum stöðlum og því ekki CE merkt. Sama á við um vatn og skolp. Það þarf jafnvel að skipta um gasskammtarann á gasgrillum sem flutt eru inn frá USA. Hætt er að flytja inn fellihýsi frá Bandaríkjunum vegna kostnaðar við breytingar svo þau uppfylli Evrópska staðla.

Ódýrar lausnir sem eru aðallega ódýrar vegna þess að skolp, raf, hitaveitu og vatnstengingar vantar, enginn grunnur, lóð á að vera ókeypis og gatnagerðargjöld engin er engin lausn. Þá væru allir sem vantar svona húsnæði í hjólhýsum. Þau uppfylla staðla og er hægt að fá fyrir minna en þessi smáhýsi. Og um þau gilda sömu reglur um lánveitingar hjá bönkunum og þessi smáhýsi mundu falla undir.

Og það geta ekki allir látið ættingjana í óborgaða byggingarvinnu til að ná niður verðinu. Og ekki eru þessir ættingjar unga mannsins að bjóða öðrum þetta. Ég veit líka um ungan mann sem á ríkan föður sem gaf honum íbúð. Fermetrinn er ekki kominn í krónu ennþá og hann flytur inn fyrir svona ekkert í viðbót. Með lóð NB. Hann er bara ekkert að væla yfir vaxtaokri eins og Pétur á Sögu  heldur gengur bara í þetta. Það er ódýrt fyrir ungan mann að lifa ef ættingjar gefa honum ómælda vinnu og peninga.

Gústi (IP-tala skráð) 4.7.2017 kl. 23:45

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki batnar þér Gústi minn. Þú ert áreiðanlega hamingjusamur í Samfó og trúir á ESB sem lausn okkar mála.

Þó að þú tækir hjólin udan Kanahúsinu og settir það á grunn þá væri það enn billegt og áreiðanlega hægt  að fá það samþykkt hér.Það má líka hugsanlega fá það sérframleitt með CE án mikils aukakostnaðar.

Ekki vera svona rosalega neikvæður við öllum hugmyndum sem miða að þvi að leysa vandræði. Eða eru kannski  engin husnæðisvandræði hjá Degi B. í Reykjavík eða þar sem Samfó stjórnar?

Halldór Jónsson, 5.7.2017 kl. 07:40

11 identicon

Samfó og ESB eru ekki lausn okkar mála frekar en amerísku hjólhýsin. Vandamálið er ekki skortur á hjólhýsum og verður ekki leyst með hjólhýsum, jafnvel þó þú takir dekkin undan.

CE merking er ekkert smámál. CE merking kostar milljónir og enginn sem ekki ætlar að selja mikið á Evrópumarkað sækir um slíkt.

Gústi (IP-tala skráð) 5.7.2017 kl. 09:10

12 identicon

Voru það ekki topparnir í Bretaheimsveldinu sem sömdu CE merkingarnar í EES/ESB, og ætla nú að veiða viðskiptavinina burt frá eigin hönnuðu CE reglum, frá bakhlið eigin heimsveldisbankaplans-einokunar?

Fólk verður að vakna til vitundar um hvaðan heimsveldiseinokunar-planaða þrælahaldið kemur í raun og veru. US!

Eða annars að fljóta bara sofandi að feigðarósi siðleysis og Guðsorkuleysis-spillingar US-heimsveldisbankaránsins?

Ég er sögð skrýtin af flestum óskrýtnum, vegna þess að ég vil fljóta vakandi og viðvarandi að feigðarósi heimsveldisbanka-mafíunnar. Það verður þá bara að hafa það þótt ég hafi það slæma orð á mér að vera skrýtin prinsipp manneskja.

Ég á mig og mína sál, og ber ábyrgð á mínum prinsipp skoðunum! Það sama gildir líka um alla aðra einstaklinga! Sá sem hefur selt sálu sína og lífsskoðanir á ekkert eftir nema fangavist sálar sinnar á jörðinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 5.7.2017 kl. 20:18

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Æ Gústi minn sem þykist allt vita. Þetta segir Vikipedia um CE

"CE marking is a mandatory conformity marking for certain products sold within the European Economic Area (EEA) since 1985.[1] The CE marking is also found on products sold outside the EEA that are manufactured in, or designed to be sold in, the EEA. This makes the CE marking recognizable worldwide even to people who are not familiar with the European Economic Area. It is in that sense similar to the FCC Declaration of Conformity used on certain electronic devices sold in the United States.

The CE marking is the manufacturer&#39;s declaration that the product meets the requirements of the applicable EC directives.[2]

The mark consists of the CE logo and, if applicable, the four digit identification number of the Notified Body involved in the conformity assessment procedure.

"CE" originated as an abbreviation of Conformité Européenne, meaning European Conformity,[3] but is not defined as such in the relevant legislation. The CE marking is a symbol of free marketability in the European Economic Area (Internal Market)."

Halldór Jónsson, 5.7.2017 kl. 21:34

14 identicon

Og Staðlaráð Íslands, sem sér um útgáfu leyfis og eftirlit með Íslenskum CE merktum vörum, segir:

2. Ferli CE-merkingar

Huga ætti að CE-merkingu strax á hönnunarstigi vöru. CE-merking vöru gefur til kynna að varan uppfylli þær lágmarkskröfur um öryggi og heilsuvernd sem settar eru fram í tilteknum Evróputilskipunum, svokölluðum nýaðferðartilskipunum. Sá sem telur sig fullnægja öllum ákvæðum allra slíkra tilskipana, sem vöru hans varða, hefur leyfi til að auðkenna vöruna með stöfunum CE. CE-merking tiltekinnar vöru er þannig ekki eingöngu yfirlýsing um að varan sé í samræmi við ákveðna tilskipun heldur sérhverja nýaðferðartilskipun sem gæti átt við vöruna. Slík auðkenning er skilyrði fyrir markaðssetningu þeirra vöruflokka sem tilskipanirnar ná yfir. CE-merki má eingöngu nota til að gefa til kynna samræmi við nýaðferðartilskipanir en ekki eldri tæknilegar tilskipanir sem eru enn í gildi.

Til að uppfylla kröfur tilskipana ætti framleiðandi að:

    Finna út hvaða tilskipun eða tilskipanir eiga við

    Gera áætlun um framgang CE-merkingarinnar

    Finna út hvaða samhæfðu staðlar eiga við

    Ákveða hvernig eigi að tryggja að kröfur í stöðlum séu uppfylltar

    Ganga úr skugga um að varan uppfylli tilskipun með því að notast við virkt verklag, fyrirliggjandi gögn og prófunarniðurstöður

    Þegar aðstoð tilnefnds aðila á við, ganga úr skugga um að rétt verklag sé viðhaft til að tryggja samræmi við tilskipun og að aðgerðum í gæðamálum sé framfylgt.

    Tryggja að nauðsynleg þjálfun sé veitt

    Tilnefna starfsmann sem sér um að framfylgja því verklagi sem ákveðið hefur verið hvað varðar tilskipunina, samræmismat, tæknileg gögn og samræmisyfirlýsingu

    Gera samræmisyfirlýsingu sem inniheldur allar tilgreindar upplýsingar

    Ganga úr skugga um að framleiðsluferlið skili eingöngu vörum sem eru í samræmi við tæknileg gögn
    Setjið CE merkið á

Þetta er ekki ókeypis þjónusta. Og Lög um byggingarvörur segja:

1. gr. Efni
Í þessari reglugerð er mælt fyrir um skilyrði fyrir því að byggingarvörur séu settar eða boðnar fram á markaði með því að setja samræmdar reglur um hvernig sýna eigi fram á nothæfi byggingarvara með hliðsjón af mikilvægum eiginleikum þeirra og um notkun CE-merkja á þessum vörum......
22. gr. Viðurlög.
Það varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum að bjóða byggingarvöru fram á markaði eða nota slíka vöru til mannvirkjagerðar án þess að fullnægjandi gögn og upplýsingar samkvæmt lögum þessum og reglugerð ESB nr. 305/2011 fylgi vörunni, án þess að varan sé CE-merkt þegar slíkt er skylt eða í þeim tilvikum sem varan er ranglega CE-merkt án þess að skilyrði séu uppfyllt. Það varðar sömu viðurlögum að bjóða byggingarvöru fram á markaði sem við venjulega eða fyrirhugaða notkun getur valdið alvarlegri hættu hvað varðar heilbrigði manna, öryggi eða umhverfi......30) Sökum þess hve þýðing CE-merkisins er mismunandi fyrir byggingarvörur, í samanburði við almennu meginreglurnar sem settar eru fram í reglugerð (EB) nr. 765/2008, skal setja fram sértæk ákvæði til að tryggja að skyldan um áfestingu CE-merkisins á byggingarvörur og afleiðingar þess séu skýr.

Gústi (IP-tala skráð) 5.7.2017 kl. 23:44

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Ljóti ófögnuðurinn  sem stafar af þessu EES öllu saman, við ættum að hypja okkur úr því og Schengen vitleysunni og fara að vera frjálst og fullvalda ríki.

En við eigum bara ekki nægilegt af upplýstu fólk til að ráða ráðum okkar, þetta þinglið er margt súbstandard fólk sem hefur enga sjálfstæða skoðun né nægilega menntun til að skilja nein utanaðkomandi mál. Það hefur hjarðmennskuna eina ef það þarf ekki að hugsa, lesa né skilja það sem það er að samþykkja eins og verið hefur um Evrópusanþykktirnar.

Gústi virðist mér vera sá typiski evrókrati sem ver þetta allt í líf og blóð og fjandskapast við allt sem kemur utanfrá bandalaginu. Hans heimur nær ekki útfyrir Brussel.

Halldór Jónsson, 6.7.2017 kl. 22:43

16 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Halldór 

Ég vildi bara leyfa þér að sjá þetta myndband hérna https://www.facebook.com/1innov/videos/860451920773226/ með allar þessar nýjungar. KV. 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 9.7.2017 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418447

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband