Leita í fréttum mbl.is

Tekst Trump?

að gera Bandaríkin stór aftur?

Sósíalistar heimsins virðast vera sameinaðir í að reyna að eyðileggja allt sem hægt er fyrir Trump Forseta. Hvert hálmstrá er gripið af Evrókrötum jafnt sem bandarískum Demókrötum til að níða Forsetann og skipta þá bandarískir hagsmunir engu í þeirri persónustyrjöld. Þeir geta ekki sætt sig við dóm bandarískra kjósenda að hafa kosið þennan mann sem tilraun til að breyta einhverju fyrir alþýðu manna og hina deyjandi millistétt í Bandaríkjunum sem hefur horft upp á störfin sín hverfa í alþjóðavæðingunni. En J.D Vance lýsir því átakanlega í bók sinni Hillbilly Elegy hvernig er komið fyrir henni í ryðbeltinu þar sem hún sekkur niður í menntunarleysi, ólifnað og vonleysi. Og ´þetta er ekki einsdæmi fyrir þetta svæði í Bandaríkjunum.  

Akkúrat sama munstur er útbreitt að gerast meðal æskufólks á Íslandi. Fólkið okkar dettur út úr skóla því það kemur ólæst og óreiknandi út úr grunnskólunum okkar og fótar sig ekki í lífinu í framhaldi. Kjarabarátta kennara gengur oft fyrir starfsárangri skólanna og því meir sem fleiri byltingarsinnaðar og þjálfaðar skæruliðakonur veljast þar til áhrifa. Ég hallast að því að vöntun á karlkyns kennurum, eins og voru í mínu ungdæmi í skólunum,  hefur slæm áhrif á stöðu og árangur skólanna því að konur geta hreinlega ekki kennt sumar greinar á borð við karlmenn. 

Nú stendur yfir enn ein atlaga kratanna að Trump og er nú hakkað á syninum fyrir að hafa sótt fund til þess að hlusta á einhverjar upplýsingar um Hillary sem gæti verið góðar í kosningabaráttunni.

Gerði drengurinn eitthvað siðferðislega verra heldur en íslenska ríkið þegar það keypti skattupplýsingar af þjófi? Tekur maður ekki við upplýsingum í kosningabaráttu frá hverjum sem er? Hverjir myndu ekki gera það? Sá yðar sem syndlaus er....

Allir eru þeir samstíga sósíalistarnir, hvort heldur eru evrukratar eða bandarískir demókratar  að níða Trump niður með öllum ráðum. Þeir geta ekki fyrirgefið bandarískum kjósendum að hugsa öðruvísi en þeir kröfðust.

Hitt er annað mál hvort Trump takist eitthvað að breyta Bandaríkjunum og gera þau stór aftur. Það er erfitt verk þar sem úrkynjun fyrrum millistéttarinnar er komin á svo hátt stig eins og J.D.Vance lýsir í bók sinni.  En gott skref hjá honum var allavega að segja sig frá Parísarsamkomulaginu um loftslagsmálin sem sparaði Bandaríkjunum og þar með mannkyninu trilljónir dollara.

Gervivísindamennska AlGore og fylgihnatta hans kostar mannkynið ómældar fjárhæðir og veldur hungursneyð í verst settu ríkjunum þegar matvælin eru notuð til að búa til ethanol í bensínblöndun eins og við fíflin á Íslandi erum að gera með ærnum kostnaði. Valda hinum minnstu bræðrum okkar og systrum ómældum skaða með dýrara eldsneyti og valda hörmungum meðal fátækra í Afríku sem fá ekki maís að borða vegna þess að hann fer í þessa útblástursvitleysu.

Tekst Trump að gera Bandaríkin stór aftur?  Það er ekki vitað enn. En eitthvað tekst honum samt sem Demókrötum hefði aldrei tekist.

Brotthvarfið frá Parísarsamkomulaginu tókst hjá Trump.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeim fjölgar rannsóknarkrötunum sem hafa viðveru af því að finna sér opinber verkefni þar sem vafi getur leikið á útkomu. Hvort sem þeir heita Egill Helga eða AlCore. 

Egill Helgason vildi láta rannsaka smáfyrirtæki sem seldu dýrt að hans mati. Sjálfur býr hann hálft árið á láglaunaeyju í Miðjarðarhafi. Sendir án afláts póstinn sinn og ber saman verðlagið. Á hinni norðlægu við heimskautsbaug og eyju þar sem íbúafjöldinn er allt að 4 sinnum meiri.

Starfsmenn RÚV höfðu það að leik í vetur að stunda "rannsóknarblaðamennsku" í fjórum kastljósþáttum á meðan fyrirtækinu sem tekið var fyrir blæddi út. Á eftir ætluð þau að baka Mast forstjórann á tveimur kvöldum, en án árangurs. Opinbert eftirlit er í hæstu hæðum eins og markaðir voru um árið. Eitt innflutningsfyrirtæki á banönunum þurfti að greiða milljónir fyrir sýnistöku. Önnur urðu að loka eftir heimsóknir opinbera starfsmanna sem gerðu rekstur óarðbæran.

Trump var kosinn til að hafa hemill á óreiðumönnum í fals róðri, falsspámönnum sem boðuðu heimsendi ef ekki væri farið eftir ráðum þeirra. Við sem búum við lækkun hitastigs sjávar og minni meðalhita í júní tvö ár í röð, eigum að trúa Parísarmönnum? 

Sigurður Antonsson (IP-tala skráð) 13.7.2017 kl. 20:56

2 identicon

Halldór þú spyrð hér: "Gerði drengurinn eitthvað siðferðislega verra heldur en íslenska ríkið þegar það keypti skattupplýsingar af þjófi?" Trump Jr. braut bandarísk lög þegar hann sóttist eftir upplýsingum frá rússneska ríkinu, því það kom skýrt fram í tölvupóstinum að þessar upplýsingar væru frá því. Óbreyttu fólki í Bandaríkjunum er stranglega bannað að taka við slíkum upplýsingum frá erlendum ríkisstjórnum heldur ber þeim að tilkynna bandarískum yfirvöldum án tafar ef þeim er boðið eitthvað slíkt. Trump Jr. er því að öllum líkindum sekur um landráð. Þetta er í engu sambærilegt við það þegar íslensk yfirvöld keyptu skattaupplýsingarnar.

"Tekur maður ekki við upplýsingum í kosningabaráttu frá hverjum sem er?" Nei, það gerir maður ekki, nema maður sjái ekkert athugavert við að vera brotlegur við landslög.

"Hverjir myndu ekki gera það?" Hvaða máli skiptir það í þessu samhengi? Finnst þér það réttlæta lögbrot eins að annar brjóti af sér líka?

Karvel (IP-tala skráð) 14.7.2017 kl. 12:03

3 identicon

Hafa Bandaríkin einhvern tíma verið " stærri " en í dag.  Trump talar um að flytja störf aftur til USA.  Verða Bandaríkin stór við það ? eða er það ávísun á að tæknifyrirtæki þar í landi verða þá síður samkepnisfær.

Ekki sé ég að það sé eitthvað slæmt við það að ríki heimsins hafi loksins náð saman um að draga úr mengu, hvort sem mengunin er valdur að hækkandi hitastigi jarðar eða ekki.

Sigurður.  Hér fyrir neðan er af vef veðurstofunnar um hita í júní 2016.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík var 10,9 stig, 1,9 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 og 0,7 ofan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhiti á Akureyri var 11,8 stig, 2,7 stigum ofan meðaltals 1961 til 1990 og 1,8 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.

Brynjar (IP-tala skráð) 14.7.2017 kl. 12:03

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Allt saman breytingar á virkni sólar en ekki neitt með mengun að gera

Halldór Jónsson, 14.7.2017 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 3418318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband