24.8.2017 | 09:18
Hvað gengur manni til?
eins og prófessor doktor Þorvaldi Gylfasyni að skrifa svona grein um gistiþjóð sína Bandaríki Norðurameríku, sem hefur borið hann sjálfan á höndum sér við sína virtustu háskóla og stofnanir.
"Bill OReilley, þá frægasti sjónvarpsmaður Fox-stöðvarinnar, sagði í viðtali við Trump forseta í febrúar leið: Pútín er morðingi.Forsetinn svaraði: Það er fullt af morðingjum. Við erum með fullt af morðingjum. Heldurðu að landið okkar sé svona saklaust?
Það er saga til næsta bæjar að forseti Bandaríkjanna leggi land sitt að jöfnu við Rússland sem réttarríki.
Morð á blaðamönnum eru sjaldgæf í Bandaríkjunum sem betur fer en algeng í Rússlandi.Á vefsetri samtaka blaðamanna í New York, Committee to Protect Journalists, kemur fram að frá 1992 hafa 38 blaðamenn verið myrtir í Rússlandi á móti fjórum í Bandaríkjunum eins og ég lýsti á þessum stað fyrir viku. Bandarískir blaðamenn þurfa samt að fara varlega.
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Jane Mayer birti langa ritgerð í New Yorker og síðan bók, Dark Money, um bræður tvo, Charles og David Koch, sem hafa látið mjög að sér kveða í undirheimum bandarískra stjórnmála síðustu ár.. Mayer varð þess áskynja nokkru síðar að bræðurnir höfðu ráðið einkaspæjara til að leita að óþægilegum upplýsingum um hana eða ljúga ella einhverju á hana. Þeir reyndu að bera á hana ritstuld, en atlagan geigaði.
Kærleiksheimili í Kansas
Bræðurnir eru fjórir. Faðir þeirra, Fred Koch, rak olíuvinnslu, starfaði um hríð í Þýzkalandi þar sem hann hjálpaði til við að smyrja stríðsvél nasista enda hallur undir Hitler og var orðinn ríkastur allra í Kansas þegar hann dó 1967. Hann hafði lesið efnaverkfræði í Tækniháskólanum í Massachusetts (MIT). Það gerðu einnig yngstu synir hans þrír, Charles, David og William, en elzti bróðirinn Fredrick kaus heldur að lesa heimspeki o.fl. í Harvard. Yngri bræðurnir reyndu að fjárkúga hinn elzta með því að hóta því að segja föður þeirra að hann væri samkynhneigður og þeir brutust inn hjá honum í leit að sönnunargögnum. Atlagan geigaði, en faðirinn skrifaði hann samt út úr erfðaskránni og gerði heldur sérstaklega upp við hann þar eð hann taldi hann þjófóttan, en Fredrick sagðist sjálfur hvorki vera samkynhneigður né þjófur.
Eftir lát föðurins hófust eitruð málaferli milli bræðranna þar sem Fredrick og William töldu Charles og David hafa svikið sig um stórfé þegar síðar nefndu keyptu fyrr nefndu út úr fjölskyldufyrirtækinu á hóflegu verði svo notað sé orðalag Ríkisendurskoð- unar um einkavæðingu bankanna hér heima. Bræðurnir töluðust ekki við eftir það nema Charles og David eru enn mestu mátar. Þeir fengu fleira en efnaverkfræði í vöggugjöf frá föður sínum, t.d. viðskiptavit og stjórnmálaskoðanir. (Móðir þeirra er sjaldan nefnd til sögunnar; þeir áttu móður.)
Bræðurnir gáfu sig að öfgasamtökum yzt á hægri væng stjórnmálanna (skattlagning er þjófnaður, eftirlit er ofbeldi, umhverfisvernd er óþarfi, loftslag fer ekki hlýnandi o.s.frv.).David var m.a.s. varaforsetaframbjóðandi Frjálshyggjuflokksins 1980, en lítið fylgi flokksins sannfærði bræðurna um að vænlegra væri og hampaminna að kaupa stjórnmálamenn í kippum en reyna að sannfæra kjósendur. Þeir hafa æ síðan ausið ómældu fé í frambjóðendur Repúblikanaflokksins o.fl.
Tæring í boði Hæstaréttar
Þegar Barack Obama var kjörinn forseti Bandaríkjanna 2008 settu Koch-bræður kosningavél sína á fulla ferð ásamt fáeinum öðrum auðmönnum sem margir höfðu komizt í kast við lögin, einkum umhverfisverndarlög. Þannig varð teboðshreyfingin til, hreyfing sem hristi rækilega upp í Repúblikanaflokknum með því að ýta til hliðar hófsömum flokksmönnum til að rýma fyrir frumskógaíhaldi. Baráttan skilaði sigri repúblikana í kosningunni til fulltrúadeildar þingsins 2010 og til beggja þingdeilda 2014 og hafa þeir haft meiri hluta í báðum deildum frá 2014. Kochbræður studdu þó ekki Donald Trump í forsetakjörinu 2016.
Straumhvörfin 2010 eiga sér þá einföldu skýringu að það ár létti Hæstiréttur Bandaríkjanna öllum hömlum af fjárframlögum til stjórnmálastarfsemi á þeirri forsendu að fyrri hömlur feli í sér málfrelsisskerðingu. Þessi dómur gerði fámennum hópi auðmanna kleift að taka sér boðvald yfir auknum fjölda þingmanna. Þess vegna munaði ekki nema hársbreidd að þingið ákvæði um daginn að svipta 24 milljónir Bandaríkjamanna nýfengnum heilbrigðistryggingum til að fjármagna skattalækkun handa auðmönnum.
Þetta skýrir að hluta hvers vegna Bandaríkin teljast ekki lengur vera óskorað lýðræðisríki á viðtekna kvarða stjórnmálafræðinga.Æ fleiri fræðimenn lýsa Bandaríkjunum sem fáræðisríki (e. oligarchy) frekar en lýðræðisríki. Fæstir telja þó rétt að kalla Bandaríkin þjófræðisríki (e. kleptocracy) líkt og t.d. Rússland og ýmis önnur lönd þar sem harðdrægir hagsmunaseggir hafa sölsað undir sig náttúruauðlindir eða önnur hlunnindi á kostnað almennings.
Fyrrverandi siðameistari Hvíta hússins hefur þó nýlega varað við hættunni á að sú nafngift kunni að festast við Bandaríkin. Heilbrigð fjármögnun stjórnmálastarfsemi þarf að lúta skýrum takmörkunum og ströngu eftirliti.
Hömlulaus fjárframlög til stjórnmálamanna og flokka grafa undan lýðræði og ógna velferð almennings eins og reynsla Bandaríkjanna vitnar um."
Prófessorinn heldur þvi fram að búið sé að kaupa upp lýðræðið í Bandaríkjunum af þjófagengjum á borð við Koch-arana af því að heimilt sé að styrkja stjórnmálahreyfingar með fé að vild. Einmitt andstæða þesss sem hér er gert þar sem stjórnmálaspillingin er ríkisvædd. En skríbentar eins og prófessorinn sækja sér fé í hendur auðmanna til að skrifa róg um pólitíska andstæðinga, erlend ríki og löglega kjörin yfirvöld. Nema þegar kemur að flokki fjármálaráðherra, þá eru reglur um framlög hafðar sem hentar og framlög frá mönnnum með fortíð eins og prófessorinn vammlausi finnst slæm í öðrum ríkjum verið talin í góðu lagi. En Þorvaldur lætur slíkt afskiptalaust væntanlega þar sem Sjáflstæðisflokkurinn kemur þar ekki við sögu.
Ekki hefur álit mitt á prófessornum með löngu lofgreinina um sjálfan sig (https://notendur.hi.is/gylfason/shortcv.html) aukist við þennan lestur.
Hvað gengur manni annars til að skrifa svona um vinaþjóð Íslendnga?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ég veit ekkert um þessa Koch bræður, en get alveg sagt að um leið og madurinn segir "Nasistar" og "Hitler" ... þá er hægt að kasta afgangnum út um gluggann.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 24.8.2017 kl. 10:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.