Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerir Sue Ellen næst?

mun J.R. jafna um Clive?

Katrín Jakobs skrifar í Fréttó um framtíðina í stjórnmálunum:

"Heilbrigðisráðherra var á vorþingi þráspurður um það hvert hann hygðist stefna hvað varðar einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Ráðherrann margítrekaði að ekki stæði til að fara í neinar grundvallarbreytingar á heilbrigðiskerfinu eða að auka stórkostlega við einkarekstur í kerfinu. Nú lítur hins vegar út fyrir að flokkur heilbrigðisráðherra, Björt framtíð, sem talaði mjög fyrir kerfisbreytingum á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar fyrir kosningar, ætli sér fyrst og fremst kerfisbreytingar í átt til aukins einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu.

Aðrar kerfisbreytingar hafa gufað upp. Þannig bárust í síðustu viku fréttir af því að Sjúkratryggingar Íslands hygðust semja við Klíníkina við Ármúlann um brjóstnám og brjóstauppbyggingu á konum sem greinast með BRCA-genið.

Hingað til hafa þessar aðgerðir sem krefjast innlagnar og kalla á sérhæfða þjónustu eingöngu verið gerðar á Landspítalanum en Klíníkin hefur lengi sóst eftir samningi um þessar aðgerðir eins og fjallað hefur verið um á opinberum vettvangi og vísað til langra biðlista á spítalanum. Því var hafnað af síðasta heilbrigðisráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni. En nú er ákveðið á vakt Bjartrar framtíðar að semja við einkaaðila og opna þar með á enn frekari einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni.

Fram undan eru fleiri stórar ákvarðanir. Hvað mun heilbrigðisráðherra gera þegar kemur að ákvörðun um rekstur sjúkrahótels sem nú er verið að reisa á lóð Landspítalans við Hringbraut?

Mun hann fela Landspítalanum rekstur þess eins og spítalinn hefur sjálfur óskað eftir?

Eða bjóða reksturinn út til að færa enn stærri hluta heilbrigðiskerfisins í hendur einkaaðila sem greiða sér svo arð úr rekstrinum?

Sveltistefna gagnvart almannaþjónustu virðist vera helsta lím þessarar ríkisstjórnar. Í stað þess að fylgja vilja meirihluta landsmanna sem vill sjá meira fé renna til heilbrigðiskerfisins og enn fremur að það sé félagslega rekið á að viðhalda sveltistefnunni sem birtist kýrskýrt í nýsamþykktri fimm ára fjármálaáætlun og standa fyrir enn frekari einkavæðingu á almannaþjónustu.

Um það snýst þessi ríkisstjórn, þetta eru einu kerfisbreytingarnar sem hún stendur fyrir. Það þarf líklega ekki að leita annarra skýringa á því hvers vegna hún er að loknu hálfu ári enn óvinsælli en sjálfur Donald Trump."

Hvað gerir Michael og Miss Elly næst?

Skyldi þetta vera dæmi um framtíðarsýnir V.G.? Er þetta allt sem formaður V.G. hefur til  málanna að leggja? Getraunastíll um skuggaleg áform ríkisstjórnarinnar? Er þetta stefnan? Eru þetta tillögurnar? Eiga kjósendur að meta þetta sem gott og gilt?

Enda þorði Katrín (mik-eða lit-) la ekki að taka þátt í ríkisstjórn þegar henni bauðst það. Hún vill heldur stunda svona svona skeytasendingar í  Dallas-stíl á síðum Kratamálgagnsins. Þar vildi hún jú helst vera með Steingrími J. á sínum tíma. Man einhver ráðherratíð hennar eða helstu afrek? 

Eru ekki margir sem sakna hennar Sue Ellen og vildu vita hvað hún gerir næst?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 3419710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband