Leita í fréttum mbl.is

Siðferði Loga

formanns Samfylkingarinnar er eiginlega erfitt að skilja án útskýringa.

Maður sem hafði mikinn atbeina að því að flæma Snorra Óskarsson úr kennarastarfi á Akureyri fyrir að fara með of mikið Guðsorð boðar nú að sýna samúð sína og kristilegt innræti á Alþingi með frumvarpi um að veita tveimur börnum ríkisborgararétt.

Hann getur þess ekki að þarna er um að ræða 6 manns því ekki eru börnin ein á ferð þó að Logi geti þess ekki. Þau eru aðeins þriðjungur af þeim ríkisborgararétti sem Logi ætlar að útdeila í trássi við lýðræðislega stjórnskipun landsins og réttarreglur, afnámi ráðherraskyldunnar og góðrar stjórnsýslu. 

Mætti hann ekki við þetta tækifæri fyrir hönd Góða Fólksins ekki rifja upp söguna af Faríseanum sem  þakkaði Guði fyrir að vera ekki eins og hinir? 

Er Logi þessi ekki manngæskutröll í atkvæðaleit fyrir vesalings flokkinn sinn en hugsanlega ekki alveg samkvæmur sjálfum sér siðferðislega þegar grannt er skoðað?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Logi ætlar ekki að útdeila neinu. Hann leggur til að Alþingi útdeili í samræmi við lýðræðislega stjórnskipun landsins, réttarreglur og góða stjórnsýslu eins og oft hefur verið gert áður.

Þó lög hafi ekki heimilað brottrekstur Snorra þá var það siðferðilega rétt aðgerð. Okkur ber að vernda börnin þegar lögin vernda þann sem þeim er skaðlegur. Lög og siðferði fara ekki ætíð saman.

Og það er furðulegt að sjá mann sem telur sig svo sérstakan og mikið öðruvísi en annað fólk að hann vill helst læsa landamærunum og einangra landið frá öðrum rifja upp söguna af Faríseanum.

Gústi (IP-tala skráð) 11.9.2017 kl. 15:57

2 identicon

Ísland er þegar með spilltustu löndum Evrópu. Viljum við einnig verða með siðspilltustu löndum Evrópu? En þá er stutt í "failed state."

Dr. Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 11.9.2017 kl. 16:48

3 identicon

Snjókornaliðið (góða fólkið) virðist vilja taka upp það nýja viðmið í stjórnsýslunni að horft sé til þess við afgreiðslu mála hvort fólk sé huggulegt og/eða þægilegt!

Þorsteinn Jónsson (IP-tala skráð) 11.9.2017 kl. 18:17

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Eitt er að veita hæli, annað að gefa ríkisborgararétt.  Ef til vill hefur Dr.Haukur rétt fyrir sér,nú þegar geðþóttaákvörðun yfirvalda virðist eiga að ráða frekar en landslög og alþjóðasamningar um jafnrétti án mismununar.

Kolbrún Hilmars, 11.9.2017 kl. 18:41

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Dr Haukur er þegar búinn að velja sér annað land til búsetu. Mér finnst að hann ætti að halda sig við það land og hætta að gera áætlanir um að drekkja íslenskum stjórnmálakonum. Láta okkur hin spilltu í friði og hætta þessum leiðindum á íslenskum bloggsíðum.

Gústi, ég virði dulnefni ekki viðlits né svara þeim.

Kolbrún, leggðu þig ekki niður við að velta þessum skrifum þessa Hauks fyrir þér, hann er búinn að gera svo rækilega grein fyrir sér og sinni forneskju að hann er ekki svara verður.

Halldór Jónsson, 11.9.2017 kl. 21:05

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Nú er hann orðinn doktor, er það eitthvað sem hann fékk úr kornflekspakka?

Það er skrítinn maður (þingmaður) sem finst allt í lagi að slátra allt að 6 mánaðar íslenskum börnum í móðurkviði, en svo á að setja ríkið fjárhagslega á hausinn og taka öll erlend börn, móður og eða faðir inn til landsins og greiða fleirri þúsund milljónir fyrir úr ríkissjóð.

Hvað með íslensku 8 þúsund fátæku börnin? Hvar er Logi í þeirri baráttu og neyð? Hvar er þingfrumvarp Loga þingmanns Akureyrarbæjar að hjálpa íslensku fátæku börnunum?

Ég skil ekkert í því að Akureyringar kjósi að Logi skuli vera fulltrúi þeirra á Alþingi Íslands. Ég, einhverra hluta vegna hélt að Akureyringar væru vel mentað fólk. Ég verð að viðurkenna að ég hef haft rangt fyrir mér öll þessi ár, því miður.

Hræsnarar, Samfylkingin er að reina að klóra í bakkann svo þau gufi ekki upp í skítalykt og nota börn til að hífa sig upp úr flórnum.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 12.9.2017 kl. 01:56

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Flugvirkjameistarinn er to the point eins og hans er von og vísa.Mér finnst framganga Loga bera vott um tvískinnung sem hann er að nota sínum flokki til framdráttar eins og Jóhann bendir á. Tvöfeldni í ljósi íslenskra fátækra barna. Stæðu þau ekki honum nær? Þau má áreiðanlega finna á Akureyri og víst er að Sborri Óskarsson myndi ekki ósnortinn af innlendum vandamálum sem vantar auðsýndan kærleika.

Halldór Jónsson, 12.9.2017 kl. 08:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 3419735

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband