Leita í fréttum mbl.is

Dónar

finnst mér þau vera í B.F. að láta það bara fréttast í gegn um netið að þeir hafi slitið stjórninni eða líklega svo bara því fréttirnar voru á reiki fram eftir nóttu.

Ef maður er að segja upp samningi þá finnst mér að menn eigi að koma beint fram augliti til auglitis. Eðlilegt hefði mér fundist að þeir hefðu fyrst beðið um ríkisstjórnarfund og tilkynnt forsætisráðherra þetta formlega. En það er hugsanlega  ekki endilega að búast við því að mannasiðir eða dómgreind yfirleitt séu ofarlega á blaði hjá þessu fólki ef litið er yfir söguna.

Ég heyrði lítillega á Sprengisand núna áðan. Mér skildist helst að formaður Samfylkingarinnar væri á móti starfstjórn að beiðni Forseta. Ekki óx arkitektinn Logi í áliti hjá mér við þær flaumósa ræður sem hann setti á við þetta tækifæri. Í raun gekk hann fram af mér enn einu sinni og ekki hef ég miklar væntingar um að "ættjörðin frelsaðist" við það að þessi maður tæki við stjórnartaumum í bráð eða lengd. Vonandi tekst kjósendum að ganga endanlega frá þessu tilgangslausa þrotabúi stjórmálaflokks og skiptastjórnandanum Loga í næstu kosningum.

Síðan er Þorsteinn Víglundsson spurður um það hvort þeir í Viðreisn geti frekar unnið með Bjarna Benediktssyni eftir tvo mánuði ef þeir geti það ekki núna?

Hann verður algerlega óðamála og fimbulfambar um nauðsyn þess að miðjan styrkist til að lækka vexti og afgreiða hælisleitendamál og svo rannsaka meira uppreisnaræru málin. Þá vita menn það til hvers á að kjósa Viðreisn.Meira af því sama, banna peningaseðla, stórhækka orkugjöldin eins og þeir börðu inn í fjárlögin með illu,  inngöngu í ESB og upptöku Evru. Þá vita menn það.

 

Katrín Jakobsdóttir er ögn varfærnari með hverjum hún muni vinna eftir kosningar og hverjum ekki. Hún hefur hinsvegar ferilskrá sína með sér og hún gefur ekki til kynna að hún sé yfirleitt stjórntækur stjórnmálamaður eins og síðasta stjórnarkreppa sannaði rækilega. Það þýðir ekki að kjósa VG ef menn vilja fá fram einhverja stöðugleikastjórn eftir kosningar í ljósi fyrri ferils Katrínar Jakobsdóttur.

Birgitta Jónsdóttir er tilbúin að ræða um 5 flokka samstarfið áfram að því til skildu að þeir fallist á hennar tillögur. Ef hún er núna sjálf að hætta þá er vandséð með framhald þjóðfundarhugmynda hennar á þeim grundvelli. Sem leiðir auðvitað ekki til neins frekar en fyrri fundur.

Óttar Proppé reynir að útkýra hvernig hann getur setið í starfsstjórn með Bjarna Benediktssyni en teksta það aumlega illa.

Sigurður Ingi formaður Framsóknar er opinn í alla enda eins og kolkrabbi og ekki varð ég neins vísari af því hvað hann hyggst fyrir. En kurteis maður og vænn er Sigurður á að hlýða og eiginlega fremur traustvekjandi miðað við þá fyrri viðmælendur.

Framundan eru mörg mál. Sjálfstæðismenn verða væntanlega á Landsfundi á kjördag en munu ekki láta það trufla sig ef að líkindum lætur.

En ef maður hugsar um kjaraviðræðurnar ofan á stjórnarmyndaunarviðræður, sérstaklega ef glundroðastjórnmál verða ofan á i kosningunum, þá hefði mér dottið í hug að fresta kjaraviðræðum í tiltekinn tíma með lagasetningu bara svo að þjóðin fái að átta sig á þeirri erfiðu stöðu sem hún er raunverulega í.

BF er hinsvegar í farsælu sveitarstjórnarsamstarfi í Kópavogi og Hafnarfirði og gott ef ekki víðar.Við hverju mega samstarfsflokkarnir í þessum bæjum búast? Að lesa það á Facebook að samstarfinu sé lokið?

Þeir sem stinga samstarfsaðila sinn í bakið , undartekningarlaust kratar eða vinstrimenn,í beinni útsendingu eða úr launsátri eru og verða alltaf pólitískir dónar í mínum augum.

Og má ekki alltaf búast við hverju sem er af dónum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vonandi fær þjóðin að kjósa í nóvember, en það er sem fyrr, að kjósendur eru í miklum vanda.  Það er búið að reyna til hlýtar fjórflokkinn og hækjur hans. Reynslan er afleit.T.d. hvaða kjósendur vilja stjórn sem    " Norræna velferðarstjórnin " var og reyndist ? Hvað vilja VG,Viðreysn,Samfylking og BF. Þessir flokkar vilja í Evrópusambandið, þeir vilja einnig opin landamæri Íslands.  Þessir flokkar tala um lagfæringu á kjörum aldraða, en hafa aldrei sýnt það í verki þegar þeir höfðu aðstæður til.°Þá er Sjálfstæðisflokkurinn eftir.  Hann villtist af braut sinni fyrir rúmlega áratug.  Hann er ekki lengur flokkur sem getur kennt sig við að styðja við stétt með stétt.  Flokkur sem virðir ekki niðurstöður prófkjörs og lyftir undir æsingarfólk til valda Flokkurinn hefur verið afstöðulítill og tvíræður  varðandi vermd landamæra Íslands.  Síðast sýndi hann sig sem ábyrgur fyrir nýútgefnum fjárlögum. Fjálög sem hefðu getað verið kóperuð frá  N Kóreu.    Í dag er Sjálfstæðisflokkurinn ístöðulítill og ónýtur stjórnmálaflokkur.

Vandi kjósenda er ekki síður nú frekar en áður fyrr. 

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 17.9.2017 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband