7.10.2017 | 12:24
Dúndurfundur með Bjarna
Bendiktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins var að enda í Kópavogi. Sjálfstæðishúsið var troðið og stóð fólk útá götu.
Bjarni flutti afburða góða ræðu og fór yfir stjórnmálaástandið. Hann rakti þá slæmu stöðu sem íslensk stjórnmal eru i með endurteknum kosningum sem nú fara fram á ársafmæli síðustu kosninga.
Íslendingum hefði aldrei gengið betur efnahagslega en núna og vekti árangur okkar athygli um víða veröld. Menn spyrðu, hvernig gátuð þið gert þetta að reisa ykkur svona hratt við eftir hrunið?. Kaupmáttur væri í hæstu hæðum og allir hagvísar væru upp á við. Einmitt þá töluðu vinstri flokkarnir um að hér væri allt í kalda koli. Öllu þyrfti hér að breyta, hækka skatta og álögur á atvinnulífið til að fá fé til að standa undir velferðarhugsjónum þeirra. Þeir gerðu sér ekki ljóst að efnahagslífið og verðmætasköpun þess væri forsenda þess að við gætum aukið velferðina. Þetta vildu þeir aldrei ræða. Í stað þess kysu þeir að vera með stjórnmálaumræðuna á lægsta plani og jafnvel persónulegu þegar Sjálfstæðisflokkurinn vildi hafa umræðuna uppi á málefnalega sviðinu.
Bjarni fékk fjölda fyrirspurna og svaraði bæði greitt og vel. Hann lýsti því hvernig vinstri flokkarnir hefðu sett fram slíkar hugleiðingar og skilyrði við stjórnarslitin að kosningar hefðu orðið eina úrræðið sem mögulegt var. Kosningarnar nú væru þeirra verk. Þeir hefðu sagt við sig, taktu bara Framsókn með og haltu áfram, engar kosningar viljum við. Ætlið þið þá að verja stjórnina spurði Bjarni? Neeeei, það gerum við ekki. Þú verður bara að redda þessu. En Viðreisn vill ekki vera með Framsókn. Þú verður bara að leysa þetta, við hjálpum þér ekki. En alls ekki viljum við samt kosningar, því veður þú að bjarga. En vegna þessarar afstöðu þeirra og ábyrgðarleysis, hvað var þá annað í stöðunni fyrir mig þegar svona gersamlegt ábyrgðarleysi gagnvart landi og þjóð er í boði?
Bjarni ræddi frítekjumarkið og lagði áherslu á þá skoðun sina að ef við aðeins hugsuðum um þá aldraða sem enn gætu unnið og hjálpuðum þeim þá værum við ekki að gera neitt fyrir þá verst settu sem ekkert hefðu fyrir sig að leggja nema strípaðar bætur. Við mættum ekki gleyma þeim. Við Sjálfstæðismenn mættum ekki gleyma því fólki, og nú benti Bjarni á 18 manna borð fyrir framan ræðupúltið og sagði, að á góðum degi ættum við kannski 6 manns af þeim sem þar sætu. Hinir myndu aldrei kjósa okkur. Ef illa gengi félli fjöldinn í kannski fjóra. Þarna væri verkefnið. Að tala við þetta fólk sem ekki kýs okkur eða er hikandi og getur ekki gert upp hug sinn fyrr en jafnvel í kjörklefanum.Fá það til að sjá ljósið og taka rökum. Bjarni notað borðin í salnum ennfremur til að að taka dæmi af mismunandi stöðu aldraðra hvað varðar bætur og lífeyri og gera mönnum ljóst vandamálin vegna þessa.
Bjarni lagði þannig áherslu á það við fundarmenn að þeir ræddu málefnin við aðra, maður á mann út í þjóðfélaginu. Töluðu um ástand mála á Íslandi sem væri sem allir sæju með besta móti meðan vinstri menn töluðu bara um að allt væri hér á versta veg. Þessu þyrfti að mótmæla. Hér hefði matarverð undanfarið verið að lækka í fyrsta sinn í sögunni og lífskjör þar með batnað sem aldrei fyrr. Við þyrftum að leysa húsnæðismál unga fólksins og vextir þyrftu að lækka. En forsenda þess væri að ríkisfjármálin væru í lagi eins og hefði tekist í hans tíð í ríkisstjórnum undanfarin ár.
Bjarni benti á að á flokksfundi VG hefðu verið miklu færri en voru bæði á þessum fundi og á fundinum á Hilton fyrir skömmu þar sem þúsund Sjálfstæðismanna hefðu verið mættir. Fjölmiðlar, og ekki síst RÚV, hefðu tíundað vandlega allt sem á fundi VG hefði verið sagt. En ekki aukatekið orð um hvað á okkar fundum hefði verið sagt og hér í dag væri heldur enginn fjölmiðill mættur.
Ekkert yrði því sagt opinberlega frá þessum fundi frekar en venjulega ef Sjálfstæðisflokkurinn ætti í hlut. Fjölmiðlar væru nær allir staddir vinstra megin við Sjálfstæðisflokkinn og ekki hvað síst RÚV.
Í lok fundar fór Bjarni yfir innflytjendamálin og þá sérstaklega hælisleitendamálin. Hann sagðist ekki sjá eftir einustu krónu sem færi í að leysa raunverulega neyð fólks sem ekki ætti í nein hús að venda og gæti með engu móti snúið til baka. Því fólki vildum við hjálpa og við hefðum til viðbótar sótt fólk í flóttamannabúðir til að reyna að bjarga því frá sárri neyð. En hingað væri aðstreymi fólks sem væri bara á höttunum eftir því að misnota gestrisni okkar með blekkingum sjálfu sér til framdráttar eingöngu. Fólk frá öruggum ríkjum rífi pappíra sína á landamærunum til að reyna að blekkja okkur og dylja þess hvert það væri í raun og veru. Fólk frá slíkum ríkjum gæti komið hingað á löglegan hátt ef það gæti fengið sér hér vinnu og með tíð og tíma unnið sér þegnrétt. En óheiðarlegt fólk sem væri bara að misnota okkur hefðum við ekkert við að gera.
Gerður var góður rómur að málflutningi Bjarna og var einhugur í flokksmönnum að duga sem best í kosningabaráttunni sem framundan væri.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:33 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
7.10.17. Jónas Kristjánsson. Losum okkur við bófana:
Sjálfstæðisflokkurinn er ábyrgðarlaus. Stjórnir með honum innanborðs gefast upp innan árs. Hann vinnur fyrst og fremst fyrir 1% þjóðarinnar, þá allra ríkustu. Stefnuskrár hans fyrir kosningar eru einskis virði. Þær eru tálbeita fyrir alla hina. Yfirleitt hafa þær virkað á heimskasta hluta þjóðarinnar, en nú er fylgið komið niður í 20%. Yfirgangur flokksins og frekja eru slík, að rest af fundarfólki verður málstola. Þetta er einfaldlega flokkur hinnar íslenzku mafíu, bófaflokkur landsins. Við komumst ekkert fram á veg fyrr en við losnum við hann úr stjórn, ráðum og nefndum og embættum og dómstólum. Hann er hreint eitur í pólitíkinni.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 7.10.2017 kl. 12:57
Það er einfaldlaga gömul regla fréttastofa ljósvakamiðlanna að landsfundir flokka og fundir miðstjórna og flokksráða hefa forgang. Það er engin leið, hvorki vegna tíma né mannafla, að fara að elta uppi almenna umræðufundi hjá einstökum flokksfélugum út um allt land.
Ómar Ragnarsson, 7.10.2017 kl. 15:43
Haukur. Þú mátt senda Jónasi þennan myndbút.
https://youtu.be/5hfYJsQAhl0
Jón Steinar Ragnarsson, 7.10.2017 kl. 15:53
Ég las stundum stundin.is mér til gamans en er alveg hættur því vegna reglulega ógeðslegra rætina persónulega níðskrifa sem þar birtust hjá Illuga og fl. Einhverja hluta vegna þá vitnar RUV nær daglega í þessi sóðaskrif Stundarinnar
Mín viðbrögð við þessum skrifum voru að skrá mig í Sjálfstæðisflokkinn
Grímur Kjartansson (IP-tala skráð) 7.10.2017 kl. 16:40
Dr.Haukur
geturðu ekki séð þessa síðu í friði með þínar dúmmvittigheder.Það hefur enginn áhuga að lesa þetta þér um islenska pólitík og hún kemur þér heldur ekki við þar sem þú býrð erlendis
Halldór Jónsson, 7.10.2017 kl. 16:53
Bravó Grímur, þetta sem Ómar segir er yfirklór yfir þá stefnu RÚV að sniðganga SSjallaflokkinn en lepja upp allt sem kemur frá vinstrinu
Halldór Jónsson, 7.10.2017 kl. 16:54
Eg verð að játa að ég sá Bjarna Ben í mannlegra samhengi en nokkru sinni fyrr þegar ég las viðtal við hann fyrir skömmu um hvað stjórnmál skemmi ego manns. Væru þannig í raun mannskemmandi.
Elle_, 7.10.2017 kl. 17:07
Ómar er ekki enn á hlutleysislínunni.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.10.2017 kl. 17:34
Halldór, svo var þetta satt hjá þér með kaldakolið. Það var ekki neitt kaldakol.
Elle_, 7.10.2017 kl. 18:30
Hef í gegnum tíðina verið dyggur stuðningsmaður sjálfstæðisflokksins. Frá mínum sjónarhóli er aðeins einn maður sem virðist vinna af heilindum fyrir fólkið í landinu og þ.e. SDG.
Sennilega hefur enginn einstaklingur gert eins mikið fyrir þessa þjóð á eins stuttum tíma eins og SDG.
Ef sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram með þessa vinstri stefnu þá bara minnkar fylgið.
Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 7.10.2017 kl. 21:42
Ég nota kerfið maður á mann,það hefur reynst mér best.
Helga Kristjánsdóttir, 7.10.2017 kl. 22:01
Kristinn, þeir SDG og Bjarni unnu nú vel saman.
Helga, þetta er okkar eini sjans gegn ofurveldi og áróðri RÚV og vinstrimanna
Halldór Jónsson, 8.10.2017 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.