Leita í fréttum mbl.is

Dr.Haukur Kristinsson

er lærdómsmaður íslenskur í útlöndum án þess að mér sé kunnugt um hans sérsvið. Hann hefur miklar skoðanir á íslenskum stjórnmálum og fer um víðan völl sem virkur í athugasemdum á blogginu mínu af einhverjum ástæðum.

Sem sýnishorn af skrifum hans vil ég tilfæra smá stúf úr innsendri athugasemd hans í dag. Hann er áður búinn að stinga upp á því að setja íslenskar hægrikonur í poka og drekkja þeim á Þingvöllum, að því að séð varð í fullri alvöru.

Í dag skrifar Dr. Haukur:

Sjálfstæðisflokkurinn er ábyrgðarlaus. Stjórnir með honum innanborðs gefast upp innan árs. Hann vinnur fyrst og fremst fyrir 1% þjóðarinnar, þá allra ríkustu. Stefnuskrár hans fyrir kosningar eru einskis virði. Þær eru tálbeita fyrir alla hina. Yfirleitt hafa þær virkað á heimskasta hluta þjóðarinnar, en nú er fylgið komið niður í  20%. Yfirgangur flokksins og frekja eru slík, að rest af fundarfólki verður málstola. Þetta er einfaldlega flokkur hinnar íslenzku mafíu, bófaflokkur landsins. Við komumst ekkert fram á veg fyrr en við losnum við hann úr stjórn, ráðum og nefndum og embættum og dómstólum. Hann er hreint eitur í pólitíkinni.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 7.10.2017 kl. 12:57"

Það má segja að þessi skrif séu nokkuð dæmigerð um þann stíl sem ýmsir tileinka sér á netinu. Sumir kalla svona fólk netsóða. 

Ég vil aðeins tilfæra þetta dæmi sem sýnir við hvað Sjálfstæðisflokkurinn er að fást í sinni kosningabaráttu. Það er ekki verið að ræða málefni eða segja kost eða löst á viðfangsefnum samfélagsins heldur eru fullyrðingar settar fram sem sannleikur og menn eiga þá væntanlega að draga sínar ályktanir af því.

Dr. Haukur Kristinsson hefur ágætlega gert grein fyrir sér og sínum skoðunum sem andstæðingur Sjálfstæðisflokksins í dag og deilt áhyggjum sínum af þjóðinni með henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Er Jónas Kristjánsson Haukur Kristinsson?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.10.2017 kl. 19:31

2 Smámynd: Elle_

 Ætli Haukur eða Jónas hafi aldrei heyrt af samfó og vanreisn?

Elle_, 7.10.2017 kl. 20:28

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Heimir bendi rá að upprunalegur höfundur textans sæe Jónas Kristjánsson. Ekki er sá gamli af baki dottinn þar sem þessi texti er líka á hans bloggi:"

Einn er skattamunur á Sjálfstæðisflokknum og vinstri flokkum. Sá fyrstnefndi hækkar skatta á þá, sem minnst mega sín, samanber fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar. Þannig hefur það ætíð verið í stjórnartíð bófaflokksins. Vinstri flokkar hækka hins vegar skatta á þá ríkustu, samanber auðlegðarskatt og auðlindaskatt. Baráttan á alþingi snýst annars vegar um þessa stéttaskiptingu og hins vegar um eitrun ríkiskerfisins. Sjálfstæðisflokkurinn hleður sínu liði á alla pósta ríkisins og býr til nýja. Hann umgengst lög og reglur af fullkomnu ábyrgðarleysi. Hann drepur alla flokka, sem hann notar sem hækjur. Hreint eitur."

Jónas var stundum skemmtilegur í gamla daga, einkum áður en hann varð að hætta að drekka. Síðan sýnist manni leiðin hafa legið niður á við ef nokkuð er. En hann er enn leiðtogi manna eins og dr,Hauks Kristinssonar, hvað sem líður áfengismálum hans

Halldór Jónsson, 7.10.2017 kl. 20:46

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég man ekki eftir að Jonas hafi nokkurntíma sagt nokkuð uppbyggilegt. Hann hefur eytt allri æfi sinni í niðurrif og fúllyndi, hvort sem um er að ræða mat eða pólitík. 

Ég hef enga trú á því að nokkur heilvita maður taki mark á tourette útbrotum hans.

Hann á ser varla jafningja nema þá helst Illuga Jökulsson og Gunnar Smára, nú og auðvitað Dr. Hauk.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.10.2017 kl. 20:58

5 Smámynd: Már Elíson

Þó að ég sé ekki stórvinur "Dr" Hauks og finnst mörg skrif hans vera rugl eitt, þvættingur og skætingur á köflum, þá er ég harðánægður með þessi skrif hans, sem eru ekki bara hárrétt úttekt á Sjálfstæðisflokki BB og hyski hans, heldur virðast koma all-illa við kaun meðfylgjenda flokks þessa hér á korkinum. - Og eins fyrtist Halldór sjálfur við að heyra sannleikann um þessa kumpána sem ég hélt að hann væri að fjarlægjast með aldrinum með aukinni víðsýni. - Auðvitað er nú svo að sannleikurinn er oft sár og svíður þeim eðlilega sem hlandblautir eru í trú sinni. - Góðar stundir.

Már Elíson, 7.10.2017 kl. 22:44

6 identicon

Sæll Halldór.

Ég er ekki handhafi sannleikans
en það er skoðun mín að kosningarnar nú
skipti íslenska þjóð meira máli nú en
nokkru sinni fyrr ekki sízt vegna þess
að við höfum villst af leið og sundrungaröfl
hafa nýtt sér ástandið til hins ýtrasta.

Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn
eiga undir því að afl þeirra verði sem
mest að loknum kosningum og geti myndað
stjórn að loknum kosningum.

Við þurfum jákvætt afl framar öllu öðru
sem byggir upp en hefur ekki þá stefnu eina
að rífa allt niður sem flestum mönnum er heilagt.

Skýr stefna og afdráttarlaus í útlendingamálum
verður að líta dagsins ljós, - og stefna okkar
getur ekki verið skýrari en sú að stefna frá
myrkri til ljóss!

Menn ættu að heita sér því að innsigla dyr
RÚV mánuði síðar og gera þær breytingar á
þeirri stofnun sem bráðnauðsynlegar eru
þannig að um allt samfélagið leiki andi
fagnaðar, uppbyggingar og þeirrar jákvæðni
og sáttar sem Íslendingum sæmir
í aðdraganda 100 ára afmælis Fullveldisins,
og þeirrar vonar og þeirra heitstrenginga er því
fylgdi að okkur auðnaðist að skila þessu fjöreggi 
sem okkur var trúað fyrir til óborinna kynslóða.

Tækifærið er núna, - Íslandi allt!

Húsari. (IP-tala skráð) 7.10.2017 kl. 23:48

7 Smámynd: Halldór Jónsson

HúsariÞó ég sé eki aðdáandi manna sem skrifa undir dulnefnum og svari þeim litt, þá get ég ekki annað en lýst anægu minni með þetta innlegg þitt.Því miður er það næsta ólíkleg niðurstaða að þessir aðilar sem þú nefnir fái nægilegt fylgi. Andróðurinn eins og skeyti Jónasar og Dr.Hauks bera með sér er líklega svo sterkur að því verður ekki við snúið.

Menn kjósa brosið á Katrínu Jakobsdóttur án þess að hafa hugmyndu um hvert það muni að endingu leiða efnahagslifið og hag einstaklinganna.Ég held að hún sé ekki mjög sjálfstæð í skoðunum og Svandís og Steingrímur muni bukka hana í flestum málum. Það eru engir veltitímar framundan að því að ég býst við og að dr.Haukur og Jónas muni hafa betur í áróðursstríði við svona æmtara og skræmtara eins og mig.

Bjarni hefur opnað á skýra stefnu í útlendingamálum.Ef hann kæmi henni til skila til þjóðarinnar þannig að skildist þá er von að hann gæti rétt skipið eitthvað. En það er óneitanlega nokkuð í sjó sigið í seinni tíð þar sem stöðug skothríðin um aukatriðin hafa komið leka að fleyinu, þó með alröngu sé.

Halldór Jónsson, 8.10.2017 kl. 09:20

8 Smámynd: Halldór Jónsson

;ár. þú bregst ekki áliti mínu og reynslu af þér.Þú ert verðurgur bandamaður Dr.Hauks og Jónasar.

Halldór Jónsson, 8.10.2017 kl. 09:23

9 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Már

Fast er kastað úr stórkostlegri glerhöll þinni. 

Þú hefur ekki, við þessi skattyrði þín, minnst orða Frelsarans: "Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana"

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.10.2017 kl. 03:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband