Leita í fréttum mbl.is

Endurkjósa afglapa ?

eins og Steingrím Jóhann Sigfússon  sem enn einu sinni býður sig fram til ráðsmennsku?

Björn Bjarnason rifjar upp feril mannsins é frábærri grein í Morgunblaðinu í dag:

"Í umræðum um hagsmunamál þjóðarinnar út á við eins og útlendingamál verða menn að ganga fram af festu og alvöru. Gera verður mun á lögmætum flóttamönnum og ólögmætum hælisleitendum sem koma hingað til að njóta félagslegrar að- stoðar á meðan tilhæfulausar umsóknir þeirra eru afgreiddar.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sagði sl. vor að gert hefði verið „áhlaup“ á landið með straumi hælisleitenda frá Albaníu og Makedóníu, öruggum Evrópulöndum. Hún sagði að við þessu yrði að bregðast. Síðan bættust Georgíumenn í þennan hóp. Megi marka nýjustu tölur um tilhæfulausar hælisumsóknir hefur þeim fækkað. Skýr pólitísk afstaða skiptir máli á þessu sviði eins og öðrum.

Með vinstristjórn breytast þessi pólitísku skilaboð til umheimsins megi marka orð frambjóðenda vinstri-grænna (VG), Samfylkingarinnar og Pírata. Útlendingamálin eru með öðrum orðum málaflokkur sem kjósendur ættu að hafa í huga við kjörborðið. Smyglarar á fólki hvort heldur í lögmætum eða ólögmætum tilgangi líta yfir sviðið og velja þann stað þar sem þröskuldurinn er lægstur. Hann hefur hvarvetna verið hækkaður í Evrópu. Hér vilja vinstriframbjóðendur lækka þröskuldinn enn frekar. Verði íslenski þröskuldurinn ekki hækkaður eykur það vanda og kostnað skattgreiðenda. Þjóðir hafa lögmætra hagsmuna að gæta. Beri þjóð ekki gæfu til að kjósa þá til forystu sem vilja taka gæslu þeirra að sér lendir hún í ógöngum. Íslensk stjórnvöld verða að átta sig á hvert stefnir í alþjóðamálum og gæta þjóð- arhagsmuna í samræmi við það.

Feilspor í Icesave-málinu

Galdurinn sem tryggir velgengni í utanríkismálum er að greina rétt hvernig hagsmunum þjóðarinnar er best borgið við ríkjandi aðstæður án þess að missa sjónar á gildi þess að eiga samstöðu með friðsömum, lýðræðislegum nágrannaríkjum.

Feilspor í utanríkismálum eru dýrkeypt. Slíkt spor var stigið með gerð Icesave-samninganna vorið 2009 undir forystu Svavars Gestssonar, Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur, ráðamanna VG og Samfylkingar. Niðurstaðan í höndum þessa fólks var gegn hagsmunum þjóðarinnar. Stjórnvöld höfðu ekki þrek til að standa gegn kröfum Breta og Hollendinga.

Saga þessa sorglega máls sýnir hvaða víti ber að varast. Vinstriflokkarnir sömdu, þjóðin hafnaði samningum þeirra og EFTAdómstóllinn í Luxemborg tryggði fullan sigur Íslendinga. Carl Baudenbacher, forseti EFTA-dómstólsins, var hér á landi fyrir rúmri viku og ræddi blaðamaður Morgunblaðsins við hann. Í samtalinu sagði: „Spurður hvað hann vilji segja um Icesavedeiluna, nú þegar hægt er að líta um öxl og gera upp málið, segir Baudenbacher Icesavemálið sönnun þess að jafnvel þótt ESB sé ósátt við dóma EFTA-dómstólsins muni sambandið varla grípa til aðgerða gagnvart EFTA. „Sá ótti var alltaf fyrir hendi að ef ESB myndi ekki una niðurstöðunni myndi það grípa til aðgerða gegn EFTA.““ Í þessum orðum felst að aðildin að EFTA og dómstóllinn, sem er hluti af henni, eru Íslandi mikilvægt skjól gagnvart ESB.

Innan ESB hefðu örlög okkar líklega orðið sömu og Grikkja sem settir voru í efnahagslega spennitreyju til að bjarga erlendum bönkum.

EES-samningurinn og Brexit

Í Icesave-málinu fékkst staðfesting á því að ESB sætti sig við niðurstöðu EFTAdómstólsins þótt tvö ESB-ríki teldu mikið í húfi fyrir sig. Þetta kann að skipta miklu fyrir íslenska hagsmuni á komandi óvissuárum vegna úrsagnar Breta úr ESB – Brexit.

Varðstaða um EES-samninginn er lykilatriði við gæslu íslenskra hagsmuna. Tveggja ára úrsagnarfrestur Breta gagnvart ESB rennur, samkvæmt sáttmála ESB, út í mars 2019. Breska stjórnin hefur að auki farið fram á tveggja ára umþóttunartíma, það er fram á vor 2021. Sama ár lýkur fjögurra ára kjörtímabili sem hefst hér með kosningunum 28. október. Í komandi kosningum velja kjósendur þingmenn til setu á kjörtímabili þegar reynir mjög á forystu og framkvæmd í samskiptum við ráðamenn í London. Sagan kennir að telji Bretar brýna eigin hagsmuni í húfi hika þeir ekki við að beita sér gegn okkur í einni mynd eða annarri – aðeins í eigin þágu.

Ný ESB-umsókn

Í tíð vinstristjórnarinnar á árunum 2009 til 2013 sömdu menn ekki aðeins af sér í Icesavedeilunni heldur var aðildarumsókn að ESB klúðrað. Umsóknin reyndist feigðarflan, til þess eins fallin að skapa óróa og upplausn í íslenskum stjórnmálum. Samfylkingin stjórnaði ferðinni og vinstri-grænir voru viljalaust verkfæri þeirra.

Kannanir sýna miklar líkur á að þriggja flokka vinstristjórn VG, Samfylkingar og Pírata ýti nýrri ESB-aðildarumsókn úr vör. Kannanir sýna einnig að 87% kjósenda Samfylkingarinnar vilja taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið; 83% kjósenda Pírata eru hlynnt slíkum viðræðum og 45% kjósenda VG vilja aðildarviðræður við sambandið en 34% eru á móti því. Setjist fulltrúar þessara flokka í ríkisstjórn verður aðild að ESB meðal stefnumála hennar hvort sem þeir viðurkenna það fyrir kosningar eða ekki. Þjóðinni verður kastað út í átök um tilgangslaust mál hvort sem litið er á hagsmuni þjóðarinnar eða stöðuna innan ESB. Bretar verða í úrsagnarferli allt næsta kjörtímabil. Að vinna að aðild Íslands að ESB samhliða varðstöðu um tvíhliða samskipti við Breta er uppskrift að vandræðum.

NATO-aðildin

Ráðstefnan Hringborð norðursins hefur verið haldin fimm sinnum í Hörpu. Í ár var í fyrsta sinn efnt til sérstakrar hliðarráðstefnu um öryggismál í tengslum við hringborðið. Öryggismálastofnun í München (MSC) efndi til þessarar hliðarráðstefnu vegna breyttra aðstæðna á norðurslóðum. Münchenstofnunin nýtur mikillar virðingar og er vettvangur áhrifamanna frá öllum heimshlutum. NATO-ríkin stefna að því að auka eftirlit með kafbátaferðum á hafsvæðunum umhverfis Ísland, GIUK-hliðið dregur að nýju að sér hernaðarlega athygli. Tengslin milli gæslu öryggishagsmuna á Norður-Atlantshafi og fyrir botni Eystrasalts skipta meira máli en áður vegna aðildar Eystrasaltsríkjanna að NATO og öryggishagsmuna Finna og Svía. Á næsta kjörtímabili reynir á íslensk stjórnvöld í þessu tilliti, að þau taki ákvarðanir sem þjóna hagsmunum þjóðarinnar og friðsamra nágranna hennar. Innan Samfylkingarinnar mega þeir sín minna en áður sem eru heilsteyptir í stuðningi sínum við NATO. Innan VG er andstaða við NATO-aðild og Píratar eru óþekkt stærð í öryggismálum með Edward Snowden sem bandamann í Moskvu. Utanríkismál skipta höfuðmáli í kosningum.

Sé litið til stefnunnar í útlendingamálum, afstöðunnar til ESB og stefnunnar í öryggismálum hafa kjósendur þann kost að kjósa yfir sig óvissu og upplausn. Þeir geta kosið vinstriflokkana sem fórnuðu hagsmunum Íslendinga í Icesave-málinu og ætla að hefja ESB-feigðarflanið að nýju."

Enn er Steingrímur Jóhann sá sem völdin hefur í VG vegna ístöðu-og pólitísks hugmyndaleysis Katrínar Jakobsdóttur sem menn sáu birtast fyrir myndun síðustu ríkisstjórnar.Svandís Svavarsdóttir er náin samverkakona hans og dóttir afglapans Svavars Gestssonar sem gerði Icesave samninginn í umboði Steingríms Jóhanns af því að þeir nenntu ekki að hanga lengur yfir málinu sem Svavar orðaði svo fyrir þá báða. 

Þeir landsmenn sem  ætla að kjósa þetta lið yfir sig enn einu sinni eru haldnir alvarlegu minnis-og líklega líka dómgreindarleysi. Þetta fólk hefur ekkert breyst. Það getur ekki tekið rökrænar ákvarðanir í neinum flóknum málum heldur lætur stjórnast af flumbrugangi og hroðvirkni. Það getur ekki klárað hin þýðingarmestu mál daglegs lífs heldur byggir tilveru sína á upphrópunum,upphlaupum og popúlisma. 

Hamingjan forði Íslandi frá stjórnarathöfnum þessa fólks.

Endurkjósum ekki afglapa til æðstu valda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband