Leita í fréttum mbl.is

Óli Björn

er gegnumheill hægri maður.

Það er gaman að hlusta á hann tala við Pétur Gunnlaugsson á Sögu rétt áðan.

Þar lýsir Óli Björn því hvernig vinstri menn líta á allt aflafé manna sem eign ríkisins. Það er ríkið sem er að afsala sér tekjum ef það lækkar skattprósentuna. Allt í þeirra augum er eign ríkisins, það er ríkið sem er að afsala sér eign sinni ef það leyfir einstakling að halda einhverju eftir af afla sínum.Í Sovét var einstaklingurinn eign ríkisins frá vöggu til grafar og sú afstaða kommúnista hefur ekkert breyst.

Þeir Pétur fóru yfir það hverjar afleiðingarnar verða eftir laugardaginn ef Vinstri Grænir Samfylking og Píratar mynda stjórn, hugsanlega með aðstoð Framsóknar sem aldrei hefur talið eftir sér að leggja vinstri öflunum lið eins og Sigmundur Davíð sannaði rækilega þegar hann ætlaði að kaupa Framsókn stöðu 2009 en var sneyptur út sem óþarfur.(Sem hann átti skilið og veri skömm hans lengi uppi fyrir það viðvik.) Þeir voru sammála um að verðbólga og miklar skattahækkanir væru framundan og skerðing á lífskjörum alls almennings og draga myndi úr hagvexti.  Það má mikið vera ef margir taka ekki undir þær horfur.

Óli Björn er jafn dæmigerður hægri maður og Svandís Svavarsdóttir er dæmigerður kommúnisti (eða sósíalisti ef svo vill.) Ég hef ekki hugmynd um hvar á að staðsetja Katrínu Jakobsdóttir á hugsjónasviðinu enda er ég ekki viss um að hún ráði fyrir sér sjálf án þess að þar komi Steingrímur Jóhann, Svandís, Svavar eða Björn til sögunnar sem handhafar hugsjónanna. Þó kann ég að hafa rangt fyrir mér þegar mér fannst hún vera lítt afgerandi við stjórnarmyndunina síðustu en vera kann að áðurnefndir hugmyndafræðingar hafi yfirgengið hana með alþekktri ákveðni sinni.

En upp renna aðrir tímar á laugardaginn kemur. Forsetinn Guðni mun örugglega reyna að stýra atburðum í átt til vinstri stjórnar. Hvað sem verður mun það taka langan tíma að mynda þá margflokka stjórn hvort sem hún verður langlíf eða ekki. Allur sá tími verður að vísu gjaldfrestur á innheimtu Steingríms Jóhanns og Indriða en eftir hann tekur alvaran við og gjalddagi þjóðarinnar. Kannski tekst ekki stjórnarmyndun þó reynt hafi verið til útmánaða og þá neyðist Katrín til að tala við Bjarna og jafnvel Sigmund líka frekar en Sigurð Inga.

Allavega er ekki ástæða fyrir mig eða Óla Björn að líta til komandi tíma með bjartsýni.Herferð RÚV, Jóhannesar Kr.Kristjánssonar, Jón Reynissonar og Góða Fólksins  með aðstoð Vogunarsjóðanna og Smára McCarthy á hendur Bjarna Benediktssyni og Sjálfstæðisflokknum hefur tekist í miklum mæli og eiga þeir undir högg að sækja. Þó eru einhver teikn á lofti að mér finnst að fólk sé að einhverju leyti hætt að trúa öllu sem frá þessu liði kemur sem birtist í því að fylgi VG dalar meðan íhaldið fer aðeins upp á við.Trúverðugleiki Smára McCarthy sem alþjóðlegs fréttaritara kann að taaka enda.

Ef fólk vildi hugleiða það sem Óli Björn segir um mismuninn á hægri og vinstri, þá myndi hugsanlega margt breytast í þjóðlífinu, Ég held að það yrði til bóta en aðrir eru sjálfsagt á öndverðum meiði. Sjálfstæðisstefnan á hinsvegar erindi við þjóðina í mun meira mæli en sem er um þessar mundir vegna áróðursstöðunnar. Fólk vill í grunninn fá að ráða sér sjálft og búa að sínu í meira mæli en vinstra liðið á Alþingi heldur fram þó að flestir vilji láta einhvern annan borga en að borga sjálfur. Það er verkefni Sjálfstæðisflokksins á komandi tímum að koma því til skila betur en honum hefur tekist í seinni tíð.

Ég allavega trúi Óla Birni betur en vinstra liðinu hvað sem það segir annars um að einhver annar en ég eigi að borga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór: sem endranær / og aðrir gestir, þínir !

Óli Björn Kárason - er genumheill Miðju- moðs maður, eins og vinnubrögð hans í þinginu hafa sýnt okkur, sem flestra annarra samþingmanna hans, svo sem.

I. Ekki heyrist múkk í Óla Birni, um endurgreiðzlur ríkisins til okkar, á Bifreiðagjöldunum, sem við höfum verið rukkuð um landsmenn, frá Janúarbyrjun 1991 (áttu að vara, út árið 1990, skv. loforðaflaumi Þorsteins Pálssonar og Jóns Baldvins Hnanibalssonar:: Haustið 1988 / tóku gildi 1. Janúar 1989 eins: og menn muna).

II.Óli Björn gerir ekkert í: að stugga við Lífeyrissjóða Mafíunni í landinu, fremur en hitt liðið í þinginu / og ekki fyrirsjáanleg breyting, á því.

III. Hvorki hósti né stuna frá Óla Birni - varðandi sívaxandi straum Múhameðska skrælingja lýðsins, hingað til lands.

Gæti nefnt: fjölda annarra atriða Halldór, um sameiginlegt dugleysi Miðju liðsins, og vinstri fáránlinganna, fonvinur góður.

Með beztu kveðjum - engu að síður, af Suðurlandi /

     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.10.2017 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband