25.10.2017 | 08:44
Hvað á að skattleggja?
Óli Björn Kárason veltir fyrir sér hvernig eigi að ná inn meiri tekjum.
"Loforð stór og smá eru fylgifiskar kosninga. Kjósendur vega þau og meta, en á stundum er erfitt að átta sig á því hvernig efna á það sem lofað er. Við afgreiðslu fjármálaáætlunar 2018 til 2022 lögðu Vinstri grænir til að útgjöld yrðu hækkuð enn meira en lagt var til eða alls um 295 milljarða króna.
Hækka átti skatttekjur nokkuð meira eða um 334 milljarða. Vinstri grænir höfðu betur í samkeppninni við Samfylkinguna. Kjósendur hafa takmarkaðar upplýsingar um það hvernig vinstriflokkarnir ætla sér að auka tekjur ríkissjóðs um 50 til 75 milljarða króna á ári.
Þegar gengið er eftir svörum, er aðeins sagt að gera eigi skattkerfið réttlátara, ekki verði lagðir auknir skattar á almenning og að hliðrað verði til. J
ú, það verða lagðir á eignarskattar undir formerki auðlegðarskatts og sérstakur há- tekjuskattur verður innleiddur, að ógleymdum auðlindagjöldum ekki síst á sjávarútveg. Formaður Vinstri grænna hefur lýst því yfir að hátekjuskattur verði lagður á tekjur yfir tveimur milljónum króna á mánuði eða 25 milljónum á ári.
Í ítarlegri fréttaskýringu Markaðarins, fylgiriti Fréttablaðsins, í síðustu viku kom fram að aðeins 946 einstaklingar eru með slíkar tekjur. Ríkissjóður mun því ekki fitna mikið á því að hækka tekjuskatt á þennan hóp.
Nú geta menn deilt um það hvort 46,24% skattur sem leggst á tekjur yfir 835 þúsund krónum sé hár eða ekki. Í huga þess sem hér skrifar er gengið of langt af hálfu hins opinbera að taka í sinn hlut nær aðra hverja krónu sem launamaður vinnur sér inn. Skattheimtusinnar eru á öðru máli.
Hátekjuskattur skilar litlu
Hugmyndir um hátekjuskatt hljóta að fela í sér töluverða hækkun skattprósentunnar, en enginn veit hversu mikla.
Í áðurnefndri úttekt Markaðarins er bent á að 76% skattur á tekjur yfir tvær milljónir skili 2,7 milljörðum á ári, að því gefnu að skattbyrðin hafi engin áhrif á hegðun skattgreiðandans. Allir sjá að slíkur skattur er galinn og skilar aldrei reiknuðum tekjum. Margir tækju til fótanna, kæmu sér úr landi eða hættu einfaldlega að leggja jafn mikið á sig og áður.
En er hugsanlegt að hægt sé að ná allt að 10 milljörðum í aukinn tekjuskatt af einstaklingum. Að því gefnu að skattprósentan hefði engin áhrif á hegðun launafólks (sem hún gerir), þá þyrfti að leggja 60% tekjuskatt á allar tekjur yfir 883 þúsund krónum á mánuði. Í dag er efra þrep tekjuskatts (46,24%) af tekjum umfram 835 þúsund krónur, eins og áður segir.
En hvað um 20 milljarða tekjuauka ríkisins? Aftur skal gengið út frá að skattprósentan hafi ekki áhrif á hegðun og vilja fólks til að afla tekna. Þá yrði 60% skattur að leggjast á allar tekjur yfir 708 þúsund krónur. Öllum má því vera ljóst að ef það er ætlun vinstriflokkanna að sækja auknar tekjur í ríkissjóð af tekjuskatti einstaklinga verður það ekki gert nema með því að leggja þungar byrðar á millistéttina. Ástæðan er einföld: Það er mikill tekjujöfnuður hér á landi, ólíkt því sem haldið er fram í umræðum.
Endurvekja skal tímabundna skattinn
Vinstriflokkarnir virðast hugfangnir af að innleiða eignaskatta að nýju. Á stundum er skatturinn kallaður auðlegðarskattur en einnig stóreignaskattur.
Samfylking og Vinstri grænir innleiddu eignaskattinn í ríkisstjórn 2009 til 2013, en hétu því að skatturinn væri tímabundinn enda lagður á við erfiðar aðstæður í þjóðarbúinu.
Skatturinn lagðist þungt á eldra fólk í skuldlausum eignum sem margt hafði lágar tekjur, en einnig á sjálfstæða atvinnurekendur sem höfðu í mörg ár byggt upp sín fyrirtæki. En tímabundni skatturinn eignaskattur, auðlegðarskattur, stóreignaskattur, eða hvað vinstrimenn vilja kalla skattheimtuna skal endurvakinn.
Í áðurnefndri fréttaskýringu Markaðarins kom fram að 1-2% skattur á eignir yfir 150 milljónir króna gæti gefið ríkissjóði 5,1 til 10,2 milljarða króna. Hér skal látið liggja á milli hluta hvort álagning eignaskatts standist stjórnarskrárvarin réttindi einstaklinga. En til lengri tíma er líklegt að afleiðing skattlagningar af þessu tagi muni draga úr hvata til sparnaðar og eignamyndunar og um leið neyða marga til skuldsetningar til að standa undir skattheimtu af eignum. Þannig nagast hægt og bítandi af skattstofninum sjálfum.
Látum þá sjávarútveginn borga
Nú liggur fyrir að veiðigjöld á yfirstandandi fiskveiðiári munu nær tvö- faldast og verða yfir 10 milljarðar króna. Engu að síður vilja skattheimtuflokkarnir ganga enn lengra og auka álögur á sjávarútveg. Sjávar- útvegurinn hefur á undanförnum árum greitt næstum jafn mikið í veiðigjöld og í tekjuskatt. Til að réttlæta auknar álögur er oft bent á miklar arð- greiðslur sjávarútvegsfyrirtækja.
Engu skiptir þótt hlutfallslega greiði fyrirtæki í sjávarútvegi lægri arð en fyrirtæki í öðrum starfsgreinum. Á þetta hefur Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sjávarútvegsfyrirtækja, bent á en í grein sem birtist í Viðskiptablaðinu sagði hún meðal annars: Sú vísa er oft kveðin í aðdraganda kosninga að arðgreiðslur sjávar- útvegsfyrirtækja séu háar. Undantekningarlaust skortir hins vegar allan rökstuðning þessarar staðhæfingar. Þegar betur er að gáð er staðhæfingin nefnilega röng.
Samkvæmt opinberum upplýsingum frá Hagstofu Íslands liggur fyrir að arðgreiðslur sem hlutfall af hagnaði á árunum 2010- 2015 voru 21% í sjávarútvegi en 31% að jafnaði í atvinnulífinu. En það er talið til vinsælda fallið að lofa kjósendum að sækja auknar tekjur til sjávarútvegsfyrirtækja og enda virðist litlu skipta þótt það liggi fyrir að mörg þeirra munu ekki standa undir þyngri byrðum, allra síst minni og meðalstór fyrirtæki.
Skattahækkun lendir á almenningi
Það er alveg sama hvernig dæmið er reiknað. Fyrirheit skattheimtuflokkanna um 50-70 milljarða aukin útgjöld ríkissjóðs, ofan á það sem fyrirhugað hefur verið, verða ekki fjármögnuð með öðrum hætti en fara dýpra í vasa almennings.
Tekjuskattur tugþúsunda verður að hækka, eldri borgarar verða að taka á sig eignaskatta að nýju, bensín- og olíugjöld stórhækka, og varla verður hjá því komist að hækka virðisaukaskatt. Ekki er hægt að reikna með að tryggingagjald lækki þvert á móti. Þannig má lengi telja.
Kostirnir á laugardaginn eru því skýrir. Valið stendur annars vegar um aukna skattheimtu á almenning þótt öðru sé lofað og hins vegar um að nýta góða stöðu ríkissjóðs til að slaka á skattaklónni, lækka tekjuskatt einstaklinga og tryggingagjald líkt og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lofað.
En um leið styrkja innviði samfélagsins með því að nýta hluta af uppsöfnuðum hagnaði bankanna, sem eru í eigu okkar allra. Eftir Óla Björn Kárason » Ætli vinstriflokkarnir að sækja auknar tekjur í ríkissjóð af tekjuskatti verður það ekki gert nema með því að leggja þungar byrðar á millistéttina."
Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Nú liggur fyrir að Náttúrufræðingar ætla að hækka laun sín um 30 % sem opinberir starfsmenn sem nú hafa forystu í kjaramálum landsmanna. Allt kaup í landinu mun því hækka um þriðjung á næstunni. 70 % skattur á þá hækkun munskila ríkinu miklum fjárhæðum þannig að útgjaldaaukning ríkisins er betur tryggð en áður.
Skyldi nokkrum detta verðbólga í hug í þessu sambandi?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur bent á að verði tekjuskattsprósentan lækkuð úr 46.24 % í 35 % auki það ráðstöfunartekjur launþega um treikvart milljón. Án verðbólgu. Af hverju vill enginn fara þessa leið?
Logi Már formaður Samfylkingarinnar hefur lýst því sem hápunkti lífsins að greiða skatt. Þessi hærri upphæð sem er skattlögð með hærri prósentu þeim mun fleiri krónur koma inn af sköttum.
Þar í liggur sælan við að skattleggja
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.