Leita í fréttum mbl.is

Misskilningur með lífeyrissjóðina

er að þeir eigi að fjárfesta í útlöndum.

Okkur vantar fjárfestingu í innviðum uppá 1-200 milljarða á ári. Lífeyrissjóðirnir sjúga þetta fé út úr landinu og efnahagslífi þess á hverju ári. Eigi þeir að dæla þessu inn í erlend hagkerfi sem þeir hafa enga þekkingu til að meta, þá eru aðrar þjóðir með sogrör ofan í vasa hvers mann í landinu okkar. Þeir sem stjórna lífeyrissjóðunum eru engir sérfræðingar í neinu og hafa ekkert sérstakt vit á því hvað þeir eru að gera annað en að taka 17 milljarða árleg til að nota í sjálfa sig og umgerð utan um sjálfa sig. Fyrirkomulagið er gersamlega galið á stjórn lífeyrissjóðanna en þessir menn láta ekki völdin frá sér ótilneyddir.

Það á að loka öllu lífeyrissjóðunum og leggja þá inn í Seðlabankann og spara þannig rekstrarkostnaðinn sem allir sjá að er óhóflegur. Þar verði lífeyrisinneign hvers og eins geymd í merktri sér skúffu og verði erfanleg til löglegs maka. Seðlabankinn tryggir þeim ávöxtun, verðtryggingu innistæðu og einhverja smá vexti, kannski,  ofan á það eða jafnvel enga eftir árferði sem er í sjálfu sér sanngjarnt á móti því að losna við tapsáhættuna af afglöpunum sem sem verða annars óhjákvæmilega hjá þeim sem stjórna lífeyrissjóðunum í dag.

Þarna sparast strax einhverjir margir milljarðar sem er í gildi ávöxtunar ofan á iðgjöldin í dag.

Ríkið á Seðlabankann og þarf þá ekki að greiða nema  fáa milljarða í vexti ofan á inngreiðslur lífeyrisgjalda. Og hegða sér skynsamlega til að valda ekki verðbólgu. Þessa aura getur það alltaf sótt beint í vasa lífeyrisgreiðendanna sjálfra sem eru hinir einu rökrænu greiðendur sem skattþegnar landsins, launþegar og fyrirtæki.

Í staðinn fá launþegar vinnu við innviðaframkvæmdir og allt verður þannig betra í þessu landi.  Við fíflumst ekki með arðinn af því sem landið gefur af sér til annarra landa.

Hugsið ykkur bara ef árið væri 1939 og IG Farben gæfi út skuldabréf með háum vöxtum til að framleiða meðal annars  Zyklon B handa Hitler til að drepa Gyðinga með. Íslenskir lífeyrissjóðir hefðu án efa keypt helling af bréfum vegna góðrar ávöxtunar, bóka gróða 1940-1945, en tapað svo öllu og afskrifað 1946 og lækkað allan lífeyri landsmann í kjölfarið. Í stað þess að leggja vegi á Íslandi 1940-1945 sem hefðu orðið eftir í landinu. Sjá menn þetta virkilega ekki?

Lífeyrissjóðir eiga ekki að að fara með krónu úr landi. Þeir valda bara með því gjaldeyrisskorti innanlands og lífeyrisþegum tapsáhættu. Alls ekki þegar talað er um að rétt sé að stofna einhvern viðlagasjóð landsnmanna með auðlindarentu og bankagróða. Hvar ætli þeir ætli að ávaxta hann? Hann verður ekkert vandamál vegna stærðar eins og norski olíusjóðurinn er hjá þeim. Líklega verður hann aldrei nem skrípi sem verður stolið við fyrsta tækifæri af næstu vinstri stjórn.

Stöðvum þessi áform og breytum lífeyrissjóðakerfinu. Skattleggjum iðgjöldin strax við inngreiðslur í sjóðina og gerum þannig lífeyrisgreiðslur skattfrjálsar.

Eyðum þessum misskilningi með rekstur og viðhald lífeyrissjóðina og breytum þessu vitlausa kerfi áður en það étur okkur með húð og hári sem það er þegar byrjað að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Halldór, er það rétt að lífeyrissjóðirnir þurfi ekki að borga skattinn af því sem þeir fjárfesta erlendis?

Haukur Árnason, 1.11.2017 kl. 19:34

2 Smámynd: Haukur Árnason

Ég ætlaði að þakka þér pistilinn. Þetta er alveg rétt hjá þér.

Haukur Árnason, 1.11.2017 kl. 19:39

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Haraldur. 

ég held að launþeginn verði alltaf að borga skattinn af lífeyrinum sínum hvort sem það er gert við inngreiðslu eða útgreiðslu lífeyris.

En það má fullyrða í sögulegu samhengi að það hefði borgað sig fyrir launþegannað láta taka skattinn strax. Lifeyrsisjóðabjálfarnir  töpuðu mörg hundruð milljörðum af peningum rtíkisin í erlendu braski.þeir töpuðu engu af sínum launum eða lífsstíl. Af hverju gerir Ragnar Ingólfsson ekkert í þessu?

Þeir hefðu allir átt að fara í fangelsi fyrir eins og aðrir braskarar sem  misfara með fé heildarinnar sem er ríkisins.

Þeir sluppu allir og sögðu bara Sorrí Stína, við bara lækkum lífeyri launþeganna að þeirra hluta svo sjóðirnir nái sér. En ríkið gerði eklki neitt við þessa glæpamenn sem þeir eru í öllum lagalegum skilningi.

Halldór Jónsson, 1.11.2017 kl. 19:49

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er örugglega rétt að þeir sem stjórna lífeyrissjóðunum hafa upp til hópa ekki hundsvit á fjárfestingum. En þar á sama við hvað varðar fjárfestingar í innlendum fyrirtækjum. Lífeyrissjóðir eiga að fjárfesta sem mest erlendis og fá til þess aðstoð þeirra sem kunna til verka. Ekki vil ég setja minn lífeyri í að fjárfesta í framkvæmdum hérlendis sem yfirleitt er illa stjórnað og fara langt fram úr kostnaðaráætlunum.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.11.2017 kl. 20:12

5 Smámynd: Haukur Árnason

Halldór, ég býst við að Haraldarsvarið sé ætlað mér. Þú svarar ekki beint, en les það útúr þessu, að lífeyrissjóðunum sé hleypt út úr landinu með þessa peninga, án þess að ríkið taki sinn hlut.

Auðvitað á að taka skattinn strax.

Haukur Árnason, 2.11.2017 kl. 00:01

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

´Spurning sem þarf að svara er sú, af hverju Norðmenn með stærsta sjóð heims, Olíusjóðinn, fjárfesta aðeins erlendis og sem allra víðast. 

Ómar Ragnarsson, 2.11.2017 kl. 07:52

7 Smámynd: Þórir Kjartansson

Algerlega sammála því, Halldór, að lífeyrissjóðabáknið er orðið algert skrímsli í hagkerfinu okkar sem sogar til sín óheyrilega fjármuni. Þjónar bara vel þeim sem þar sitja við kjötkatlana. Kannski ekki sammála öllu sem þú leggur til hvernig breyta ætti því til hins betra. Þú spyrð hvers vegna Ragnar Ingólfsson geri ekkert í þessu. Hann er þó einn af örfáum sem er að benda á þetta og reynir eitthvað til að koma þessu á dagskrá. En ég þekki það af eigin raun að hvorki stjórnmálamenn eða fréttamenn hafa hinn minnsta áhuga að fjalla um þetta risavaxna mál. Auðvitað ætti að taka skattinn við inngreiðslu. Og það ætti að gera meira. Ríkið ætti strax að byrja að sækja þessa c.a. þúsund milljarða sem það á hjá sjóðunum í ógreiddum sköttum áður en þeir tapast að verulegu leyti í misheppnuðu braski. Þessi milljarðar væru t.d. betur komnir í vegakerfinu okkar og þjóðarsjúkrahúsinu. 

Þórir Kjartansson, 2.11.2017 kl. 08:49

8 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ómar spyr:

"Spurning sem þarf að svara er sú, af hverju Norðmenn með stærsta sjóð heims, Olíusjóðinn, fjárfesta aðeins erlendis og sem allra víðast."

Ég svara: Það er vegna þess að Norska hagkerfið þolir ekki að fjármag sem er meira ein þjóðarframleiðsla sé verðbréfabraski á innanlandsmarkaði. Sama á vissulega við á íslandi.

Guðmundur Jónsson, 2.11.2017 kl. 09:19

9 identicon

Alveg merkilegt að sjá svona skrif hjá manni sem hefur ,,getað farið um allt fjármaálkerfið á Íslandi í átatugi að eigni vild" , og á kostnað allra hinna mest megnið !

Þú mátt gera hvað sem er við ,,þinn lífeyrissjóð"  !

Láttu minn í friði  !

JR (IP-tala skráð) 2.11.2017 kl. 15:19

10 identicon

Sæll vertu

Athyglisvert að treysta ríkinu fyrir öllum okkar fjármunum. Það verða nú ekki dónaleg ár hjá Loga og McCarthy meðan fjárfestingarnar eru í gangi. Það þarf mikla innviði handa "hælisleitendum" svo dæmi séu tekin. Nú eða fluglestin; ekki þarf neitt smáræði þar. - Sagði ekki Stalín heitinn að allir góðir kommúnistar keyptu ríkiskuldabréf? Og svo síðar að enginn góður kommúnisti  tæki við vöxtum. Mér er sem ég heyri Loga þegar að endurgreiðslunum kemur ...

EINAR S. HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 2.11.2017 kl. 23:28

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Einar S. ef ríkið eða Stalín fyrir þess hönd ætlar að stela af þér þá gerir hann það hvað sem þú heldur að peningarnir séu öruggari hjá sjóðafurstunum núverandi eða í Seðlabankanum.

Einstaklingur er varnarlaus gagnvart stjórnglæpamanninum. Það er aðeins lýðræðishefðin og þjóðarvitundin sem getur varið okkur.

Seðlabanki gengur á sömu siðfreðisprinsípum og ég og þú meðan lýðræðið er virkt. Taki kommúnistar við þá er reglunum breytt og við höfum enga vörn lengur. Þá er komið annað þjóðfélag eins og var hjá Stalín.

Steingrimur Jóhann lítur ekki sömu augum á eignarrétt eða skyldur og þú og ég og ég held Logi Már ekki heldur, hvað þá Píratar. Þeirra er annað þjóðfélag og aðrar reglur.

Halldór Jónsson, 3.11.2017 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband