Leita í fréttum mbl.is

"RÚV

er sjónvarpsstöð í eigu íslensku þjóðarinnar. Hlutverk stöðvarinnar og markmið er að upplýsa, fræða og skemmta áhorfendum á öllum aldri. Innlend dagskrá er í öndvegi, nýir þættir, leikið efni, fræðsla, fréttir, umræða, leikuppfærslur, kvikmyndir, heimildamyndir og stuttmyndir. Að auki er í boði sérvalið erlent efni og auðvitað fá yngstu áhorfendurnir alls kyns skemmtilegt og uppbyggilegt efni við sitt hæfi.

RÚV er mikilvægur þátttakandi í íslensku menningarlífi, vettvangur fyrir metnaðarfulla og fjölbreytta nýsköpun í dagskrárgerð, leiðandi í efnistökum og gæðum, veita afþreyingu og vera gluggi að erlendri menningu og málefnum."

Ég fletti upp á dagskrá þessa sjónvarps míns yfir alla jóladagana. Ég sá talsvert af glæpamyndum og venjulegu hversdagslegu afþreyingarefni. Ég fann lítið af hátíðarefni sem mig hefði langað að sjá þessa daga. N4 færði manni fallega tónlist og svo erlendar stöðvar. En Siðmennt eða eitthvað svoleiðis selskab virðist vera fullsæmt af dagskránni eins og ég gat lesið hana af vefsíðu miðilsins.

Hugsanlega er ég einn um að þykja lítið til dagskrárinnar koma. En sjón er sögu ríkari og ef til vill er mér að yfirsjást eitthvað í dagskrá RÚV. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jú reyndar hætti ég um tíma að horfa á Sjónvarpið eftir siðlausa árás á forsta vorn Sigmund. - Skemmtiþáttur með Gísla Marteini er sniðin fyrir þá sem framkoma til að hlægja að hvorir að öðrum.- Nei það er best að sætta sig við og bíða eftir Vínartónleikunu ef mig misminnir ekki að þeir séru um áraótin.

Helga Kristjánsdóttir, 27.12.2017 kl. 00:52

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Í "skemmtiþáttinn með Gísla Marteini" er reyndar ævinlega sérvalið fólk (sá fyrsti fasti meðtalinn) sem stuðar ekki vinstrilínu Rúvsins, nema það séu sjálfstæðismenn, en þá þá helzt þeir, sem eru veikir gagnvart annaðhvort Evrópusambandinu eða bleikustu áherzlum þess flokks.

Gísli hefur lengi verið í bandi hjá vinstri mönnum, síðan hann vann með þeim í borgarstjórn, og ekki fer hann að stuða sína Guardian-mótuðu yfirmenn, býður þá mun frekar til sín gömlum ESB-starfsmönnum, eins og Eiríki Bergmann eða Baldri Þórhalls, heldur en mönnum eins og þér, Halldór, Páli Vilhjálmssyni, Jóni hrl. Magnússyni eða Valdimar Jóhannessyni.

Þátturinn er samt ekki "allur fyrir djókið", því að síað er inn í hann með framangreindum hætti og oft vikið þar að pólitískum efnum.

Jón Valur Jensson, 27.12.2017 kl. 12:13

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Allt of mikill tími  hjá rúv fer í "að hengja bakara fyrir smið" með því að koma einhverskonar kaldhæðnishúmor á framfæri með óbeinum hætti =Stöðugt er alið á allskyns vitleysisgangi frekar en að tefla fram því besta og einhverjum vitrinugm sem að vísa bestu leiðina inni í framtíðina.

Jón Þórhallsson, 27.12.2017 kl. 13:40

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nei Halldór þú ert ekki einn um það.  Það væri ágætis byrjun til að aga þessa stofnun, að taka nefskattinn af henni og láta björgunarsveitirnar fá hann.  Það væri eingin skaði skeður  þó að þessari stofnun væri lokað, það eru næg tæki til fyrir almannavarnir að grípa til á neyðar tímum.

Burtu með EES, burtu með schengen og burtu með RUVið.  Það gengur ekki að stofnun sem er kostuð af þjóðinni  leyfi sér að berjast gegn henni í kosningum.  Pútin lætur alla fjölmiðla sem skipta máli vinna með sér enda vinnur hann alltaf, mikið afrek, er það ekki?  

Hrólfur Þ Hraundal, 28.12.2017 kl. 02:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 3418156

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband