Leita í fréttum mbl.is

Ekki aftur

er fyrirsögn á leiðara Harðar Ægissonar í Fréttablaðinu í dag.  Skrif harðar er með því besta sem birtist af stjórnmálaskrifum nokkurs staðar og eiginlega synd að hann skuli ekki rita í víðlesnara blað frekar en Fréttablaðið hvers lestur er af mörgum talinn stórlega ofmetinn.

Hörður segir:

"Um eitt virðast flestir vera sammála. Snúa þurfi af þeirri braut sem einkennt hefur íslenskan vinnumarkað um áratugaskeið þar sem launþegahópar knýja á um launaleiðréttingar fyrir sinn hóp á víxl. Niðurstaðan hefur enda nánast undantekningarlaust verið sú hin sama. Samið er um innstæðulausar nafnlaunahækkanir sem leiða til aukinnar verðbólgu, hærri vaxta og lægra gengis krónunnar.

Vandamálið er hins vegar að þótt flestir vilji forðast þetta þekkta stef þá eru á sama tíma allir launþegahópar þeirrar skoðunar að það þurfi einungis að „leiðrétta“ þeirra laun. Og framhaldið þekkja allir. Nú er vanhugsað útspil kjararáðs, sem hefur ákvarðað tugprósenta launahækkanir til ýmissa hópa sem heyra undir ráðið, notað sem rök fyrir því að rjúfa þá launastefnu sem var mörkuð með kjarasamningum á almennum markaði 2015. Ólíklegt er að nokkur muni græða á því að leggja upp í slíka vegferð. Öllum ætti að vera ljóst að svigrúm til mikilla launahækkana er ekki fyrir hendi. Því verður vart trúað að forystumenn í verkalýðshreyfingunni ætli að efna til kjarastríðs eftir að kaupmáttur hefur hækkað um 20 prósent frá því 2015. Það hljómar eins og hvert annað öfugmæli.

Sá tónn sem heyrist frá samtökum opinberra starfsmanna, sem eiga nú í kjaraviðræðum við ríkið, gefur þó ekki tilefni til að ætla að þar verði horft til þess að semja um launahækkanir í samræmi við stöðu þjóðarbúsins. Allir virðast hafa gleymt því markmiði að við gerð kjarasamninga verði lært af reynslu hinna Norðurlandanna þar sem kaupmáttur hefur aukist á grundvelli lítillar verðbólgu, lágra vaxta og stöðugs gengis. Þannig var í Noregi nýlega samið um tæplega tveggja prósenta nafnlaunahækkun á vinnumarkaði, litlu meira en verðbólga mælist þar í landi. Af hverju? Af því að þar ríkir sameiginlegur skilningur á því hjá aðilum á vinnumarkaði að atvinnulífið stendur ekki undir meiri launakostnaði við núverandi efnahagsaðstæður.

Staðan er þessi. Eftir miklar launahækkanir og gengisstyrkingu krónunnar frá 2015 hefur raungengið sjaldan verið hærra. Launakostnaður fyrirtækja hefur hækkað, mælt í sömu mynt, um fjörutíu prósent meira en í helstu samkeppnisríkjum. Hlutfall launa af landsframleiðslu er það hæsta á Norðurlöndum og Seðlabankinn hefur sagt að geta fyrirtækja til að taka á sig frekari kostnaðarhækkanir gæti verið „komin að endamörkum“. Laun verða ekki ákvörðuð án tillits til verðmætasköpunar heldur hljóta þau að taka mið af samkeppnishæfni landsins hverju sinni en við blasir að helstu útflutningsgreinarnar eru í aðþrengdri stöðu.

Mestu skiptir að standa vörð um kaupmáttaraukningu síðustu ára og þann verðstöðugleika sem hefur gefið Seðlabankanum færi á að lækka vexti. Sökum óvenjulegra aðstæðna – mikillar gengisstyrkingar, hagstæðra viðskiptakjara og lægra vöruverðs vegna afnáms tolla og vörugjalda – þá fór verðbólgan ekki af stað eins og óttast var eftir þær launahækkanir sem samið var um í síðustu kjarasamningum. Það væri fádæma ábyrgðarleysi að veðja á að lukkan verði aftur með okkur í liði í þetta sinn. Sá leikur verður alveg örugglega ekki endurtekinn í bráð."

Hér eru mælt mikil aðvörunarorð. Það virðist gefa auga leið að ríkisstjórnin getur ekki ef vel á að vera látið úrskurði Kjararáðs afskiptalausa í aðdraganda kjaraviðræðna sem framundan eru. Réttlætistilfinningu almennings var misboðið. Það gengur ekki að  láta sem að stórhækkanir til æðstu manna skipti engu máli þegar bjóða á öðrum allt aðrar tölur. Það verður að finna leiðir til að fólk sætti sig við eitthvað sem tryggir betur stöðugleikann eh tugaprósenta innistæðulausar taxtahækkanir jafnvel eftir verkföll sem enginn vill.

Ekki aftur segir Hörður. Allir vita hvernig hægt er að eyðileggja það sem áunnist hefur í lífskjörum. Við höfum svo oft gert það áður.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband