Leita í fréttum mbl.is

Karlar eða konur ?

Það er munur á körlum og konum eða er það ekki?

Allt mannlífið finnst mér gömlum karlfauski samt vera mikið orðið undirlagt af sértækri jafnréttisumræðu og það að kynin séu næsta eins. Samt er þessi munur fyrir hendi sem gjarnan sést á ýmsum útvexti líkamans bæði upp og niður og út á hlið.

Konur henta að mínu viti mun betur en karlar til ýmissa verka. Þær hafa ýmsa eiginleika sem karla skortir. En er það líka í hina áttina? Getur maður ekki efast stórlega um það eins og orðræðan gengur? Svo maður tali nú ekki um þetta mítú sem ég er hættur að skilja hvar eigi að enda. Þetta var ekki mikið vandamál þar sem ég þekkti til í gamla daga. Menn urðu að passa á sér puttana annars gátu þeir bara fengið óþyrmilega á glannann. Enginn skilji mig svo að ég sé að mæla ruddaskap gagnvart konum bót, hann fyrirlít ég af öllu hjarta enda er hann líka heimskulegur og lítt til árangurs fallinn. Hver strýkur ketti öfugt nema bjálfi?

Patton,Rommel, Montgomery, þetta voru karlar. Alexander mikli var karlmaður þó  hinsegin væri að hluta til. Wyatt Earp, Vidoc og Bat Masterson voru karlkyns lögreglustjórar og skjótari en skugginn.Páll og Pétur postular voru karlar en María og Florence Nightingale voru konur. Af hverju er Páfinn karl en ekki kona?

Er maður ekki ósjálfrátt með þá staðalímynd í hausnum að karlkyns töffarar henti betur en konur í sum hlutverk? Þær eigi ekki að vera byssuslöngvarar, hershöfðingjar á vígvelli, lögreglustjórar eða feður. Heldur séu þær mun betri sem mæður, ráðherrar eða forsjáraðilar mjúkra mála og uppeldis?

Af hverju má ekki velta fyrir sér hvort sum störf henti betur karlmönnum en konum án þess að allt fari á hvolf vegna einhverra jafnréttissjónarmiða? 

Það er einhver munur á körlum og konum eða er ekki svo?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Jú; ég vil halda í gömlu ýmyndirnar;

karlmenn sinni sjómennsku og konur séu ljósmæður.

Jón Þórhallsson, 22.1.2018 kl. 09:13

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Jónas, konumum ber æðsta virðing vegma þess að þær einar geta borið mannkynið fram. Rétt hjá þér.

Halldór Jónsson, 23.1.2018 kl. 08:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband