8.2.2018 | 09:12
Enn geisar Þorvaldur
í hefðbundnum rógi sínum gegn Íslandi og Bandaríkjunum og öllum þeim sem honum eru ekki þóknanlegir.
Þorvaldur reiðir hátt til höggs í glórulausu ofstæki sínu gegn Trump og Republíkönum líklega af því bara að Nixon og Johnson voru úr þeim flokki sem hann virðist leggja að jöfnu við Sjálfstæðisflokkinn.Og Bandaríska þjóðin fylgir með vegna andúðar Þorvaldar á Trump Forseta.
Trump forseti nýtur yfirburða fylgis um þessar mundirt í Bandríkjunum. 3/4 kjósenda eru ánægðir með forsetann og meira að segja helmingur demokrata.
Þá einmitt skrifar Þorvaldur:
" Og nú tekur steininn úr þegar forsetinn reynir að grafa undan alríkislögreglunni FBI að því er virðist til að aftra rannsókn sérstaks saksóknara á meintum tengslum Rússa við menn Trumps og Trump sjálfan, m.a. grunsemdir um leynimakk við Rússa um afnám viðskiptaþvingana sem þingið hafði ákveðið. Leynimakk við óvininn hljómar eins og bergmál frá fyrri tíð. Trump er m.a. sakaður um að grafa undan lýðræði
Vandinn sem bandarískir lýðræðissinnar standa frammi fyrir er þessi: Hvað er til bragðs að taka þegar lýðræðislega kjörinn forseti grefur svo undan lýðræði að álit landsins hefur laskazt stórlega? Vitnisburðirnir hrannast upp. Eiga menn að láta sér nægja að bíða næstu kosninga og leyfa skemmdinni að breiðast út? Margir segja nei, við verðum að reyna að koma forsetanum frá sem fyrst enda leyfir stjórnarskráin það eins og dæmi Nixons vitnar um. "
Maðurinn snýr öllu á haus og tekur ekkert tillit til staðreynda eða stöðu mála. Svo tekur hann upp gamla bullið og ræðst á lýðveldið Ísland: sem hefur brauðfætt hann frá barnæsku og hans fjölskyldu:
"Íslenzkir lýðræðissinnar standa nú frammi fyrir áþekkum vanda. Hvað er til bragðs að taka þegar lýðræðislega kjörið Alþingi grefur svo undan lýðræði í landinu að álit landsins hefur laskazt stórlega? Vitnisburðirnir hrannast upp.
Alþingi heldur áfram að vanvirða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2012 um nýja stjórnarskrá og skýlir sér við þann verknað bak við ákvæði sem danskur einvaldskóngur setti í núgildandi stjórnarskrá til að torvelda breytingar á henni
Ísland telst ekki lengur óskorað lýðræðisríki skv. erlendum vísitölum. Spillingin æðir áfram. Alþingi hefur nú þrisvar í röð verið kosið skv. kosningalögum sem kjósendur höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 auk þess sem sýslumaður nátengdur Sjálfstæðisflokknum lagði lögbann rétt fyrir síðustu kosningar á fréttir sem komu Sjálfstæðisflokknum illa. Lögbannið reyndist ólöglegt.
Þetta kallast skríðandi fasismi. Lögbannið stendur enn. Eiga menn bara að bíða næstu kosninga og leyfa skemmdinni að breiðast út? Eða eiga menn að leita leiða til að knýja fram uppskipun með sem allra stytztu millibili þar til Alþingi bætir ráð sitt?"
Hvað vill þessi maður? Vopnaða byltingu?
Ég margbúinn að hrekja þetta með þjóðaratkvæðagreiðsluna að það er leitt að þurfa að gera það enn einu sinni.
Kjósendur á kjörskrá | 236.911 |
Gild atkvæði | 114.570 |
Ógild atkvæði | 1.499 |
þar af auðir | 661 |
þar af aðrir ógildir | 838 |
Gild atkvæði skiptust þannig eftir því hvernig kjósendur svöruðu einstökum spurningum:
- Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?
Já, ég vil að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.
73.509
Nei, ég vil ekki að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.
36.302"
Allir sjá að helst vinstri róttæklingar landsins tóku þátt í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og fimmtungur atkvæða vildi eitthvað með tillögur Þorvaldar og moðsuðu hafa að gera.Enda plaggið ekki bleksins virði vegna þess hversu afspyrnu lélegt það var.
Þorvaldur lætur ekki nægja að rakka niður Bandaríkin og Forseta þess heldur kallar Ísland "skríðandi" fasistaríki.
Mér persónulega finnst skömm að því að ala þennan mann á ríkisspenanum í Háskólanum og vildi óska þess að hann færi sem fyrst þaðan því hann hlýtur að skemma útfrá sér til æskulýðsins eins og rotna eplið í tunnunni.
Hann heldur svo áfram með bullið:
"Á að dæma um þau í kjörklefanum frekar en í réttarsölum? Nv. dómsmálaráð- herra virðist líta svo á. Hún hafnar dómi Hæstaréttar þess efnis að hún hafi brotið lög með þeim rökum að hún hafi náð endurkjöri eftir að brotið komst í hámæli.
Viðhorf hennar og annarra sem eru sama sinnis grafa undan réttarvitund í samfélaginu og undan réttarríkinu.
Skemmdin breiðist út. Alþingi ögrar bæði lýðræðinu og réttarríkinu."(les "skríðandi "fasistaríkinu Ísland)
Prófessor doktor Þorvaldur er ekki fær um að taka geisa sig í stjórnmálum vegna krataofstækis síns og samviskuleysis í málflutningi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Halldór minn - sýndu mér hvar þú hefur fundið að 3/4 Bandaríkjamamnna séu ánægðir með Trump. Siðast þegar ég vissi þá var hann að skríða úr 32% upp í 40% fylgi
Kristmann Magnússon, 8.2.2018 kl. 10:58
"11. gr. Til þess að spurning eða tillaga sem er borin upp í þjóðaratkvæðagreiðslu teljist samþykkt þarf hún að hafa hlotið meiri hluta gildra atkvæða í atkvæðagreiðslunni."
Sem sagt ekki meirihluta þeirra sem eru á kjörskrá hverju sinni.
Lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna nr. 91/2010
Já sögðu 48 og enginn sagði nei
Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október 2012 er því enn í fullu gildi.
Ekkert ólöglegt var við þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur Stjórnlagaráðs 20. október 2012.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október 2012 um tillögur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskrár var kosningaþátttakan 49%, um afnám áfengisbanns árið 1933 45% og um Sambandslögin 1918 44%.
Í kosningum greiða menn atkvæði samkvæmt því hvað þeim finnst um viðkomandi mál.
Og þeir geta skilað auðu ef þeir vilja.
Hvað þeim finnst í einhverri umræðu um málið er hins vegar ekki kosningar.
Og meirihluti kjósenda ræður í kosningum en ekki þeir sem heima sitja.
Hér á Íslandi er einfaldlega lýðræði og okkur varðar ekkert um þá sem ekki sætta sig við það.
Þorsteinn Briem, 8.2.2018 kl. 14:03
Stjórmlagaráðið var algjörlega ólöglegt apparat,klambrað saman í stjórnartíð Jóhönnu. Íslendingar eru upp til hópa lýðræðissinnar og munu þannig halda áfram að verja eyna sína.- - JÚ.. Trump óx í skoðanakönnunum,man ekki tölurnar en var rétt undir 50% í þeirri einu frett sem ég las um það.
Helga Kristjánsdóttir, 8.2.2018 kl. 18:20
Þetta var skoðanakönnun, ekki þjóðaratkvæðagreiðsla. Í stjórnarskrám er kveðið á um hvernig breytingar á þeim skuli fara fram og hér gerist það með atbeina Alþingis. En kannski finnst Þorvaldi bara sjálfsagt að hann og félagar hans ræni völdum. Hann verður þá bara að reyna að gera það.
Þorsteinn Siglaugsson, 8.2.2018 kl. 20:18
Lyndon B. Johnson var úr Demókrataflokknum.
Hilmar (IP-tala skráð) 9.2.2018 kl. 19:26
Samvizkuleysi í málflutningi --- vel að orði komizt hjá þér, Halldór, um endalausan áráttu-málflutning Þorvaldar Gylfasonar í Fréttablaðinu.
Hann var leiðtogi ESB-innlimunarsinna í hinu ólöglega skipaða "stjórnlagaráði" þar sem mútuþægum hafði verið boðin tvöföldun launa á við það, sem átti að vera í Stjórnlagaþingi. En frekjugangur Jóhönnu, Illuga Jökulssonar miðaðist allur að því að bylta hér stjórnlögum. Það var gert með því að virða ekki samhljóða niðurstöðu Hæstaréttar 25. jan. 2011 um ógildingu kosningarinnar til Stjórnlagaþings 27. nóv. 2010.
Í stað þess að fara eftir ákvæðum laganna nr.90/2010 um Sjórnlagaþing, þar sem í reynd var kveðið á um uppkosningu, ef kosningin yrði ógild, þá var ekki farið eftir því með því að láta kjósa aftur til Stjórnlagaþings, heldur var brotið þvert gegn ákvæðum þeirra laga, þegar vinstri menn á þingi fóru að hvatningu upphlaupsmannsins Illuga (sem sjálfur átti hagsmuna að gæta, þ.m.t. með tvöföldun launanna!) með því að láta 30 manns (já, aðeins 30!) á Alþingi bjóða hinum 25 kjörbréfasviptu frá ógildu kosningunni til Stjórnlagaþings að taka sæti í "stjórnlagaráði".
Stór hluti kjósenda, 51,6%, tók ekki þátt í kosningunni um hinar allt of viðamiklu tillögur "ráðsins" um nýja stjórnarskrá (það stóð aldrei til í byrjun að stokka hana alla upp, en Þorvaldur og félagar höfðu sitt fram; en vitaskuld er þetta ekki stjórnarskrá Íslands, þótt Þorvaldur tali svo, eins og álfur út úr hól eða réttara sagt : eins og ófyrirleitinn falsari).
Það má segja, að þessi aðför að stjórnarskránni hafi verið í sama anda og þegar bolsévíkar óvirtu kosningu til stjórnlagaþings (sem þeir sjálfir höfðu þó þótzt styðja) þegar það kom saman 18. janúar 1918, en var með vopnavaldi hindrað í störfum sínum, forseti þess, Chernov, handtekinn morguninn eftir, og ríkisstjórn bolsévíka (lítils minnihlutahóps sem hafði rænt völdum 7. nóv. 1917) batt enda á stjórnlagaþingið með tilskipun sama morgun! Þetta hefur hugsanlega verið fyrirmynd sögumannsins Illuga, sem með tillögu sinni vildi trúlega verða skapari nýrrar sögu, en ekki í krafti lögmætis, heldur hreinna og klárra lagabrota gegn þágildandi lögum um Stjórnlagaþing og kosningalögum sem fara átti eftir skv. fyrrnefndu lögunum.
Hlutverk ESB-útsendarans, þjónsins eða ESB-vinarins Þorvaldar í þessu "stjórnlagaráði" varð svo ekki sízt það að koma inn í "stjórnarskrána" ákvæði 111. gr. um billegt framsal á ríkisvaldi til "alþjóðastofnana *) ... í þágu friðar og efnahagssamvinnu" ásamt öðrum, og þetta vildu hann og aðrir evrókratar (m.a. Valgerði Bjarnadóttur, form. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis) eindregið EKKI láta bera undir kjósendur 20. okt. 2012 og ekki heldur 67. greinina, sem miðaðist við, að þjóðin ætti aldrei að fá að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um það að fá að slíta aðild eða inngöngu í Evrópusambandið!!!
Þrátt fyrir mikinn áróður í fjölmiðlum, einkum Rúv, í sjónvarpi og útvarpi, í þágu tillagna "stjórnlagaráðs", þá varð þáttakan í kosningunni 20. okt. 2012 aðeins 48,4%, og margir greiddu atkvæði gegn þeim fáu atriðum sem kjósendum var leyft að tjá sig um (það var nú allur viljinn til að leyfa þjóðinni að búa til sína stjórnarskrá!!).
Og áfram er Þorvaldur þráhyggjukenndur og þó útspekúleraður áróðursmeistari þessara árásarmanna lýðveldisstjórnarskrár okkar!
*) Þeir meintu: framsal ríkisvalds til Evrópusambandsins!
Jón Valur Jensson, 10.2.2018 kl. 08:56
Hér átti að standa:
En frekjugangur Jóhönnu og Illuga Jökulssonar ...
Ennfremur:
(m.a. Valgerður Bjarnadóttir ...
Jón Valur Jensson, 10.2.2018 kl. 09:01
Mikið rétt Jón Valur
Halldór Jónsson, 12.2.2018 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.