Leita í fréttum mbl.is

Enginn má við Trump

í alþjóðlegum stjórnmálum.

Páll Vilhjálmsson tekur þetta saman á bloggsíðu sinni í dag:

"Evrópusambandið er miður sín yfir þróun alþjóðamála síðustu missera. Á fundi leiðtoga ESB á Balkanskaga í vikunni kom fram það sjónarmið að Bandaríkin undir forystu Trump væru Evrópu jafn hættuleg og Rússland og Kína.

ESB telur sig standa fyrir alþjóðlegt frjálslyndi sem ættað er úr handbókum síðustu aldar. Trump starfar ekki samkvæmt áður viðurkenndum reglum. Hann velur sér skotmörk (Norður-Kóreu, Kína og núna síðast Íran) og þvingar fram niðurstöðu í þágu bandarískra hagsmuna. Evrópa valhoppar á eftir, meira af taugaveiklun en sannfæringu. 

Eina von Evrópu, segir New Republic, er að Trump sitji ekki nema eitt kjörtímabil. En allar líkur eru á að þau verði tvö. Evrópa, skrifar franskur ESB-sinni, á engan valkost við Bandaríkin og verður að láta sér lynda við Trump.

Gangi það eftir að Kína beygi sig undir vilja Trump eru engar líkur á að Íran standist áhlaupið í kjölfar uppsagnar Trump á kjarnorkuvopnasamningi sem Obama forveri hans gerði. Íran er þegar í vandræðum eftir að Írakar gáfu út skýra yfirlýsingu í nýafstöðnum kosningum um að landið ætlaði ekki að verða skjólstæðingur klerkanna í Teheran.

Evrópsk fyrirtæki munu ekki eiga viðskipti að óbreyttu við Íran af ótta við refsiaðgerðir Bandaríkjanna. Án viðskipta við evrópsk og bandarísk fyrirtæki blasir við stöðnun í Íran, sem gæti leitt til innanlandsófriðar.

Haldi Trump áfram að vinna pólitíska sigra með refsivönd viðskiptaþvingana að vopni verða til nýjar leikreglur í alþjóðamálum. Rússland og Kína gæta auðveldlega sætt sig við þær reglur en Evrópa hlekkjuð í ESB miklu síður."

1.3 milljón þýskra bíla var seld í Bandaríkjunum síðasta ár eða 10 % allrar framleiðslunnar.Einhverjum myndi þykja þetta ískyggilegt ef þetta væri um hluta íslenskar þjóðarframleiðslu að ræða.

"Við munum leggja tolla á Mercedes Benz og við munum leggja tolla á BMW ef þið í Evrópu opnið ekki markaði ykkar fyrir okkur" segir Trump blátt áfram. Hann er að segja að það verði enginn einstefnuakstur meira í alþjóðaverslun eins og menn hafa komsit upp með gagnvart Bandaríkjunum um langan aldur.

Óttaslegin Evrópsk fyrirtæki fara frá Íran á hverjum degi því þau vita að Trump meinar það sem hann segir.

Og Pútín á mikið undir því að halda vinfengi við Trump vegna gassins hans sem heldur Þýskalandi í gangi, Trump á nefnilega plentí gas.

Kína var að lenda sprengjuflugvélum á manngerðum eyjum sínum í S-Kínahafi. Ætli Trump láti sig það eitthvað varða í komandi viðræðum? Hver annar ætlar að gera athugasemdir við Kínverja? Merkel eða Macron?

Trump er farinn að stjórna heiminum í meira mæli hvað sem 101 liðinu og Agli Helgasyni kann að finnast um það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband