Leita í fréttum mbl.is

Svermur

er þekkt fyrirbrigði í náttúrunni. Smáar lífverur koma saman í torfum og hegða sér eins og þær væru risi og í skjóli gervi-stærðarinnar verjast þær óvínum sínum..

Þetta fyrirbrigði hefur ratað inn í hernaðartæknina. Kínverjar eru þegar að þróa þetta á Suður Kínahafi í sambandi við útþenslu sína þar.

https://www.c4isrnet.com/unmanned/2018/06/01/see-chinas-massive-robot-boat-swarm-in-action/

Þetta er svipuð hugsun og Bandamenn notuðu gegn loftvörnum Þjóðverja á sínum tíma. Chaff, alúmínium snifsi trufluðu radara þýskra.

Svermur rugluframboða í kosningum á Íslandi hefur svipuð áhrif. Ruglar fólk í ríminu og hindrar gagnrýna hugsun. Í slíku andrúmslofti þrífast stjórnmálamenn eins  og Píratarnir Björn Leví Gunnarsson og Smári McCarthy  svo dæmi séu nefnd.

Hávaði um ekki neitt verður að svermi sem fólk sér ekki í gegn um.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Halldór minn, þér væri nær að gagnrýna ránsferðir stóru flokkanna í ríkissjóð og vasa almennings. Nú hafa þeir í skjóli slíkra yfirburða í flokkssjóðum sínum (fituðum með hundruðum milljóna úr vösum jafnvel þeirra sem eru ekki flokksmenn þeirra) náð því að mynda heila ríkisstjórn með minnihlua atkvæða á bak við sig (þeir hefðu EKKI náð því án þessa gríðarlega áróðursfjár, sem þeir tóku frá almenningi óspurðum) og eru einmitt þessa dagana að reyna að mynda nýjan "borgarstjórnarmeirihluta", ráðandi næstu fjögur árin, en í krafti minnihluta atkvæða! C, P, S og V-listarnir fengu samtals einungis 46,35% atkvæða (þar af fráfarandi valdaflokkar borgarstjórnar, S, P og V-listar, einungis hlálega fá 38,19% atkvæða!) -- en "svermur" hinna, þeir sem engu fá að ráða næstu fjögur árin, fekk 53,65% atkvæða!

Þetta hefði ekki gerzt án flokksstyrkjanna glæpsamlega háu, sem einkum "turnarnir tveir" hafa notið góðs af. Sjá einnig hér:

Sízt skal hlífa gripdeildarflokkunum!

Jón Valur Jensson, 4.6.2018 kl. 15:13

2 identicon

Kæri Halldór

betra væri þér sem öðrum þokkalega góðum og gegnum þjóðlegum íhaldsmönnum, að leita nú fremur inn á við og velta því fremur upp hvað valdi stöðugu fylgistapi Sjálfstæðisflokksins, 45% í 40% í 35% í 30% í 25 % og nú slefandi í 23% fylgi á landsvísu, brátt með sama áframhaldi í og undir 20%, en að væla dag eftir dag um aðra.

Staðreyndin er að venjulegt og heiðarlegt fólk finnur/á enga samleið með Sjálfstæðisflokki Bjarna Benediktssonar.  Ríkiskerfiskrataflokki sem hyglar einungis sjálfum sér í krafti ríkisvaldsins, rétt sem væri þar um tæknikratana og jórturdýrin í Brussel að ræða.  Helsta ESB reglugerða flokk landsins, Sjálfstæðisflokkinn, allt í krafti EES samningsins sem Davíð Oddsson hóf.  Er nema von að öllu heiðarlegu fólki blöskri tvískinnungsflokkurinn? 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.6.2018 kl. 19:18

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég veit ekki betur en að það hafi verið hinn sóialíski putta teljari og þá helsta ESB þvaðurmaskína krata sem barðist fyrir EES samningnum og því ósæmilegt að kenna Davíð um það.

En Þó að Bjarni sé kanski myndarlegur og geti talað ágætlega, þá er hann akkúrat enginn foringi og getur brugðist á ögur stundu og það er illt að hafa svoleiðis foringja.

Margir flokkar sanna bara eitt og það er að það eru of margir í framboði sem kunna ekki að vinna með öðrum og ættu því að gera annað en að trufla landslíð og stjórnsýslu hanns.  Margir flokkar styrkja ekki líðræðið.

En þessi flokka svermur stafar að megin efni af því að vinstri flokkarnir fengu því framgeingt að ríkið kaupir flokka. Hvaða glóra er í því að ríkissjóður sé að kaupa flokka til framboðs?  

Hrólfur Þ Hraundal, 4.6.2018 kl. 20:40

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Bjarni gerði í buxurnar þegar hans "Ískalda mat" varð 

til þess að hann var tilbúin að leggja Ísland að veði.

Skiptir engvu máli þó hann sé "Icehot 1" þá er það

ekki spurning að hann er á góðri leið að eiðileggja

Sjálfstæðisflokkinn. Fagurgal og vera myndarlegur er

ekki ávísun á fylgi. Orðum þurfa að fylgja verk

og athafnir. Því miður er lítið fyri því að fara.

Þetta segi ég "Vafningalaust".

Lesi þeir út sem skilja.

Sigurður Kristján Hjaltested, 4.6.2018 kl. 21:17

5 identicon

Hrólfur Þ Hraundal

að telja, sem þú gerir, að JBH hafi verið forsætisráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, lýsir annað hvort sögulegu öngviti þínu, eða þá að þú sért að gera ósæmilega lítið úr DO.

Hvort er það?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.6.2018 kl. 22:08

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hrólfur sagði ekki, að Jón Baldvin hafi þá verið forsætisráðherra, en hitt er trúlega rétt álit hjá Hrólfi, að í Viðeyjarferð þeirra Davíðs mun JBH hafa gert EES-samninginn að skilyrði fyrir stjórnarmyndun; Þetta var mikið kappsmál JBH. En vitaskuld er samningurinn líka á ábyrgð Davíðs, sem og Vigdísar Finnbogadóttur, forsetans sem þorði ekki að bera málið undir þjóðina, þótt mikill fjöldi Íslendinga skrifaði undir áskorun um það.

Valdstéttin, elítan brást og þar með talinn meirihluti Alþingis, er það ekki ljóst?

Jón Valur Jensson, 5.6.2018 kl. 02:34

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þetta man ég líka Jón Valur,en á þeim tíma vissi ég nánast ekkert um EES.

Helga Kristjánsdóttir, 5.6.2018 kl. 05:44

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

.......og Langhala-Jón,

lét eins og flón

og þvældist um Evrópu fullur.

 Man einhver eftir þessu ?

Síðan hefur "svormið" yfir land vort svermum kratískra reglugerðaraula sem sjá skattfrjálsa vinnu í bulluseli í hyllingum. Landsölupakk og afleitir kúlúlánþegar þar fremstir í flokki. Forysta Sjálfstæðisflokksins síðan orðin samdaunaduftið eitt og ætti að andskotast frá völdum yfir í viðreisn eða samhyglinguna. Trojuhestur slapp innfyrir girðinguna og nú gapir svöðusár við sönnum sjálfstæðismönnum. Forystan er prump eitt og það er ekki einu sinni lykt af henni, svo undirlæg er hún. Sveiattan. Ekkert af þessu er vitleysisframboðum að kenna, eða svermum bjálfaflokka sem ýmist vilja á þing eða bæjar og borgarstjórn. Svermir vitleysisframboða má rekja til fíflagangs og auðvirðilegrar undirlægju núverandi valdhafa, gagnvart evræpusambandinu. "You are being watched" í boði Sjálfstæðisflokksins.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.l

Halldór Egill Guðnason, 6.6.2018 kl. 06:01

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ja nú ertu uppi nafni minn að sunnan og má vera að nokkrir sannir broddar leynist í þessu. Við þessir gömlu söknum forystu hugsjónafólksins eins og var í gamla daga. Án hugsjóna og grunngilda er engin trúverðug stefna,bara útþynnt kraterí. Það vitum við báðir.

Halldór Jónsson, 6.6.2018 kl. 09:01

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það má sannarlega um margt taka undir með ykkur Halldórum tveimur.

En er það svo, að það sé rétt að túlka Steingrím þingforseta í fréttum Söðvar 2 svo, að það standi til hjá okkar afleitu þingmönnum að keyra persónuverndarfrumvarpið stórvarasama, ættað beint frá Brussel, í gegnum þingið nú um helgina? Hafa menn þá ekkert lært af vökumanninum mikla Bjarna Jónssyni verkfræðingi?

Sjá hér: 

Heimssýn ályktar gegn gagnaskráningarfrumvarpinu - valdaframsal er stenst ekki stjórnarskrá

og hér: 

Sérfróður maður með vaktina á aukinni hneigð Brusselmanna til óeðlilegra valdheimilda gagnvart EES-ríkjum

Jón Valur Jensson, 7.6.2018 kl. 02:27

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Já nafni, nú er mál að rísa upp og berja í borð. Burt með Bjarna og Gulla! 

 Þeir eru kratar, báðir tveir. Vita það ekki sjálfir, sem er verst. Hvur andskotinn gerðist eiginlega? Hvar datt flokkurinn í drullusvaðið? Var það á síðasta landsfundi, eða það sem líklegra er, á þeim þar á undan? 

 Aumingjavæðingin hefur étið alla hugsun upp til agna. Eftir stendur steingelt ruslaralið ömurlegra pólitíkursa, sem vita varla hvort þeir eigi að standa í vinstri fótinn eða þarna hinn, sem er hinummegin eigin klofs, einhversstaðar. Heilinn ekki einu sinni með það á hreinu hjá þessum aulum. Andskotinn sjálfur, að þurfa að horfa upp á flokkinn fokkast upp með þessum hætti. Er stórskotaliðið lagst á sama plan, eða er einhversstaðar að finna menn með dugung og þor innan flokksins? 

 Situr síðasti móhíkaninn að Hádegismóum?

Halldór Egill Guðnason, 8.6.2018 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 3419715

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband