Leita í fréttum mbl.is

Furðustrendur

hugarheims Píratans Smára McCarthy birtast í skrifum hans í Morgunblaðinu í dag. Smári skrifar:

"Þrálátur vandi við stefnumótun hjá ríkinu er að enginn raunhæfur skilningur er á því hvaða aðstæður verða til staðar í framtíðinni. Við getum gert okkar besta til að segja fyrir um framtíðina, en oftast tekst okkur í besta falli að segja fyrir um nútímann: við sjáum ekki hvað getur orðið, þannig að við búumst bara við að framtíðin verði alveg eins nema öðruvísi. Þannig horfir fólk á bíla og hugsar um sjálfkeyrandi bíla, en gengur ekki skrefinu lengra og spyr um hvaða annars konar farkostir gætu orðið til.

Fólk horfir á vélmenni og hugsar um hraðari vélmenni af svipaðri stærð sem gera svipaða hluti, frekar en til dæmis örvélmenni sem sjást varla með berum augum, sem vinna saman í þúsundatali að því að leysa verkefni. En flestar breytingar framtíðarinnar eru torskiljanlegar í dag. Snjallsamningar, kjötrækt, djúplærdómur, vendikennsla, grátt gums, rafmyntir og flygildi eru allt orð sem voru alfarið óþekkt fyrir örfáum árum, en flest þeirra eru komin í daglegt tal í dag, og þau sem eftir eru munu eflaust valda meiri heilabrotum á komandi árum.

Það er nauðsynlegt að Ísland dragist ekki aftur úr öðrum ríkjum við að nýta okkur þessar tækninýjungar, skilja nytsemi þeirra fyrir samfélagið okkar og hagkerfið, og jafnframt að skilja hætturnar sem fylgja því að rangt sé farið að. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur talað mikið fyrir gamalli hugmynd Pírata um að stofna framtíðarnefnd á Alþingi til að reyna að spá aðeins betur um framtíðina, og búa þar með til vettvang fyrir þingið til að bregðast hraðar við fyrirsjáanlegum breytingum sem kunna að þarfnast lagabreytinga eða í það minnsta skilnings hjá stjórnkerfi Íslands.

Það verður frábært skref að stofna framtíðarnefndina, og má það varla bíða – ekki gerir framtíðin það. Sem dæmi um viðfangsefni sem ættu að vera ofarlega á baugi hjá nefndinni gæti ég nefnt spurningar um hver beri lagalega ábyrgð á afleiðingum ákvarðana gervigreindar. Er það rekstraraðili gervigreindarinnar, er það framleiðandinn, er það kannski gervigreindin sjálf? Eða í líftækni, hvort sem það er í fiskeldi í sjókví eða ræktun fiskikjöts í Petri-skál, hvaða varúðarreglur þarf að viðhafa til að koma í veg fyrir mengunarslys tengt losun erfðabreytts lífmassa út í náttúruna? Eða hvernig tryggjum við áframhaldandi getu íslenskra stjórnvalda til að framfylgja íslenskum lögum gagnvart því sem gerist á Íslandi, ef fleira og fleira er gert í gegnum jafnvel órekjanlega milliliðun á netinu?

Það eru engin góð svör við þessum og mörgum öðrum stórum spurningum ennþá og Ísland hefur nú þegar dregist aftur úr mörgum löndum sem fóru að glíma við þessi viðfangsefni fyrir löngu. R. Buckminster Fuller sagði að „við eigum að vera arkitektar framtíðarinnar, en ekki fórnarlömb hennar“. Við verðum að hanna framtíð sem hentar Íslandi, og við megum ekki láta eins og framtíðin komi ekki ef við hunsum hana bara. Tækifærið til að setja Ísland á rétta sporið gagnvart framtíðinni er núna. Nýtum það vel."

Síðan hvenær höfum við Íslendingar verið eyland í sögu þjóðanna? Síðan hvenær höfum við skrifað mannskynssöguna fyrirfram?

Hvað er þessi maður að fara ef hann þá yfirleitt er að skynja samhengið í eigin skrifum?

"Við verðum að hanna framtíð sem hentar Íslandi, og við megum ekki láta eins og framtíðin komi ekki ef við hunsum hana bara. Tækifærið til að setja Ísland á rétta sporið gagnvart framtíðinni er núna. Nýtum það vel."

Hvað er maðurinn að fara?

Er svona hugleiðingar það sem okkur vanhagar um? Væri ekki við hæfi að Björn Leví Gunnarssona leggði fram fyrirspurn á Alþingi til Smára um hvaða óskráðar hefðir og venjur geti fallið niður þegar hin nýja framtíð heimsins hefur veri ákveðin af Katrínu Jakobsdóttur á Furðuströndum Píratans McCarthy? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418441

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband