Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna viðgengst þetta?

Tveir virtir barnalæknar skrifa í Fréttablaðið um bólusetningar íslenskra barna.

M.a. segja þeir svo:

"...Rannsóknir hafa sýnt, að Íslendingar eru afar hlynntir bólusetningum. En bólusetningar eru líka fórnarlömb eigin velgengni.

Þegar sjúkdómarnir hverfa og ógnin dregur sig tímabundið í hlé getur mikilvægi bólusetninga gleymst og í kjölfarið dregið úr þátttöku. Þetta hefur gerst á Íslandi og nú er svo komið að um 90% íslenskra barna eru bólusett gegn mislingum. Þetta kann að hljóma nokkuð gott en þýðir í raun að u.þ.b. 400 börn á hverju ári fá ekki sína ráðlögðu bólusetningu gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (MMR bóluefnið).

Með tímanum verður því til umtalsverður hópur barna og ungs fólks sem er næmur fyrir mislingum sem eru einstaklega smitandi og hættuleg veira. Mislingafaraldur geisar nú í Evrópu þar sem tæplega 40.000 manns hafa sýkst, um 5.000 hafa fengið alvarlega, stundum langvinna fylgikvilla og 39 hafa látist, flestir börn undir 5 ára.

Langflestir þeirra sem sýkjast eru óbólusettir. Það er hryggilegt að tugir barna hafa látist úr sýkingu sem er vel hægt að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu.

Látum þennan faraldur, sem nú geisar í Evrópu, vera okkur þarfa áminningu og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að vernda börnin okkar – þau eru það dýrmætasta sem við eigum. Leggjum okkar af mörkum til að tryggja heilbrigði barnanna okkar, hvar sem þau eru í heiminum.

Bólusetning bjargar lífum."

Hvernig stendur á að þetta gerist?

Mig minnir að í gamla daga hafi engin undatekning verið gerð í skólanum þegar maður var stunginn með skelfilegu stóru sprautunni í hálsinn? Það voru engin undabrögð í boði.

Hvað hefur gerst á Íslandi?

Hvernig er hægt að líða það að tíunda hvert barn sem kemur á leikskólann sé óbólusett og bjóði þannig hættunni heim?

Er þetta Persónuvernd sem þarna er að birtast? Er það einkamál að ganga með HIV eða berklasmit meðal almennings?

Hverskonar bull er að viðgangast á Íslandi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband