Leita í fréttum mbl.is

Miðopna Moggans

er oft gagnleg af skynsamlegum skrifum. 

Hægra megin í dag er frábær greining Villa Bjarna á hamingju og hvort hægt sé að láta hana í té með afslætti. Ásamt með fleiri röksemdafærslum sem fólki kann að yfirsjást í moldviðri pólitískra slagorða sem óvandaðir menn setja fram til að blekkja kjósendur til fylgis við sig.

Vinstra megin á opnunni þar sem Björn Leví Pírati á sitt fasta sæti, skrifar dr. Benedikt Jóhannesson Viðreisnarfaðir eftirfarandi:

"Það er vont að fyrirtæki og fólk flýi úr landi. Það er vont að vextir á Íslandi séu miklu hærri en í nágrannalöndunum. Nýlega birtist frétt um að í Svíþjóð séu (óverðtryggðir) vextir á húsnæðislánum 1,7% á sama tíma og þeir eru 5,5 til 6,2% hér. Það er vont þegar gengi krónunnar sveiflast, fyrirtækjum og almenningi til skaða. Og það er mjög vont þegar samtök sem eiga að standa vaktina fyrir heilbrigt efnahagslíf þora ekki að tala um fílinn í stofunni, íslensku krónuna"

Benedikt þessi virðist telja að gengisfall krónunnar sé það sem heimilum landsins gagnast mest og hefur talað fyrir því.  Enda er maðurinn Evrópusambandssinni og þarf ekki fleiri orð um það að hafa, þar sem fullveldi Íslands er eitur í beinum slíks fólks sem fyllir Viðreisnarflokkinn sem og Samfylkinguna.

En til hvers skrifar dr. Benedikt svona ómerkilega um vexti í Svíþjóð og hér?

Af hverju bendir hann ekki á að lán í Svíþjóð er erlent lán en lán á Íslandi er innlent lán í íslenskum krónum sem hann vill allt illt?

Geta Íslendingar ekki tekið sænskt lán á tilgreindum vöxtum?  En það hentar ekki Benedikt að vekja athygli á þessum mun.  Hugsanlega ætlar hann enn  að prakka sig inn á kjósendur í næstu kosningum með svona málflutningi gegn íslensku krónunni. Vonandi sjá menn þá í gegn um doktorinn og þessar vísbendingar hans og minnast þess að af Viðreisn hefur hlotist meira ógagn en gagn  til þessa. 

Miðopna Moggans var góð hægra megin að þessu sinni en vinstra megin eins og oft áður lítt til fróðleiks fallin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er vont þegar svona menn eins og Benedikt kemur ekki með staðreyndir: Íslenska krónan hefur veikst um nær 10% á nokkrum vikum. Ef heldur áfram sem horfir gæti dollarinn verið kominn í kr 120 í haust, úr 100. 

Orn Johnson´43 (IP-tala skráð) 22.6.2018 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband