Leita í fréttum mbl.is

Raunalegar fullyrðingar

er að lesa í skrifum prófessors Ólafs Arnalds æi grein í Fréttablaðinu í gær.

Þar setur hann fram fullyrðingarum ósannaðar vísindalegar tilgátur.

Það er eins og honum sé ekki kunnugt um að CO2 hefur ekki verið lægra í andrúmslofti jarðar í 600 millj´n ár. Sbr. blogg mitt frá 21.5.2018.

 

Prófessor Ólafur segir m.a.:

 

"Ríkisstjórn Íslands leggur áherslu á loftslagsmál og sjálfbæra nýtingu landsins. Hér er fjallað um nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga, ekki síst mikilvægi moldarinnar og ástand vistkerfa.

Loftslag jarðarinnar er að hlýna vegna gróðurhúsaáhrifa koltvísýrings CO2 og fleiri lofttegunda.

Kolefnið (C) er undirstaða lífsins á jörðinni og er í stöðugri hringrás á milli andrúmslofts, gróðurs og jarðvegs. Það er hollt að bera saman magn kolefnis í andrúmslofti, gróðri og mold. Heldur meira er af kolefni í andrúmsloftinu (um 790 Tg) en gróðri á jörðinni (um 620 Tg) en samsvarandi gildi fyrir mold er 3-4000 Tg1 . Með öðrum orðum: það er tvöfalt meira kolefni í moldinni en gróðri og andrúmsloftinu samanlagt. Skiptir þetta máli fyrir aukningu CO2 í andrúmsloftinu og hnattræna hlýnun? Heldur betur! Það er ekki aðeins notkun jarðefnaeldsneytis sem hefur aukið styrk gróðurhúsalofttegunda, vænn hluti aukningar þeirra í andrúmsloftinu á rætur að rekja til hnignunar vistkerfa. Ofnýting landbúnaðarlands leiðir til þess að gengið er á lífrænan forða jarðvegsins sem getur losað ógrynni CO2 til andrúmsloftsins....."

 

"....Eðli íslenskrar eldfjallajarðar er að hún bindur meira kolefni en allur annar þurrlendisjarðvegur á jörðinni og rannsóknir sýna að bindingin er bæði ör og varanleg. Þá er hægt er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hérlendis nú þegar með endurheimt votlendis og með því að laga sauðfjárbeit landsins að landkostum enda er nóg af vel grónu landi til beitar fyrir núverandi bústofn...."

 

"....Endurheimt votlendis og breyttir beitarhættir ættu að vera sjálfsagður liður í útfærslu á umhverfismarkmiðum núverandi ríkisstjórnar, annars væri framkvæmdin eiginlega marklaus. Þetta verkefni kallar á allar hendur á dekk...."

 

Bæði er þessi grein full af þversögnum um að auka landbúnaðarframleiðslu sem eykur kolefnissporið. Hvergi hefur mælt svo óyggjandi sé hversu útblástur minnkar við að moka ofan í gamla framræsluskurði sem löngu eru komnir í jafnvægi.

Ólafi væri sæmra að geta vísindalegra mótraka en slá frama ósönnuðum raunalegum fullyrðingum eins og hann gerir í inngangi greinarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er sammála þér, Halldór.

Ólafur Arnalds er hinn mætasti maður og margt raunar fróðlegt í þessari grein hans, en raunalegt að sjá, að hann er enn einn sem gleypir við ósannaðri theoríunni um hlýnun jarðar af mannavöldum. Eldgos og skógareldar hafa þar margfalt meiri áhrif.

Jón Valur Jensson, 28.6.2018 kl. 15:39

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Jæa Jón minn vaski Valur

Það er gelypt við flugum Al Gore og þær síðan hafðar að stóra sannleika

Halldór Jónsson, 28.6.2018 kl. 17:17

3 Smámynd: Hörður Þormar

Danski jöklafræðingurinn, Jörgen Peder Steffensen, hefur rannsakað borkjarna úr Grænlandsjökli og frá  suður heimskautinu. Út frá þeim hefur hann kortlagt loftmengun og veðurfar mörg hundruðþúsund eða milljón ár aftur í tímann.

Hann virðist ekki vera mjög þekktur hér á landi, enda þótt íslenskur vísindamaður sem nú er látinn, Sigfús Johnsen, hafi starfað með honum í mörg ár.

Erindi hans má finna á netinu og ættu þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þau.   

Hörður Þormar, 28.6.2018 kl. 17:31

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór er ekki málið að vissir menn fá borgað fyrir greinarum Hlýnun jarðar málefni. Soros borgaði mönnum fyrir áróður vegna flóttamanna og þau mál öll. Það var finnanlegt á netinu. 

Valdimar Samúelsson, 28.6.2018 kl. 19:17

5 identicon

Já þið amatörarnir vitið þetta betur en langflestir vísindamenn heimsins... Hvers vegna leita þeir ekki ráða hjá ykkur.. ó já þið hafið ekki hundsvit á hvað þið eruð að krota hér, bara einhver þvermóðska og óþarfa kvabb

DoctorE (IP-tala skráð) 29.6.2018 kl. 10:19

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Doctor hvað færð þú fyrir þessi skrif þín.Ég veit það mikið DoctirE að 0.4°C á ekki að hafa nein áhrif á lífríki jarðar. 

Valdimar Samúelsson, 29.6.2018 kl. 10:34

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er víst hægt að kaupa sér doktorstitla í bréfaskólum í Ameríku Valdimar. Þetta er týpískur AlGore áhangandi í hópi 40 þúsund fíflanna í París

Halldór Jónsson, 29.6.2018 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband