Leita í fréttum mbl.is

Nauðsyn vegaframkvæmda

blasir allstaðar við. Út um gluggann hjá mér á Bergstöðum sé ég stóraukningu á stórrútutraffík á Einholtsveginum sem er alltaf í hörmulegu ástandi. Ef hann er ekki eitt þvottabretti þá er hann holóttur eða sést ekki í rykkófi. Merkilegt að íbúar við þennan veg jagist ekki í yfirvöldum um úrbætur.

Vegakerfið er risavaxið og nær brátt hálfa leið í kringum jörðina. Við ráðum ekkert við það ef við förum ekki að láta þá borga meira sem nota það meira en aðrir. Tæknin er fyrir hendi en það er eins og allir ráðamenn séu helfrosnir þegar kemur að framkvæmdum. Þá er eins og allt annað hafi forgang.

Af hverju förum við ekki af krafti í ný Hvalfjarðargöng? Í stað þess erum við mest að tala um að fella niður gjaldið. Það er eins og það hafi forgang að nýir þátttakendur í umferðinni þurfi ekki að borga neitt en við gömlu eigum að vera ánægðir með að vera búnir að borga allan þennan tíma.

Af hverju er ekki reynt að gera göng undir Reynisdranga í einkaframkvæmd? Og jafnvel víðar?

Því er ekki látið borga á veginum yfir Hellisheiði? Lítil upphæð sem fæstir myndu taka eftir gæti skipt sköpum um framfarir þar sem annarsstaðar.Af hverju á ég ekki að borga aðeins meira fyrir að slíta veginum heldur en sá sem aldrei fer um hann?

Af hverju ekki að drífa sig í nauðsynlegar vegaframkvæmdir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Þakka þér fyrir þessar hugleiðingar: en, .............. þó svo Benzín- og Olíugjöld, auk ALLRA hinna núverandi yrðu hækkuð, rynnu þau beint í vasa SJÁLFTÖKU liðs Bjarna bandítts Benediktssonar / Sigurðar Inga og Katrínar (lesizt: Steingríms J. Sigfússonar), eins og lungi annarra fjármuna úr hendi almennings, í þessu landi.

Það er sama raunar - hvert litið er, á landsvísu eða Sveitarstjórnar stigs:: hyggjast Garðbæingar ekki greiða EXTRA aukagjald til Gunnars Einarssonar Bæjarstjóra síns, fyrir meintan 1200 Km. akstur hans / þrátt fyrir 2.2 Milljóna Króna ofur- laun hans, sem fyrir eru nú þegar, t.d. ?

Hvers heldur þú: að sé að vænta stórstígra framfara í landinu, með svona mannskap innanborðs: yfirleitt, Halldór minn ?

Með beztu kveðjum - sem endranær samt, af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.8.2018 kl. 14:25

2 identicon

Olíugjaldið sem á að renna til vegaframkvæmda gerir það ekki og sífellt fjölgar rafmagnsbílum sem ekkert gjald greiða.

Eina vonin virðist vera að leggja rafstreng til ESB og að gróði Landsvirkjunar vegna hækkaðs rafmagnsverð til almennings verði  notað til að bæta samgöngur.

Annars er einsog mig minni að gefin hafi verið út ríkisskuldabréf til að klára hringveginn á sínum tíma?

Grímur (IP-tala skráð) 19.8.2018 kl. 17:50

3 identicon

Jæja Halldór minn,

þá ertu genginn aftur í flokk pilsfaldakapítalistanna,

flokk Vaðlaheiðar-vafninga-þistilfirðinga-viðundranna,

Einflokk Steingríms J., Sigurðar dýralæknis og Bjarna Ben.,

þar virðist þér líða best.  Farvel frans.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.8.2018 kl. 23:48

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Jæja Símon, ertu fastur í gamla fjárveitingavaldinu sem þú og aðrir gamlir flokkseintrjáningar beiddu uppá sem uppsprettu eilífs lífs. Sjálfsagt vrið á móti gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin og líklega á móti því að byggja þau í einkaframkvæmd nokkurn tímann. Þau væru líklega óbyggð enn ef þú og þínir líkar hefðu ráðið.

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 09:24

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Óskar Helgi, því trúi ég ekki að þú sért andvígur stefnunni um framkvæmdir með gjaldttöku burtséð hverjir eru á því máli eða hvaðan þeir komi.

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 09:26

6 identicon

Kæri Halldór, ég hef ekkert á móti einkaframkvæmd og ég hef ekkert á móti ríkisframkvæmd, en að sulla þessu saman, einkaframkvæmd með ríkisábyrgð, er ávísun á vaðlaheiðarvitleysu.  Punktur.  En varðandi Hvalfjarðargöngin er það að segja, að það var þörf framkvæmd og réttmæt, enda stytti hún mjög leiðina norður og vestur, auk þess sem í því dæmi geta menn keyrt Hvalfjörðinn enn, kjósi menn svo.  Og þannig á þetta að vera, að við höfum valkosti, en ekki að vegur sé gerður ofan á gamlan veg og sett þá á gjaldtaka.  Eðlilegra væri að foringi þinn, Bjarni Ben., setti fé í viðgerð gamla vegarins.  Nógu er hann gjaldaglaður á bensínið, þó ekki setji hann gjöld á viðgerða gamla vegi!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 12:08

7 identicon

Það væri mun skemmtilegra að eigs við þig orðræðu um það hvers vegna tryggingargjaldið er enn í hæstu hæðum.  Hvers vegna bensíngjaldið er í hæstu hæðum.  Hvers vegna Bjarni er gjaldaglaðasti skratti sem fyrirfinnst, miðað við árferði.  Í hvern andskotann fara öll þessi gjöld?  Jú, Halldór minn, í embættismanna og eftirlitsiðnaðinn, í sjálfskömmtunariðnaðinn.  Þar er nú Bjarni helsti veislustjórinn og m.a. til Brussel skemmtiferða á kostnað mín og þín

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 12:35

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Símon, vissulega má færa rök fyrir skattaíhaldi Bjarna og tregða í að gefa eftir. En það þýðir ekki að neita gjaldahugmyndum eins og þú gerir.

Tökum sem dæmi veginn yfir Hellisheiði. Við erum ekki að leggja nýjan veg þar heldur breikka og bæta þann sem fyrir er. Fyrir það eiga allir vegfarendur að borga. Lítið gjald sjálfvirkt fyrir hverja bunu eins og á Tollway í USA. Það er sanngjarnt að notendur borgi meira en þeir sem heima sitja. Gjaldið renni beint til endurbóta og viðhalds á veginum yfir Hellisheiði.

Sama fyrirkomulag sé á öðrum meginstofnæðum vegakerfisins. Aðskildar akreinar spara mörg mannslíf. Hverts virði er það ekki? 

Og gangnagjald sé á öllum jarðgöngum, Vestfjarðagöngum, Héðinsfjarðargöngum osfrv.Engin ókeypis notkun á dýrum mannvirkjum.

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 13:04

9 identicon

Halldór Jónsson:  Fyrir það eiga allir vegfarendur að borga.

Þessu er til að svara Halldór, að við borgum hér á landi miklu meira en nóg með fáránlega háu bensín og dísilverði og öðrum gjöldum á bíla og farartæki.  Í USA er bensínið miklu ódýrara en hér, því er skiljanlegt að þeir notist við vegtolla kerfi, sem reyndar er nú allt orðið rafrænt eftirlitskerfi og innheimtist af bankaveldinu.  Eigum við að ræða Borgunarmál formanns þíns og Bensa í því samhengi Halldór minn?

En gott og vel, ef þú vilt að ferðabransinn greiði meira til málaflokksins, þá er það svo sem ágætt og sjálfsagt að rukka Flugrútuna um vænar fúlgur, en láta okkur einu sjálfstæðu mennina vera.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 15:52

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ef þú ætlar að keyra vegina eins og sjálfstæður einstaklingur þá borgar þú fyrir afnotin. Ef þú bara hjólar eða labbar borgarðu ekkert Símon

Halldór Jónsson, 20.8.2018 kl. 16:08

11 identicon

Þegar þú svarar í stíl Dags og Holu-Hjálmars þá tekur maður það svar ekki gilt, þú hlýtur að geta svarað betur Halldór minn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 17:07

12 identicon

Komið þið sælir - að nýju !

Halldór !

Framkvæmdir með gjaldtöku: ættu vitaskuld að markast af þeirri staðreynd, að 100 PRÓSENTA nýting þeirra fjármuna, sem landsmenn hafa greitt í formi : Benzín- og Olíugjalda / og svo kallaðs Kolefnis jöfnunargjalds á undanförnum árum og áratugum FÆRU REUNVERULEGA til vegargerðar og viðhalds, sem og brúaframkvæmda ýmisskonar, í stað þeirrar óráðssíu, sem meðhöndlun þessarra fjár fúlgna hefur hlotið, víðs vegar í kerfinu.

Hefði svo verið - væru menn vart að tala um nauðsyn vegatolla og annarrar áþekkrar gjaldtöku, á komandi misserum og árum.

Munum svo Halldór: Ríkissjóður SKULDAR okkur ofgreidd Bifreiðagjöldin:: liðlega 27 árin aftur í tímann / þar sem þeir Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson sóru margsinnis:: og sárt við lögðu, í Kastljóssþætti Ríkissjónvarpsins í September 1988, að gilda skyldu - í MESTA LAGI út árið 1990 (tóku gildi 1. Janúar 1989), eins og við munum:: þau okkar, sem eiga að teljazt komin til vits og ára, fornvinur góður !

Svo - allt komi nú, skýrt og skilmerkilega fram, Verkfræðingur góður.

Með ekki síðri kveðjum: en hinum fyrri, og áður /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.8.2018 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband