Leita í fréttum mbl.is

"Their finest hour"

"Látum breska heimsveldið standa í þúsund ár og menn munu enn segja að þetta hafi verið þeirra stærsta stund" sagði Churchill, þessi "hálfameríska fyllibytta" eins og Hitler kallaði hann, við þjóð sína þegar flest sund virtust vera að lokast fyrir henni í styrjöldinni.

Nú er margt sem minnir á tíma hins sögulega undanhalds frá Dunquerke að því að utanríkisráðherra Breta,Jermy Hunt segir. Evrópusambandið hefur sýnt sitt rétta andlit og reynir að gera þeim allt til miska vegna útgöngunnar.

Það stefnir í engan samning milli Breta og ESB í því tilefni á sama tíma sem báðir ESB-flokkarnir íslenzku, predika inngöngu Íslands í þann konungsgarð sem jafnan er víður inngöngu en þröngur útgöngu.

Bretar kunna að standa einangraðir um stund. En það mun ekki standa lengi.Frjálsar þjóðir undir forystu Trumps,  bíða eftir að taka upp frjáls viðskipti við Stóra- Bretland. Nema hugsanlega Íslendingar, sem virðast taglhnýtingar þessa Evrópusambands í einu og öllu á grundvelli EES samningsins.

Frjálsir menn um allan heim standa með Bretum á þeirra erfiðu stund. Hún verður enn á ný  þeirra "finest hour" í samskiptunum við hin óbilgjörnu meginlandsveldi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Báðir ESB flokkarnir?  Ertu að meina þá sem samþykkt hafa hvern ESB pakkann á færur öðrum á þingi?  Eru þeir ekki fimm, ef ekki fleiri?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.10.2018 kl. 11:40

2 Smámynd: Halldór Jónsson

 Símon, Pétur Sjálfstæðisflokkurinn er á móti nema forystan, hún er á öðru máli  að margir halda.

Hvar er þetta Hákot sem þú kennir þig til?

Halldór Jónsson, 2.10.2018 kl. 12:47

3 identicon

Veit það, en af hverju akta þá ekki þingmenn og ráðherrar sem flokksmenn vilja?

Hákotin er víða Halldór minn, þar búa þjóðlegir og sjálfstæðir menn.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.10.2018 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3418232

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband