Leita í fréttum mbl.is

Kolefniskjaftæðið

ríður húsum.

Þar fer hátt umboðslausi umhverfisráðherrann sem enginn kaus. Hann heldur tölur út og suður um kolefnisútblásturinn og nauðsyn þess að leggja píslir á landslýð og þá lægstlaunuðu til þess að þjóna samþykkt hinna fjörtíuþúsund fífla AlGore frá París.

Valdimar H. Jóhannesson skrifar af glöggskyggni um þetta mál og segir m.a.:

".... Fullyrðingar um að núna séu síðustu forvöð að bjarga heiminum vegna ofhitnunar og hamfara henni samfara eru að mínu mati glórulaust bull eftir að hafa heyrt í fjöldanum öllum af merkustu vísindamönnum heims um þetta efni.Þeir harðneita því að nokkur vandi stafi af koltvísýringi ættuðum úr mannheimi né koltvísýringi almennt, enda helsta byggingarefni lífsins og í minna magni í andrúmslofti nú en oft áður í sögu jarðar.

Sumir kynnu að ætla að svona orðræða sé meinlaus. Telji þægilegast að fylgja fjöldasefasýki heimsins því að óneitanlega blása vindarnir helst í þessa átt núna.

Benedikt gerir því eins og Riefenstahl sem flaut með straumnum og naut góðs af. Eins og mynd Riefenstahl leiddi til aukinna hörmunga mun áróður umhverfisofstækisins leiða illt af sér nema ljósgeisli almennrar skynsemi geti brotið sér leið í gegnum myrkrið og þöggunina sem andstæð sjónarmið hafa mátt þola.

Svona grunnhygginn áróður mun kosta íslenska skattgreiðendur mikið og fækka tækifærum til þess að taka á aðkallandi verkefnum vegna aukins kostnaðar af dýrum lausnum þar sem ódýrari lausnir blasa við.

Hann mun skila þjóðinni lakari lífskjörum og verra mannlífi. Nær væri að snúa af þeirri braut sem stjórnmálamenn hafa kallað yfir okkur með Parísarsamkomulaginu alræmda og fyrirsjáanlegra tröllaukinna umhverfissekta sem þjóna engum markmiðum nema að dekra við sjálfbirgingana, sem hafa leitt þetta yfir okkur.

Svo ekki sé talað um sprenghlægilegu ímyndarsölumennskuna með kolefniskvótum. Þetta og ætlun stjórnvalda að fylla upp í mýrarskurðina út um allt land sem kostuðu tugi milljarða króna af almannafé er svo fráleitt að Orwell og Huxley hefðu aldrei sett það í bækur sínar þó að þeim hefði dottið slík geggjun í hug.Þeir vissu að enginn hefði getað trúað svo ýktri mynd af framtíðinni!

Með því að hafna bestu orkugjöfum hvers tíma er verið að dæma Íslendinga til minni velmegunar og leiða yfir vanþróuðu löndin hörmungar sem einnig munu hitta okkur fyrir. Þróunarlöndin munu aldrei komust upp úr fátæktinni nema þeim standi til boða hagkvæm orka.Umhverfisofstækið er að dæma þessi lönd til áframhaldandi fátæktar.

Ódýra orkan og vélaraflið dró okkur upp úr volæðinu á síðustu öld og er ein helsta forsenda velmegunar okkar...."

Íslendingar eru að dæma sig til viðvarandi fátæktar á grundvelli slagorða og ósannaðra fullyrðinga með kolefniskjaftæðinu sem er nokkur óvévefengjanlegur vísindalegur grunnur fyrir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það sem sker sig úr í þessari grein Valdimars er að hann fullyrðir hreint út, án minnsta fyrirvara, að Benedikt Erlingsson og samverkafólk hans standi ekki aðeins jafnfætis verstu áróðursmeisturum Hitlers og nasista, heldur séu þessir Íslendingar jafnvel verri en illmennin, sem ollu mestu hörmungum síðustu aldar. 

Ekki minnist ég þess að nokkur maður hafi skrifað neitt viðlíkt um landa sína. 

Ómar Ragnarsson, 10.11.2018 kl. 19:30

2 Smámynd: Haukur Árnason

"enda helsta byggingarefni lífsins og í minna magni í andrúmslofti nú en oft áður í sögu jarðar." Er þetta ekki rétt sem Valdimar segir ? Hefur ekki verið minna í einhver miljón ár. ?

Haukur Árnason, 10.11.2018 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418231

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband