Leita í fréttum mbl.is

Það er dapurlegt

að maður fái bréf frá Sjálfstæðismanni sem lýsir svona hugsunum:

"Ég var stoltur af því að kenna mig við Sjálfstæðisflokkinn. 

Byrjaði 1974 og þá bara 12 ára

að vinna fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þá var

kosningayfirlýsingin "Varist vinstri slysin".

Seinna var það "Báknið burt"

 

Núna horfi ég uppá eitthvað sem ég hefði

aldrei trúað. 

 

Forystan er ekki í tengingu

við grasrótina. Forystan virðir ekki samþykktir

landsfundar. Eins og þær hafi ekki verið til.

 

Forystan hagar sér EKKI eins og

sjálfstæðismenn, heldur algjörir lúserar

með eigin hagsmuni í forgangi.

 

Ekki þjóðar.

 

Nafnið sem slíkt, Sjálfstæðiflokkur, ætti að vera

nógu hvetjandi fyrir alla til að kjósa: Sjálfstæðisflokkurinn stétt með stétt.

 

Það vísar í þann grunn sem allir vilja vera í."

 

Hugsið ykkur hvað það er dapurlegt fyrir mann sem Sjálfstæðismann að fá svona tilskrif.

Að flokksmenn séu almennt ekki að tala flokkinn upp úr 19.8% fylginu sem hann er kominn niður í  heldur eitthvað sem stefnir bara niður.Enginn eldmóður, enginn baráttuandi, engin gömul grundvallaratriði. Þess í stað orkupakki,17 nýir aðstoðarmenn,  meira EES og refsiaðgerðir gegn Rússum.

Ég get sjálfur ekkert gert í neinu vegna aldurs og sit líklega ekki fleiri landsfundi Sjálfstæðisflokksins. En eins og Douglas McArthur orðaði það, þá deyr gamall hermaður samt aldrei heldur bara dofnar og hverfur sýn.

En að það skuli vera sjálfstæðismaður frá 1974 sem er að hugsa svona finnst mér samt dapurlegt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór Verkfr. !

Þið Sjálfstæðismenn: sem ennþá má kalla SANNANLEGA / hrækið í lófa ykkar, og kastið Engeyinga Mafíunni í 1 lagi, fyrir borð.

Sjáið svo til - takist ykkur að reisa við, merki Jóns heitins Þorlákssonar collega þíns, hvort ekki takist að reisa stoðir við að nýju, en,, .......... þá verðið þið líka að sverja af ykkur tengzlin við þann undirheima lýð, sem þið berið á höndum ykkar í dag - og varpa ÖLLU þingmanna liði ykkar jafnframt, fyrir borð.

Helzta keppikefli: núverandi þingmanna hóps Sjálfstæðis flokksins er Hvívíns þamb og Humarát, auk óendanlegs aksturs bifreiða, á kostnað almennings í landinu / fyrir nú utan skefjalausa græðgina eftir sí- hækkandi ofur- launum fyrir vinnu, SEM EKKI ER MÆLANLEG á nokkra vegu (nema í prívat þágu viðkomandi þingmanna sjálfra, og gæðinga þeirra), frekar en flestra þingmanna hinna flokkanna.

Þér er alveg óhætt Halldór minn - að reifa þessa hugmynd mína, á næsta Kópavogsfundi ykkar:: jafnvel fyrr ef eitthvað væri, ágæti drengur.

En: að óbreyttu koðnið þið bara niður, sem aðrar venjulegar dreggjar samfélagsins, hugmyndafræðilega:: fornvinur góður !

Með - hinum ágætustu kveðjum, sem oftar, af Suðurlandi /     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 17:58

2 identicon

Já, það er dapurlegt og um leið uggvænlegt.

Við erum margir með böggum hildar, að forysta þessa fyrrum móðurflokks sjálfstæðra manna skuli nú skipuð leppum ESB búrakraterísins, sem samfylktir í tossabandalagi með Viðreisn og Pírötum og græningjaskatta viðrinunum í Vg.

Já, það er dapurlegt að svo skuli komið.

En umfram allt er það uggvænlegt, því hvar og hvernig eigum við að skipa okkur í brjóstvörn og til sóknar fyrir hin gömlu og einu sönnu gildi sjálfstæðra manna?  Réttnefni slíks flokks væri vitaskuld Sjálfstæðisflokkurinn, en hvað er til ráða þegar forystan hefur teymt flokkinn á þær villigötur, að hann stendur ekki lengur undir nafni?  

En gleymum því ekki, að við erum hér enn, við sem áður kusum flokkinn til 40% fylgis.  Við erum hér enn, gleymum því ekki.  Enn er von.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 18:17

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Thetta tilskrif gaeti allt eins verid frá ótal fjölda sannra Sjálfstaedismanna, sem eitt sinn horfdu med stolti til flokks síns, forystu hans og gódra verka. Mönnum og konum sem töldu thad ekki eftir sér ad vinna fyrir flokkinn, hvad svo sem til féll án endurgjalds, thvi hugsjónin brann theim í brjósti. 

 Í dag er hún Snorrabúd stekkur og forysta flokksins eins langt fjarverandi og hugsast getur, frá stefnu og gildum Sjálfstaedisflokksins. Aldrei í sögu Sjálfstaedisflokksins hefur jafn ósjálfstaed og leiditöm forysta leitt hann. Alger hugsjónagelding og eigin hagsmunagaesla einkennir forystuna, thví midur.

 Hafi hún skömm fyrir, ad hafa glutrad nidur ásýnd og helstu stefnumálum flokks allra stétta, Sjálfstaedisflokknum. Liggja eins og drusla fyrir erlendu valdi og sósíalkratískum hraerigraut embaettismannaklíku og fullveldisafsalssinnum, eins og portkona á nidursettu verdi.

 Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 24.11.2018 kl. 18:38

4 identicon

Heill og sæll Halldór. 

Það er ljóst margur hefur orðið vonsvikinn með þennan nýja sjálfstæðisflokk, sem virðist skipa sér það helst til ágætis að leiða í valdastöður og  framvarðarsveit flokksins ungt  reynslulítið fólk. Það er ljóst að þetta reynslulitla fólk það er að sjá að það virðist ekki hafa skilning á því að vermda þjóðarhagsmuni og auðlindir landsins.

  Þetta fólk sem í oflæti sínu hlustar ekki á þjóðarröddina er að leiða þjóðina í átt til ESB

  Í dag  er sjálfstæðisflokkurinn að verða flak, ónýtur. Með sama áframhaldi býður hans ekkert annað en að verða áhrifa og getu og gagn laus.

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera við stjórn landsins lengst af lýðveldistímanum.  Hvernig er staða landsins í dag í höndum þessa útvalda fólks og nýja sjálfstæðisflokksins.

  Skólamál , Vegamál. Heilbrigðismál, Löggæsla.  Flest á brauðfótum. 

Misskipting eigna er orðinn þannig að 10% þjóðarinnar á mestan þjóðarauðinn sem stjórnmálafólk lét falla í hendur braskara s.s framsal sjávarafurða var leyfð, og braskarar fengu að veðsetja sameiginlegan þjóðarauðinn. 

Sjálfstæðismaðurinn frá  árinu 1974 er væntanlega kannski fyrir löngu búinn að gera upp við sinn innri mann. Losa sig frá þeim viðjum sem áður tengdi hann við þann gamla  þáverandi stjórnmálaflokk sem í nútíð er að teygja hann og tæta.  Ungi sjálfstæðismaðurinn frá 1974 er væntanlega ekki lengur að heyja styrjöld við sinn innri mann, hann er laus og frjáls.

Gamlir sjálfstæðismenn vita að Í fræðunum segir að það sé ekki hægt að saga sag.

Eðvarð L. Árnason (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 18:52

5 identicon

Rétt 17 ára var mér treyst af föður mínum, miklum Sjálfstæðismanni, að keyra milli landsfjórðunga til að ná í tvö kjörseðla sem beðið var um af þeim tveimur kjósendum xD að þeir kæmust örugglega til skila í sitt rétta kjördæmi á þeim hinum sama kjördegi. Og vitaskuld var allur sá akstur og kostnaður unninn í sjálfboðaliðsstarfi.  Þá var Sjálfstæðisflokkurinn flokkur sjálfstæðra manna sem trúðu á grunngildi hans og hugsjónir.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 18:56

6 identicon

Og trúðu og vissu að hvert atkvæði skipti máli!

Nú er forystu flokksins drullusama þó hann sé í frjálsu falli.  Og  hví skyldi þá ekki æ fleiri vera drullusama um þá forystu og þann flokk sem hagar sér á þingi sem viðrinisflokkur á sokkaleistunum?

En enn spyrjum við, sjálfstæðir menn af gamla skólanum, hvað er til ráða svo við glutrum ekki niður sjálfstæði okkar og fullveldi á þeim hinum sama tíma og þingmenn og ráðherrar flokksins liggja flatir sem portkonur fyrir ráðstjórnarríkinu ESB?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 19:27

7 identicon

Allt fer í hring í henni veröld.

Fyrir tíu til tólf árum gátum við lesið um það í fréttamiðlum að Íslenska þjóðin ætti sérstaka snillinga á fjármálasviðinu.  Það mátti einnig lesa að íslendingar keyptu aldagamlar verslunarkeðjur,  og virðulegustu hótel á Norðurlöndum. Frétt sagði frá því að þessir fjármálasnillingar ætu gull í miklum og sverum veislum.  Við þjóðin stóðum á öndinni yfir snilli þessara manna og hvað meltingarfæri snillingana voru öflug að melt gull. En svo sprakk blaðran,  gulláti var hætt, hótel seld, og verslunarkeðjurnar leystust upp.  Áttu íslendingar enga snillinga, voru þetta flón en þó ekki meiri en svo að þjóðin borgaði þeim fjárfúlgur.

Árin hafa liðið nú er búið að gróðursetja efnivið í nýja snillinga.  Nú á ekki að kaupa hótelkeðjur, og alls ekki að eta Gull amk strax.  Nú skal kaupa flugfélög og innan tíðar má sjá sprotana handleika flugfélög eins og  t.d Cabo Verde.  Hvað hétu öll flugfélögin áður var ekki eitt sem hét Primera og og.  Kannski koma fram snillingar aftur og kannski verða þeir í sverum veislum og eta Gull.  Það er ekki lengra en tíu tólf ár síðan  fyrri snillingar voru uppi og átu Gull.

Allt getur farið í hring.  

Eðvarð L. Árnason (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 21:25

8 identicon

Bara til fróðleiks:

Árið sem mér var treyst til að sækja kjörseðlana þvert yfir landsfjórðunga var einmitt 1974

og flokkurinn fékk þá 42,7% fylgi.

Nú reiðir flokkurinn á það helst að skammta sér ríkisstyrki og hækka framlag til samsekra flokka um 127%, hverjum.  Flokkur á ríkisframfæri, þvílíkir vesalingar og hryggleysingjar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.11.2018 kl. 21:33

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Þettta tilskrif snertir einhverja fleiri en mig

Halldór Jónsson, 25.11.2018 kl. 07:25

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Andvaka Upp í sveit hugsandi;;á landið okkar það ekki inni hjá okkur að við klæðumst nýjum brynjum og sækjum það sem því ber og er fullkomlegalöglegt. ÞurKum framan úr okkur stýrurnar ogEaeaafram látum vera að grenja Björn bóndadurg,fyrst við komum okkur í þetta. Menn geta verið myndugir/prúðir þótt þeir beiti aga,nokkuð sem àtti löngu að vera tekið upp.

Helga Kristjánsdóttir, 25.11.2018 kl. 09:34

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Björn  sè enginn flokksbóndi en Barni er það ennþà..

Helga Kristjánsdóttir, 25.11.2018 kl. 09:43

12 identicon

Hafðu miklar þakkir fyrir Halldór, að hrista vel upl í hlutunum.  Gamall hermaður er sá sem hefur lært af reynslunni hvað ber helst að varast.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.11.2018 kl. 21:18

13 identicon

og hvenær ber að hefja sókn, leiftursnögga sókn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.11.2018 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband