3.12.2018 | 11:12
Vatnið skal renna upp í móti
skv. ákvörðun Dags B. Eggertssonar og Alþingis.
Leiðari Morgunblaðsins er svohljóðandi í dag fyrir þá sem ekki lesa það blað:
"Kynnt voru á dögunum áform um framkvæmdir í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu á næstu fimmtán árum. Þetta eru metnaðarfull áform, í þeim skilningi að þau eru mjög kostnaðarsöm, en ekki í þeim skilningi að líklegt sé að þau leysi umferðarvandann.
Áætlað er að setja þurfi um 90 milljarða króna í samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033. Af þessum milljarðatugum er gert ráð fyrir að nær helmingur, 42 milljarðar króna, fari í svokallaða borgarlínu.
Að setja nær helming fjármagnsins í ferðamáta sem skilar um 4% ferðanna er augljóslega afar undarleg ráðstöfun. Ekki verður hún síður undarleg þegar horft er til þess að á fyrsta tímabili fimmtán ára áætlunarinnar, frá 2019-2023, er áformað að rúmir 17 milljarðar fari í borgarlínu og aðrar almenningssamgöngur en aðeins rúmir 4 milljarðar í vegabætur.
Á sama tímabili fara yfir 2 milljarðar króna í hjóla- og göngustíga og göngubrýr. Áherslurnar sem þetta lýsir eru verulegt áhyggjuefni fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins enda bendir allt til að þær umferðarteppur sem íbúarnir hafa mátt sitja fastir í á leið í og úr vinnu muni fara vaxandi á næstu árum.
Í skýrslu með nýju fimmtán ára áætluninni er rifjað upp að í maí 2012 undirrituðu ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu samkomulag um 10 ára tilraunaverkefni til eflingar almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Meginmarkmið samkomulagsins er að tvöfalda a.m.k. hlutdeild almenningssamgangna í öllum ferðum sem farnar eru á höfuðborgarsvæðinu á samningstímanum og sporna með þeim hætti við tilsvarandi aukningu eða draga úr notkun einkabílsins, og draga jafnframt úr þörf á fjárfrekum fjárfestingum í nýjum umferðarmannvirkjum.
Aðilar voru sammála um að fresta tilteknum stórum framkvæmdum í samgöngumannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu, meðan samningur væri í gildi, en endurskoða mætti þessa frestun í ljósi umferðarþróunar.
Í skýrslunni er reynt að halda því fram að flest hafi verið upp á við hjá Strætó eftir þetta samkomulag, til dæmis hafi farþegum fjölgað stöðugt. Fjölgun er vitaskuld eðlileg þegar horft er til mikillar fjölgunar íbúa, en breytir ekki þessari meginstaðreynd, sem einnig er nefnd í skýrslunni:
Þrátt fyrir þetta hefur hlutdeild almenningssamgangna í öllum ferðum á höfuðborgarsvæðinu staðið í stað, og var um 4% árið 2017. Eitt lykilmarkmið verkefnisins var að sú hlutdeild myndi ná 8% árið 2022. Átakið árið 2012, þar sem fjármagn var flutt úr vegabótum í almenningssamgöngur, átti að skila því að hlutfall ferða færi úr 4% í 8%, en skilaði engu.
Þetta var meginmarkmið samkomulagsins, eins og rifjað er upp í nýju skýrslunni. Hlutfallið er enn 4%. Nýja áætlunin tekur ekkert mið af því að enginn árangur náðist, nema síður sé. Í stað þess að draga þær ályktanir sem augljósar eru af tilraunastarfsemi síðustu ára er gengið enn lengra í fjárfestingum í almenningssamgöngum og áætlað að enn meiri árangur náist en síðast var áætlað þó að árangurinn yrði enginn þá.
Þá var reiknað með að almenningssamgöngur færu úr 4% í 8%, nú er bætt um betur og gert ráð fyrir að þær fari úr 4% í 9%!
Þessi stórundarlega forsenda er auðvitað ekkert útskýrð og ekki gerð tilraun til að færa rök fyrir því hvers vegna árangurinn ætti að verða svo mikill nú þegar hann varð enginn áður. Ekki er nóg með að þeim framkvæmdum sem líklegast er að skilað geti árangri sé að mestu frestað áfram, heldur eru nú uppi áform um stóraukna skattheimtu á íbúa höfuðborgarsvæðisins til að standa straum af óráðsíunni.
Talað er um að leita nýrra leiða til fjármögnunar framkvæmda við uppbyggingu innviða Borgarlínu. Þessar nýju leiðir eru nýir skattar sem kynntir eru til sögunnar undir nöfnunum innviðagjöld, veggjöld, hækkun kolefnisgjalda og aukin gatnagerðagjöld.
Öll væri þessi nýja skattheimta óþörf ef ekki stæði til að ráðast af miklu afli í óhagkvæmar samgönguframkvæmdir í stað þess að leggja áherslu á að bæta vegakerfið á höfuðborgarsvæðinu með því að leysa þá hnúta sem þar er að finna.
Óráðsía og óskhyggja hafa ekki skilað árangri í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins hingað til og munu tæpast gera það hér eftir."
Er það ekki raunalegt að hugsa til þess að vinstri bræðingurinn í Borgarstjórn Reykjavíkur skuli geta farið svona með skattfé landsmanna þegar milljarðar á milljarða ofan eru settir í hluti sem engum munu gagnast.
Yfir Breiðholtsbraut er glæsileg göngubrú sem kostaði um 145 milljónir. Reist af verktakafyrirtækinu Skrauta ehf. á alveg sérlega glæsilegan og fagmannlegan hátt. Ég keyri undir þessa brú 2-8 sinnum á dag. Ég hef núna á mörgum mánuðum aðeins einu sinni séð gangandi mann á brúnni.Annars er hún alltaf auð Hinsvegar sé ég í hvert sinn sem ég keyri Miklubrautina, sem er talsvert oft, hvernig gangandi vegfarendur stífla umferðina allt til Kringulmýrarbrautar með því að spila á gangbrautarljósin. Af hverju var þessi brú ekki frekar reist þarna? Byggja vinstri menn ávallt brýr á þurru landi frekar en þar sem fljótið rennur?
Vatn er alltaf tregt til að renna upp í móti nema afli sé beitt eins og er í þessu tilviki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.