8.12.2018 | 20:56
Forréttindahópur
eru þeir orðnir sem ekki ferðast með einkabílnum. Þeir soga til sín skattfé í engu hlutfalli við hagsmuni fjöldans sem verður að greiða fyrir það sem hann vill ekki.
Allt fyrir draumóra sérvitringa sem hafa náð völdum fyrir tilviljunarkennda pólitíska niðurstöðu sem fjölgun Borgarfulltrúa færði kjósendum.
Einkabílafólkið verður að líða fyrir framkvæmdaleysið í gatnagerðinni fyrir einhverjar sýnir draumóramanna sem mynda bræðingsmeirihlutann í Borgarstjórn Reykjavíkur. Það verður að þjást í töfum, mengun og kostnaði þar sem draumórafólkið reynir að valda því sem mestu skaða.
Svo segir í Staksteinum Morgunblaðsins:
"Ívar Pálsson viðskiptafræðingur skrifar á blog.is:
Áherslur borgarstjórnarmeirihlutans í umferðarmálum Reykjavíkur skila sér í þremur dögum á ári í umferðartöfum. Milljarði króna á ári heldur áfram að vera sóað í að reyna að fá strætó-elítuhópinn sem fer 4% ferðanna, til þess að stækka, en það gerist ekki. Fyrst árangur af því er enginn, þá er bætt um betur og tugir milljarða króna settir í Borgarlínu, sem mun auka tafirnar enn frekar.
Bílafloti Reykvíkinga stækkaði ört og fólk mun ekki skilja nýja bílinn eftir heima næstu árin, hvort sem hann er drifinn áfram af rafmagni eða af öðru. Framlag til vegabóta og aukins umferðarflæðis er skammarlegt á sama tíma, auk þess sem áhersla Dags borgarstjóra er enn á það að hægja á umferð (með frábærum árangri), ekki að hámarka flæði, sem t.d. tölvukerfin geta gert.
Djöfullinn finnst alltaf í smáatriðunum og nú er að koma í ljós hvernig Borgarlínan er: stærðar svæði tekið undir strætó, hjól og gangstíga, en ein akrein fyrir bíla, sem fara 70-80% ferðanna.
Við þetta bætist að þeir sem verða svo óheppnir að búa nálægt Borgarlínunni svokölluðu fá að greiða hærri skatta; sérstaka innviðaskatta. Breytir engu í því sambandi hvort þeir nota áfram eigin bíla, sem er líklegast, eða taka allt í einu upp á því að ferðast um með strætó á sterum. "
Það er eitt hversu hlægilegt það er að menn í stætóelítunni skuli ekki opna augun fyrir því sem er að gerast í nærumhverfinu. Annað er hversu framtíðarþróunin skaðast á töfunum sem þetta fólk er að valda í nútímanum.
Allstaðar eru byggð mislæg gatnamót og akreinum fjölgað eftir því sem kostur er. En Dagur B. Eggertsson segir þeirra tíma vera liðinn í Reykjavík.
Menn reyni að sjá gatnamótin sem eru á Reykjanesbraut við Garðabæ fyrir sér vera komin á Kringlumýrarbraut og Miklubraut og göngubrúna á Breiðaholtsbraut vera komna í stað gangbrautarljósanna á Miklubrautinni? Hvað myndi ekki breytast?
Það verða dýrkeypt mistök að verða að þola Dag sem Borgarstjóra afturhaldsins núlíðandi kjörtímabil og er ábyrgð Viðreisnar og Pírata mikil í þeim efnum. En fylgi slíkra skoðanalítilla flokka kaupa valdabraskarar allsstaðar auðveldlega fyrir skattfé.
Kostnaðurinn og öfugþróunin munu fylgja Borginni til margra ára sem tekur að vinda ofan af draumsýnum Hjálmars og Dags þegar fólkið hefur greitt atkvæði í næstu kosningum.
"Gangandi og hjólandi" er ekki umferð heldur lífsstíll og aðeins 4 % fólks velur sér að keyra í Strætó eða Borgarlínu. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hluti sem vill komast leiðar sinnar sem greiðast í einkabílnum, er það sem felst í hugtakinu umferð. Þeir ættu auðvitað ekki að vera minnihlutahópur sem líður fyrir forréttindi yfirgnæfandi minnihluta draumóraelítunnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þá veit maður það. Að eftir að hafa fært meiripartinn af ferðum sínum yfir á tvö misstor hjól, er maður kominn í forréttindahóp.
Og ég sem hélt að með því að vera á hjóli væri ég að gefa eftir það pláss í bílaumferðinni sem ég hefði tekið á bíl.
Ég er sammála gagnrýninni á vanrækslu við gerð mannvirkja sem liðka fyrir bílaumferð og gera hana öruggari, en sé hins vegar ekki hvernig hægt er að finna pláss fyrir 30 þúsund viðbótar sístækkandi einkabíla sem eiga eftir að bætast við bílaflotann á höfuðborgarsvæðínu á næsta áratug.
Jafnvel í umferðarteppu á hægri ferð, þegar þessir bílar taka minnst rými, þurfa þeir minnst 15 metra hver, eða samtals 450 kílómetra af malbiki.
Og við erum að tala um viðbót við þá 3000 kílómetra, sem núveradni bílafloti tekur, enda eru um 50 prósent flatarmáls Reykjavíkurbyggðarinnar malbikuð samgöngumannvirki, vegir, götur og bílastæði.
Vísa til bloggpistils míns í fyrradag um þetta efni.
Ómar Ragnarsson, 8.12.2018 kl. 22:49
Það eru þá semsagt forréttindi að hafa ekki efni á bíl og "fá" að ferðast með strætó og vera marga klukkutíma á dag að skrölta um í þessum forneskjulegu farartækjum?
Þorsteinn Siglaugsson, 9.12.2018 kl. 11:30
Hvernig mynduð þið leysa umferðarmálin í Orlando? Heldur Ómar að þau séu óleysanleg? Eru umferðaramálin Reykjavík óleysanleg sem er miklu minni borg en Orlando? Hjól Ómar eru hans lífsstíll sem breytir engu fyrir mig. Hann má hjóla að vild án þess að það trufli mig.
Halldór Jónsson, 9.12.2018 kl. 12:49
Í Washington var umferð eftir aðalumferðaræðinni úr suðri takmörkuð við þá bíla, þar sem fleiri en einn var um borð þegar ég var þar á ferð.
Þetta var það sem ég sá tekið til bragðs. Við erum með þúsundir smárra og stórra borga um víða veröld þar sem reynt er að leysa vandann á fleiri vegu en með endalausum austri í risa breiðgötur og mislæg gatnamót, ég tala nú ekki um þar sem hvorki er rými né fé fyrir slík mannvirki.
Um Orlando veit ég ekki neitt, hvorki um rými fyrir slíkt né peninga til þess.
Þess má geta, að á helstu hjólaleið minni frá Spönginni í Grafarvogshverfi vestur fyrir Elliðaár eru hjóla- og göngustígar sérlega krókóttir, brattir og seinfarnir.
Á þeirri leið er rafhjólið svo sannarlega með engin forréttindi miðað við einkabílinn, heldur þveröfugt.
Létta vespuvélhjólið notar göturnar eins og bílar og nýtur því engra forréttinda í skattfé, heldur sparar stórfé í stæði og gefur eftir rými á götunni fyrir einn auka einkabíl í stað bílsins, sem ég væri annars á.
Ómar Ragnarsson, 9.12.2018 kl. 17:03
Nei Ómar , vespan skapar ekkert rými. Við bílstjórar eru svo hræddir við ykkur hjólamenn að við aukum fjarlægðina frá ykkur og öll sú aukavarkárni sem þið neyðið okur til að sýna tefur stórkostlega fyrir umferðinni. Þú ert náttúrlega gersamlega ábyrgðarlaus gagnvart fjölskyldu þinni að að leggja þig í svona stórhættu að vera að þvælast á svona manndráptækjum eins og vélhjól eru. Og ég tala af talsverðri reynslu hérlendis og erlendis. Þú hugsar ekkert um það hvernig fjölskyldu þinni myndi líða að taka á móti þér í klessu, öryrkja fyrir lífstíð eða dauðum sem þú hefðir ekki lent í á bíl. Þette er algerlega ábyrgðarlaus hegðun hjá þér eins og þú hefur nú legið undir grun um allt lífið að vera sekur um eins. Varla getur þú mótmælt því til dæmis hvort hlutdeild þín í flugatvikum sé ekki hærri en margra annarra sem eru kjarkminni en þú og sem reyna að fara varlegar.
Reyndu nú að hugsa örlítið ábyrgt einu sinni.
Halldór Jónsson, 9.12.2018 kl. 17:18
Og farðu nú ekki í fýlu við mig þó að ég skjóti á þig, það má alveg tala íslensku við mig líka. Við verðum ekki verri vinir eftir það.
Halldór Jónsson, 9.12.2018 kl. 17:21
Það er eins gott að hlusta þegar að frálsræðis skoðanakóngurinn eys úr viskubrunni sínum. Ómar verður að átta sig á því að hann er ekki bara fyrir kónginum heldur þarf Ómar líka að átta sig á því að skammast sín fyrir að leggja sitt eigið líf í hættu. Þessi vespa hans Ómars er til tómra vandræða.
Ég held þú ættir að ganga alla leið Halldór og krefjast þess að fá að birta grein um þennan ólifnað hanns Ómars í Morgunblaðið. Jafvel að fara í mál við einhvern og búa til herferð. Þegar ég fer að hugsa það betur þá sé ég að þetta er allt að koma hjá þér!
Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 9.12.2018 kl. 23:28
Já hvað segið þið eru engar umferðatafir í Kópavogi, Hafnarfiðri eða Garðabæ? Ég hef nú séð bílaraðir silast lúshægt á þessum stöðum.
Skeggi Skaftason, 12.12.2018 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.