Leita í fréttum mbl.is

Jón Gunnarsson

er á Silfrinu að skýra út veggjaldafjármögnun umferðamannvirkja.Jón er búinn að vinna stórvirki í því að vinna fólk inn á þessa aðferð.

Þá rís upp einhver kona við hliðina á honum og heimtar að veggjöldin renni í almenningssamgöngur og loftslagsmál. Bullinu eru engin takmörk sett. Það er verið að leggja á notkunargjöld til að fjármagna umferðarmannvirki en ekki almenningssamgöngur eða umhverfismál. 

Það er ekki björgulegt ef áhrifafólk skilur ekki grundvallaratriðin á bak við hugmyndina um að fjármagna stofnmannvirki með notkunargjöldum.

Jón Gunnarsson skýrði sitt mál eins vel og unnt er en sumt fólk er algerlega rökhelt og ekki er hægt að skýra svona hugmyndir  fyrir því.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jón var alveg óvanalega lélegur í þessum þætti. Málið illa undirbúið eins og Þorsteinn Víglundsson benti á og reyndar Rósa líka. Reyndi svo að nota tilfinningaklámrök varðandi aukna slysatíðni. 

Vandinn er sá að peningar verða ekki til úr engu. Jón G. var með nákvæmlega sömu rök og Steingrímur J. í kosningabaráttunni síðustu þegar sá taldi Vaðlaheiðagöng ekki kosta neitt af því þau væru fjármögnuð af sjálfum sér.Eru þó vegskattar mun réttlætanlegri í stórframkvæmd eins og gangnagerð. 

Með því að setja á vegasakatt en halda áfram að hirða 80 milljarða úr eldsneyti þá er verið að beita hrikalegri ofsköttun. 

Allt annað mál væri ef dregið væri úr sköttum í eldsneyti á móti því sem legst á í vegsköttum. 

Furðulegt að sjálfstæðismenn skuli gúddera svona rugl.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 12:55

2 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Og: þakka þér fyrir Sám fóstra ávallt, sem kom núna út, á dögunum.

Halldór Verkfr. !

Því miður - rennir þú algjörlega blint í sjóinn, hvað meinta mannkosti Jóns Gunnarssonar þingmanns varðar. Hvergi nefnir Jón þá misbrúkun Bifreiðagjaldanna, sem Ríkissjóður SKULDAR heimilum og fyrirtækjum í landinu:: allar götur, frá 1. Janúar árið 1991.

En eins: og ég hefi margsinnis bent á áður / jafnt: hér hjá þér sem og víðar Halldór, áttu Bifreiðagjöldin aðeins að vara, frá 1. Janúar 1989 - 31. Desmber 1990, í mesta lagi.

Skv. - MARG yfirlýstum svardögum Þorsteins Pálssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar þáverandi ráðherra, í Kastljóss þætti Ríkissjónvarpsins, í September árið 1988.

Jóni Gunnarssyni: sem og einum helzta lagsmanni hans, Sigurði nokkrum Inga Jóhannssyni væri nær, að uppfræða landsmenn um örlög þeirra Tuga- og Hundraða Milljarða Króna, sem Ríkissjóður Íslands hefur HLUNNFARIÐ okkur um, í liðlega 27 ár, sem Bifreiðagjöldin nefnast, áður en þeir fara af stað með INNISTÆÐULAUST jarm eftir svokölluðum vegatollum eða vegagjöldum, úr fórum almennings:: eitthvað frekar.

Eða - sýndist þér nokkuð til of mikils mælst Halldór, að við fengjum inneignir okkar greiddar úr Ríkissjóði, áður en þeir kumpánar héldu áfram söngli sínu, eftir frekari útgjöldum í nafni samgangna, frá almenningi og fyrirtækjunum, í landinu ???

Með beztu kveðjum: sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 13:00

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Bjarni Gunnlaugur

Þú ert rökheldur að vanda.

Og Óskar Helgi, seint yrðu framfariri  í landinu ef þú réðir.

Halldór Jónsson, 16.12.2018 kl. 13:34

4 identicon

Sælir - á ný !

Halldór Verkfr. !

Bjarni Gunnlaugur: er einungis að benda á staðreyndir / og hvergi sé ég gæta rökheldni, í hans orðum.

Og annað - Halldór minn.

Mega farmfarir ekki eiga sér stað í landinu - séu þær ekki byggðar á heiðarleika og sanngirni yfirleitt, í stað hins gagnstæða ?

Finnst þér virkilega Halldór: að menn eins og Jón Gunnarsson og Sigurður Ingi Jóhannson eigi að fá að vaða uppi, með lævíslegum Gylliboðum og lýðskrumi, til þess að réttlæta frekari útgjöld fólksins í landinu:: bótalaust, með áfram haldandi krafsi í vasa og pyngjur Bifreiðaeigenda ?

Vona halldór minn - að þér sundli ekki svo mjög, við reyna að afsaka þá Jón og Sigurð Inga og vinnubrögð þeirra.

Með sömu kveðjum: sem þeim síðustu / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 13:47

5 identicon

.... afsakaðu Halldór: litla stafinn í nafni þínu, undir lokin hér að ofan / fljótfærni minni, um að kenna.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 13:51

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Allavega liggur meira eftir þá í samgöngumálum  en þig Óskar minn Helgi

Halldór Jónsson, 16.12.2018 kl. 14:04

7 identicon

Halldór, sjálfstæðisflokkurinn á að fara með þetta sem kosningamál í næstu kosningar .   Ekki að setja á skatta á og koma svo í kosningar og kannast ekkert við eigin gjörðir um auknar álögur  !

JR (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 14:15

8 identicon

Sælir - sem fyrr !

Halldór Verkfr. !

Telst þá: ástand Vatnsness vegar í Húnaþingi t.d., til afreka skrár Jóns Gunnarssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar, sem og annarra fyrirennara þeirra ?

Getum við Halldór - aftur á móti, ekki talist til ákveðinna afrekasmanna, að hafa goldið okkar skatta og ýmiss gjöld til samfélagsins, þó svo::: ekki sé okkur (þér og mér) né öðrum samlöndum að kenna, MISBRÚKUN gjörspilltra embættis- og stjórnmálamanna á þeim fjármunum í gegnum tíðina, fornvinur góður ?

Hinar sömu kveðjur sem áður: að sjálfsögðu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 14:17

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Bjarni Gunnlaugur setur fram góða athugasemd og tek undir hvert einasta orð hjá honum.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 16.12.2018 kl. 21:38

10 Smámynd: Hörður Þormar

Áður fyrr voru allar vörur fluttar út á land með skipum,. Því er hætt fyrir löngu. Flestar vörur eru nú fluttar með bílum landshornanna á milli, það er miklu fljótvirkara og ódýrara.

En þetta kostar sitt.  Þungaflutningabíll slítur vegunum mörg þúsund sinnum meira heldur en venjulegur fólksbíll.  Hverjir standa undir kostnaði af viðgerð á þessu sliti, eru það þungaflutningabílarnir?

Hörður Þormar, 16.12.2018 kl. 22:42

11 identicon

Sæll Halldór.

Mér sýnist Óskar Helgi og fleiri
hafa nokkuð til síns hvað varðar
þessar ótrúlegu hugmyndir um sérstaka vegtolla.

Að hugmyndir skuli vera uppi um söfnunarbauka
við hvert eitt moldarflag sem liggur frá
höfuðborginni er jafnvel enn vitlausari og verri
hugmynd en sú um þjóðarsjóðinn.

Engu líkara en mönnum nægi ekki að tryggja
kjör sín í þessu lífi heldur þurfi allar
baktryggingar helst að duga fyrir 7földu
framhaldslífi og 500 árum til viðbótar
því sem þegar er komið.

Á hverju er þetta fólk sem við hin fáum ekki(!)

Húsari. (IP-tala skráð) 16.12.2018 kl. 23:42

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Nei Geir Þormar. Það gera þeir ekki. Ekki einu sinni nálægt því. Ástæðan er einföld. Samkvæmt lögum mega flutningabifreiðar, sem skráðar eru erlendis, aka um vegi landsins gjaldfrjálst í allt að tvo mánuði! Ólafur Ólafsson og Eimskipsmafían áttaði sig á þessu  fyrir mörgum árum, en sísofandi stjórnmálamenn og hagsmunagæsluaðilar alþýðu Íslands virðist slétt sama. Látum helvítis skrílinn borga fyrir slitið þó hann hafi að mestu þar hvergi nærri komið! Ferðaþjónustuaðilar gera slíkt hið sama, en sjálfhverf stjórnmála og embættismannaelítan sér ekki rassgats aðra lausn við vandanum en að skattleggja almenning út í hafsauga. 

 Svona ein spurning í lokin.: Er Jón Gunnarsson ennþá samgöngumálaráðherra? Hvar er samgöngumálaráðherra? Jón Gunnarsson er furðulegur fugl í þessari umræðu allri. Hann valt af stalli í síðustu kosningum, eftir því sem ég best veit.

 Er núverandi ráðherra þessara mála svo mikið dusilmenni, að hann sé algerlega "stikkfrí" og beiti valdasjúklingnum Jóni bara óútfylltan tékka í ummælum sínum? Tuðari bara spyr.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 16.12.2018 kl. 23:46

13 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Fyrirgefðu Hörður, að kalla þig Geir. Held ég hafi selt honum Saab fyrir einhveejum árum, en gæti líka skjátlast í því. Svona er maður óakkúrat.

Halldór Egill Guðnason, 17.12.2018 kl. 00:22

14 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Veggjöld eru algeng hjá erlendum þjóðum,eru ráðamenn ekki búnir að kynna sér þau? Man ekki betur en að þau hafi reynst afar vel. Hlustaði ekki á silfrið en síðuhafa finnst Jón Gunnarsson hafa skilað sínu vel,ég efast ekki um það. Eru það meintir mannkostir Jóns Gunnarssonar að fara ekki ræða um misbrúkun Bifreiðagjalda frá 1991,þegar tíminn er honum ætlaður til að skýra væntanleg veggjöld.-Þetta minnir mig á hatrammar deilur um Borgarfjarðarbrúna sem enginn vildi vera af nú. - Halldór heitin sem kenndur er við hana sá lengra fram í tímann en flestir aðrir.

Helga Kristjánsdóttir, 17.12.2018 kl. 09:14

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Spurningar  Jóns eru einfaldar:

Viltu nýjan veg strax gegn því að borga veggjald?

Viltu ekki nýjan veg  strax og ekkert veggjald?

Nafni minn að sunnan, ég hélt að ég gæti fengið þig til að íhuga þessa spurningu þó það sé borin von með þá rökheldu sem hgér að ofan skrifa

Halldór Jónsson, 17.12.2018 kl. 14:02

16 identicon

Komið þið sæl - sem fyrr !

Nafna mín (Helga Kristjánsdóttir) !

Þér að segja: væri það Jóni Gunnarssyni fremur til álitsauka, kafaði hann ofan í þá pytti, sem geyma fjárfúlgur ofgreiddra Bifreiðagjaldanna:: frá ársbyrjun 1991 til dagsins, í dag.

Halldór Verkfræðingur !

Ennþá - heggur þú í sama knérunn / Jón Gunnarsson skal verja út í 1, þrátt fyrir allra handanna afglöp hans, sem þorra fyrirennara hans, að óverðugu.

Við: þessirökheldu bíðum eftir sundurliðun ráðstafana, á þeim ókjörum gjalda margvíslegra, sem fara áttu til Vegagerðar, af Bifreiðum og Vinnuvélum í gegnum tíðina:: burtséð, frá Bifreiðagjöldunum einum og sér.

Er til of mikils mælst - að kalla eftir þessum hlutum, úr fórum Jóns Gunnarssonar og lagsfólks hans, Verkfræðingur vísi ?  

Sömu kveðjur: öðrum og fyrri, vitaskuld / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.12.2018 kl. 17:18

17 Smámynd: Halldór Jónsson

Viltu nýjan veg strax gegn því að borga veggjald?

Viltu ekki nýjan veg  strax og ekkert veggjald?

Halldór Jónsson, 17.12.2018 kl. 19:30

18 identicon

Sæl öll sömul - sem áður !

Halldór !

I. Skera niður: laun þingliðsins, um cirka 50 - 60%, a.m.k.

II. Færa niður - stærðarhlutfall Ríkisútvarpsins (Hljóðvarps og Sjónvarps) niður í um 30% þess, sem það nú er.

III. Lúthersku Þjóðkirkju prelátarnir: fari af sínum ofurlaunum / og söfnuðirnir greiði þeim sjálfum launin. Prestum og Byskupum Fornkirkjunnar (fyrstu aldanna / og fram eftir) var ekkert vorkennt, þó þeir lifðu ekki í neinu bíllífi, eins og þorri collega þeirra, í okkar samtíma.

IIII. Utanríkisþjónustuna - má skera niður um helming / og líklega miklu meira.

V. Úrsögn: úr koníaks klúbbum, eins og : Sameinuðu þjóðunum NATÓ - EFTA, að ógleymdu dekurbatteríi EES/Schengens, ýmissa Kaldastríðs Nátttrölla:: eins og Björns Bjarnasonar (úr Engey) og annarra ámóta, myndu reyndar missa eitt sinna stærstu áhugamála, það yrði þá bara að hafa það.

og:: VI. Starf tyllidaga fígúrunnar Guðna Th. Jóhannessonar suður á Bessastöðum á Álptanesi, mætti alveg leggja upp laupana, ekki síður.

Halldór Verkfræðingur !

Þó ekki - nema brota brot þessarra hugmynda minna gengju eftir, myndu Jón Gunnarsson og lagsfólks hans nánast drukkna í Peningum til ráðstafana Vega- og annarra samgöngumála, en, ........ svo er aftur allt önnur saga Halldór minn, hvernig þeim kynni að spilast, úr þeim gnægtarinnar fúlgum, fornvinur góður.

Aðeins spurningin: að skera upp núverandi snobb- og bruðlkerfi í landinu, Halldór minn !!!

En munum - þau Jón, þurfa eftir sem áður, að grennslazt fyrir um, hvar ÁÐUR GREITT gjalda fargan til vegamálanna er niður komið, sem alþingi ætti jú:: að geta svarað fyrir, eða hvað ?  

Hinar sömu kveðjur - sem allar hinar fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.12.2018 kl. 21:48

19 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Kæri nafni. Þegar þessar tvær spurningar eru settar fram, eru þær yfirleitt á borð bornar af þeim, sem áttu að nota raunverulega skattlagningu, svosem af eldsneyti, til vegagerðar. Það hafa þeir ekki gert áratugum saman og til að klóra yfir eigin aulaskap og hroðvirkni, stilla þeir okkur upp við vegg og skjóta að okkur tveimur möguleikum, misslæmum. Hvorugum góðum og þú efast um að ég skilji ekki "pointið"?  Hvert stefnir þú nafni, takandi mark á þessum andskotum? Þeir skitu í brók og eru með drulluna upp á bak!

 Við fá um hinsvegar alltaf reikninginn fyrir fíflagangi þeirra. 

 Góðar stundir, með jólakveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 18.12.2018 kl. 00:23

20 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni minn að sunnan

ég skil reiði þína fyrir gamlar misgerðir. Og ég er auðvitað hræddur við politíkusana og glæpaeðli þeirra til stuldar á eyrnamerktum tekjustofnum til bráðabirgða eins og þungaskattinum til áratuga í stað boðaðs árs. En hvað eigum við að gera?

Eigum við að byrja strax á að grafa ný Hvalfjarðargöng og rukka eða eigum við ekki að gera það? Hvað leggurðu til?

Eigum við að leggja Autobahn milli Hveragerðis og Selfoss og rukka veggjald eða eigum vi bara að gera ekki neitt? Eigum við að rukka í Héðinsfjarðargöng eða ekki?

Halldór Jónsson, 19.12.2018 kl. 10:27

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Óskar minnHelgi,

Farðu nú yfir skrif þín síðustu og spurðu sjálfan þig að því hver verði árangur af þeim? Munu þau leiða til framfara? Heldurður að einhver fagni þeim og fari í framkvæmdir? Þarftu ekki að fá fleiri í lið með þér í stað þess að safna stöðugt að þér óvinum með því að úthúða öllum sem óalandi?

Halldór Jónsson, 19.12.2018 kl. 10:30

22 identicon

Komið þið sæl - sem jafnan !

Halldór Verkfræðingur !

Jú: stundum hvarflar það að mér, hvort ekki mætti leita liðsinnis Færeyinga, auk ýmissa annarra nágranna jafnvel, til þess að koma á einhverjum vitrænum úrbótum, á landi hér.

Þar - sem innfæddum heimamönnum reynist um megn, að taka til hendinni á þá vegu, að bragur mætti verða, að.

Væri alls ekki: að ófyrirsynju, fornvinur góður.

Ekkert síðri kveðjur - öðrum og áður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.12.2018 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 3419712

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband