21.12.2018 | 11:52
"All will be well"
getur maður farið með upp fyrir sér þegar maður hugsar um dauðans óvissa tíma eins og séra Hallgrímur kvað um.
Það eru miklar framfarir í krabbameinslækningum í heiminum um þessar mundir. Ný lyf og lyfjatækni er í framþróun sem breytt geta miklu fyrir marga.
Bloggari hefur á eigin skinni reynt að krabbameinslækningar á Íslandi eru á pari við það besta sem gerist í heiminum og okkar fólk er þaulmenntað í meðferðinni við þennan sjúkdóm. Honum er eiginlega óskiljanlegt hversu magnað allt starfsfólk sem að heilbrigðismálum kemur er að miskunn og mannkærleika sem alls staðar birtist hvar maður kemur. Allt auðvitað undirborgað og undirmetið finnst manni gjarnan þegar maður horfir á aðra kostnaðarliði í samfélaginu.En hvað er til ráða og hvernig á að leysa vandamálin veit maður ekki.
Framtíðin í krabbameinslækningum er björt og ný rannsóknartæki og lyf munu halda áfram að koma fram sem mun skila sér í auðveldari og árangursríkari meðferðarmöguleikum fyrir sjúklinga, segir Örvar Gunnarsson, krabbameinslæknir á Landspítalanum.
Hann segir umræðuna oft þannig að Ísland standi samanburðarlöndum að baki hvað varðar árangur og fjármögnun. Það eru oft stök atvik sem ekki hafa gengið vel sem vekja neikvæða athygli en sem betur fer ganga hlutirnir langoftast mjög vel. Við erum líka oft á undan með vissa hluti. Það er til dæmis oft lengri bið í Skandinavíu eftir að hitta lækni.
Þá nefnir hann sérstaklega lyfjamálin en töluvert sé spurt um aðgang að því sem hefur verið kallað nýju krabbameinslyfin og áhyggjum lýst yfir því að sjúklingar hér á landi hafi ekki aðgang að bestu mögulegu meðferð. Þessi nýju lyf má rekja til uppgötvana hinna nýbökuðu Nóbelsverðlaunahafa Japanans Tasuku Honjo og Bandaríkjamannsins James P. Allison á því hvernig hægt sé að virkja ónæmiskerfið til að ráðast gegn krabbameinsfrumum.
Þessar uppgötvanir áttu sér stað fyrir um 30 árum en lyfjatilraunir hófust fyrir um 10 árum á meðferð við sortuæxli. Síðan hefur komið í ljós að hægt er að nota þessi lyf við sífellt fleiri tegundum krabbameins. Lyfjamálin voru erfið fyrir stuttu síðan en það hefur verið mikil sókn í þessum málum undanfarin tvö ár. Við erum að nota þessi nýju lyf og finnum merkjanlegan mun hjá þeim sjúklingum sem fá þau. Það eru samt alltaf einhverjir sjúklingar þar sem nýju lyfin eiga ekki við. Það verði áhugavert að sjá raunverulegan árangur nýju lyfjanna þegar meiri reynsla verði komin á notkun þeirra. Bjartsýni ríki um að það verði augsýnilegur munur á árangri. Örvar segist finna að það gangi til dæmis heilt yfir mun betur að fást við lungnakrabbamein. Það eru miklu fleiri sjúklingar sem eru með betri lífsgæði og lengra líf.
Þó svo að Ísland verði aldrei fyrst til að byrja að nota ný lyf stöndum við jafnfætis flestum Evrópuþjóðum. Raunveruleikinn er líka þannig að þegar við höfum þurft að fá ákveðin lyf þá höfum við í langflestum tilfellum fengið það. Þá sé reynt að nýta fjármuni sem best með því að velja ódýrari samheitalyf þar sem það sé mögulegt. Við viljum meina að við stöndum mjög framarlega þegar kemur að stöðu krabbameinslækninga. Við erum á mjög góðum stað með tilliti til árangurs og erum að fá mikið fyrir það sem er lagt í kerfið.
það er hinsvegar eitt nýlegt lyf Nivolumab eða Opdivo komið hingað. Líklegt er að Hildur noti þetta lyf í sínu starfi. Þetta lyf brýtur blekkingarvarnarmúr krabbafrumanna þannig að T-frumurnar sjá þær í réttu ljósi og ráðast á þær og reyna að drepa þær eða drepa þær alveg eða þannig er þessi mekanismi án þess að ég hafi hundsvit á neinu.
Makalaust hvað vísindamenn vita mikið um svona örsmáa hluti? Alla vega eru raddir farnar að heyrast að miklar framfarir í lækningum geti verið framundan.Þeir eru jafnvel farnir að tala um að krabbinn geti orðið sigraður sem nú drepur meira en hálfa milljón manns á ári í USA.
Lífslíkur fólks í sömu stöðu og ég hafa aukist mikið við þetta lyf Opdivo eða Nivolumab og dánartíðni fallið talsvert.Car-T aðferðin er einnig í milli þróun og tíðinda að vænta.
Þetta getur hugsanlega breytt miklu fyrir mig og fólk í sömu stöðu. En sem sagt veit ég ekki neitt um þetta né hvað minn læknir hann Örvar hyggst fyrir. En óneitanlega hressist maður við slík tíðindi. Kannski kemst maður bara yfir þetta til að drepast úr einhverju allt öðru enda kominn á níræðisaldurinn?
Mér líður hinsvegar núna prýðilega og finn ekkert fyrir neinum óþægindum og hef fulla lyst á whisky, bjór og mat. En Örvar er mig á Erbitux og Placitaxol sem halda þessu niðri svo undrum sætir segir Hannes Þröstur.
En nú minnist ég oftar orða Winstons Churchills og skil þau eilítið öðruvísi en ég gerði á fyrri tíð:
"For the rest live dangerously, take life as it comes, one day at a time.
Dread nought!
All will be well"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þetta reddast.
Gleðileg jól Halldór og skál fyrir nýju ári.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.12.2018 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.