27.1.2019 | 12:20
Féll á Silfrið
fannst mér hjá Fanneyju Birnu í dag.
Þar var smalað saman einhverju fólki sem ég kann engin deili á þar sem ég missti af innganginum. Það vantar tilfinnanlega að reglulega sé skeytt inn nöfnum viðmælendanna eins og þeir gera á Hringbraut. Maður getur ekki áttað sig á því hvaða vinstra fólk er að láta ljós sitt skína þegar það er ekki frægt að endemum.
En þarna var Klausturssteypan hrærð áfram og krafist útskúfunar þingmanna og eiginlega látið liggja að því að æskilegt væri að Miðflokkurinn í heild sinni fái pokann sinn. Yfirhafin helgislepjuhræsni skein út úr kvenkyns álitsgjöfunum en karlarnir lögðu frekar minna ákveðið til málanna. Einn benti þó á að það væri ólöglegt að hlera.
Þessi umræða er löngu komin út í Hróa. Stakt fyllerí sem engar fjárhagslegar afleiðingar hefur fyrir almenning í hlutfalli við til dæmis afleiðingar stjórnarathafna Steingríms Jóhanns sem settu tíuþúsund fjölskyldur á götuna og annan eins fjölda í mikinn fjárhagsvanda. Þessi maður hefði mér fundist að ætti frekar að vera fyrir Landsdómi heldur en á Forsetastóli Alþingis.
Steininn tók þó úr þegar Fanney Birna beindi talinu að fjölskylduharmleik Jón Baldvins og Bryndísar. Einn kvenspekingurinn lét að því liggja að Jón Baldvin hefði látið nauðungarvista dótturina á Geðdeild og þá helst ekki ólíklega af illmennsku sinni eintómri. Ég heyrði ekki betur en að undirskrift foreldris hefði verið þá nauðsynlegt formsatriði vegna þess úrskurðar geðlæknis hennar að nauðsynlegt væri að leggja manneskjuna inn vegna bráðra veikinda hennar.
Öðrum málefnum Jóns Baldvins ætla ég ekki að velta mér uppúr. Þau eru sum áratugi að baki og hann hefur gengist við þeim af fullri einlægni. En það er tilgangslaust að reyna að friðmælast við öfgafemínista og stórasannleiksfólk af þeim kalíber sem Fanney dró í þetta Silfur sitt og betra að sleppa því alveg.
Mig bara sker í hjartað að horfa upp á þá ógæfu sem þessi vænu skólasystkini mín rata í á gamals aldri.Aldrei hef ég reynt þau að öðru en elskulegheitum í gegn um allt lífið sem ég þakka fyrir. Megi þau finna frið og fyrirgefningu í sálum sínum.
Varðandi þann meinta ófyrirgefanlega kjafthátt sem Klaustursþingmennirnir, og einkum Bergþór, viðhöfðu á fylleríinu , þá eru þessi orð sem hann notaði hreint ekkert lengur bannfærð opinberlega.
Á þúsund manna samkundu sem ég var á velti kvenkyns uppistandari sér upp úr þessum rí.. orðum og í sambandi við nafngreinda einstaklinga sem hún velti fyrir sér í því sambandi og lýstu mörgu þessu tengdu.
Salurinn bara hló og klappaði.En ekki er ég í vafa að hefði Bára tekið þetta upp og spilað í útvarpið þá hefði orðið ramaskrækur um allt þjóðfélagið því þarna voru bæði Alþingismenn,sveitarstjórnarfulltrúar og þjóðþekktir einstaklingar viðstaddir sem létu sér vel líka og hertu frekar á en hitt.
Það féll á Silfrið hjá Fanneyju.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Heyr, heyr Halldór.
Tek undir hvert einasta orð í þessum pistli.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 12:44
Hvað varð um hið frjálsa íslenska tjáningarfrelsi, er Góða Gáfaða Fólkið búið að koma því fyrir kattarnef?
Það er mín skoðun að flestir kjörnir núverandi þingmenn og ráðherrar séu barnalegir í hugsunarhætti og framkomu og ættu allir að víkja af þingi.
Kveðja frá Montgomery Texas
Jóhann Kristinsson, 27.1.2019 kl. 16:50
Einu sinni var lítill karl með ferhyrnt yfirvaraskegg sem fyriskipaði hvaða skoðun mætti hafa.
Nú birtist sérfræðingur hjá Siðfræðistofnun í Silfrinu og segir „Kjörnir fulltrúar geta ekki haft skoðanir“ sem ég hef ekki samþykkt
Grímur (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 18:11
Sá ekki þáttinn en get ímyndað mér hvað Góða Gáfaða Fólkið sagði í þessum þætti. Það er eins og eldgömul grammafons plata með góðri rispu, sama kjaftæðið aftur og aftur.
Kveðja frá Montgomery Texas
Jóhann Kristinsson, 27.1.2019 kl. 19:44
Silfrið-er það enn sent út?
Bjarni (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 21:10
Hér rífur Boris Johnson af sér brandarana.
Líklega hefði Winston Churchill verið tekinn alvarlega fyrir hjá siðanefnd Alþingis, hefði hann setið þar.
Boris Johnson, "The Churchill Factor"
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 22:33
Það er vont mál ef Fanneyju Birnu tekst að eyðileggja Silfrið eins og núverandi stjórnendum Kastljóss hefur tekist með þann þátt. Silfrið hefur verið sá umræðuþáttur sem maður hefur helst ekki viljað missa af. Nóg er af alvöru málum til að ræða í staðinn fyrir þetta og önnur álíka sem flestir hafa orðið ofnæmi fyrir.
Þórir Kjartansson, 28.1.2019 kl. 08:34
Og nú er "Silfrið" orðið silfurplett!!
Sigurður I B Guðmundsson, 28.1.2019 kl. 16:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.