Leita í fréttum mbl.is

Hver er glæpurinn?

sem er í því fólgin að drekka sig fullan og rövla einhverja vitleysu sem engar afleiðingar hefur nema móral?

Hvað er það í samanburði við að gera eitthvað óafturkræft sem hefur víðtækar afleiðingar.

Ómar Geirsson veltir þessu fyrir sér. Hann skrifar á sína síðu:

"

Hæðast að því að klámkjaftur á fyllerí gegni formennsku í nefnd.

Þó er runnið af manninum og hann iðrast.

 

Og hver er glæpur hans miðað við til dæmis forseta Alþingis?

Sem bláedrú samdi við bresku fjárkúgarana að hann myndi ekki halda uppi vörnum fyrir Íslands hönd.

 

Fyrir utan óheyrilega greiðslubyrði, frá 90 milljörðum uppí 110 milljarða á ári, skjalfest í gögnum Alþingis, Seðlabankans og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands (svona fyrir lygarana sem afneita þessum tölum), þá afsalaði Steingrímur Joð Sigfússon öllu dómsvaldi til gerðardóms sem Hollendingar og bretar stýrðu.

Og eins og þau landráð væru ekki nóg, þá var ákvæði í ICEsave samningi vinstri stjórnar Steingríms og Jóhönnu, að ef einhver afborgun íslenska ríkisins, eða ríkisstofnana eins og Landsvirkjunar, félli í gjalddaga án þess að vera greidd, og skipti þá engu þó um hana yrði samið, þá félli allt ICEsave skuldabréfið á íslenska ríkið.

Samstundis.

 

Sem er áður óþekkt landráð í allri gjörvallri sögu vestrænna lýðræðisríkja.

 

Það var samt kosið, og lýðræðið hafði sinn gang.

Fyrst að Steingrímur, Katrín, Svanfríður og þau öll hin voru ekki ákærð fyrir landráð, og þjóðin, það er hluti hennar, tók ákvörðun að kjósa þau til áframhaldandi setu á Alþingi, þá eru þessi landráð grafin og gleymd.

Fortíð sem lögð er til hliðar.

 

Þess vegna er það svo aumt, að sjá þennan vinnumannaflokk breta, ráðast að lýðræðiskjörnum þingmönnum.

Og þeirra glæpur er fyllerísröfl.

Sem enginn vissi af nema vegna þess að auðnum langar í orkuauðlindir þjóðarinnar.

 

Landráð annars vegar.

Hlerað fyllerí hins vegar.

 

Lýðræðið sagði okkur að gleyma.

En eigum við að gleyma þegar vinnumennirnir eru aftur komnir í vinnu??

 

Við að svíkja þjóðina.

Við að færa þá einu auðlind sem ennþá er í almannaeigu, í vasa auðs og auðmanna.

 

Það var hægt að fyrirgefa.

En það er varla hægt lengur.

Kveðja að austan."

Já, í samanburði við það ef öll áform Steingríms Jóhanns, sem nú grætur krókódílatárum yfir siðferðisbresti stakra fyllibyttna á Klaustursbarnum, þá er lítið tjón af uppákomunni. Ekki þurfti tvær þjóðaratkvæðagreiðslur til að bjarga þjóðinni eftir það.

Við sitjum auðvitað uppi með annað tjón sem Steingrímur olli með afhendingu bankanna til vogunarsjóðanna sem varð meðverkandi í því að tíuþúsund misstu heimili sín. Þessi maður hreykir sér hátt núna af upphafinni sjálfsdýrkun á forsetastói Alþingis. Ferst honum?

Hvernig er glæpurinn sem framinn var á Klaustursbarnum í samanburði við atferli Steingríms Jóhanns í Hruninu?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, vel var ritað af austanmanni, en klaufalega ruglarðu honum saman við annan ágætan vin vorn Smára kennara og bæjarstjórnarmann á Norðfirði. Ómar Geirsson heitir höfundurinn góði, "miðaldra Austfirðingur og tveggja sona faðir" og stóð sig vel í Icesave-baráttunni og hefur engu gleymt. smile

Smári Geirsson, sem hvarf svo inn í bæjarstjórn Fjarðaþings um tíma og gerðist mikill álversmaður eins og þeir fleiri sósíalistarnir, hefur afrekað margt á fræðasviðinu sem rithöfundur og byggðarsögumaður og nýlega sem hvalveiðisögumaður (missti því miður af fyrirlestri hans þar um hér syðra) -- geðþekkur karakter og ritaði m.a. svolítið um afa minn á Norðfirði.

En hér er grein Ómars okkar á sínum stað:

Vinstri Grænir pota í lýðræðið.

Jón Valur Jensson, 25.1.2019 kl. 18:59

2 identicon

Algjörlega magnaður og sláandi pistill hjá Ómari Geirssyni.

Og minnir okkur á það að Steingrímur Joð situr sem forseti alþingis undir verndarvæng Sjálfstæðisflokksins.

Það er dapurt að vita fyrir okkur sem löngum studdu Sjálfstæðisflokkinn að svo illa sé komið fyrir gamla flokknum okkar að hann hefji Steingrím Joð og Katrínu og Svandísi Svavarsdóttur Gestssonar til æðstu vegtyllu.  Hvað veldur því?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.1.2019 kl. 19:28

3 identicon

Í gegnum tíðina hafa ýmsir verið hugmyndaríkir við að finna refsingu þo engin sé glæpurinn

En ég bara sé enga möguleika fyri pólitíska andstæðinga klekkja þannig á Klausturmönnum nema virkja eineltisáætlun og leggja þá i einelti líkt og þeir gerðu í dag

Grímur (IP-tala skráð) 25.1.2019 kl. 19:29

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Talandi um óafturkræfa gjörninga þá er vert að minnast á þau áform Svandísar Svavarsdóttur, ráðherra Vinstri grænna, þeirra sem vildu að við borguðum Icesave að fullu eftir að faðir hennar "samdi" um það við Breta, að téður ráðherra vill stórauka heimildar til lífláts ófæddra barna.

Fósturmorð eru óafturkræf, einstaklingar, framtíð þjóðarinnar teknir af lífi í móðurkviði án dóms og laga, hafa ekkert unnið sér til þeirra illvirkja sem fósturdeyðingar eru.

Fólk almennt gerir sér grein fyrir því hvernig þessar aftökur fara fram, en við myndum aldrei vilja að mestu glæðamenn þyrftu að undirgangast það sem þessi börn þurfa að þola, slíkur er hryllingurinn. En fólk vill ekki vita það, það yrði of viðkvæmt, of sárt.

Við höfum þegar misst yfir 40þúsund einstaklinga sem væru í dag gegnir þjóðfélagsþegnar, sumir þingmenn sem stæðu sig örugglega betur en þingheimur í dag. Sumir vísindamenn sem færðu þjóðfélag okkar áfram til framfara og svo mætti lengi telja.

Óafturkræfur gjörningur og nú vill ríkisstjórnin ganga enn lengra í þessum ófögnuði.

Guð forði okkur frá ríkisstjórn og þingheimi sem ber ekki meiri virðingu fyrir lífi þegna þessa lands.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.1.2019 kl. 19:34

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þessir ræflar iðrast náttúrlega ekki neitt. Eina sem hefði getað bjargað þeim hefði verið að segja af sér tafarlaust og sýna þannig að þau skömmuðust sín. En þingfararkaupið varð iðruninni yfirsterkara. Því fór sem fór og allt þetta lið er eitruð peð í þinginu og verður það fram að næstu kosningum þegar það dettur út og getur kannski allt í besta falli fengið vinnu í lélegri vídeóleigu með "bláar" á bakvið fyrir rétta kúnna!

Þorsteinn Siglaugsson, 25.1.2019 kl. 21:13

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég vil taka hér sérstaklega undir kröftug, en réttsýn orð félaga míns Tómasar Ibsen Halldórssonar.

Jón Valur Jensson, 25.1.2019 kl. 23:45

7 identicon

Er Þorsteinn Siglaugsson flokksfélagi í Vg?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.1.2019 kl. 23:57

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, í "Sjálfstæðisflokknum" og mætir vel á fundum!

Jón Valur Jensson, 26.1.2019 kl. 01:23

9 identicon

Svo Steingrímur Joð er átrúnaðargoð Þorsteinn Siglaugssonar?  Er hrifning hans jafn mikil með dóttur Svavars Gestssonar, samningamannsins sem vildi setja íslensku þjóðina á krossinn, fórnaði 10.000 heimilum þeirra, sem vill ríkisvæða heilbrigðiskerfið?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 26.1.2019 kl. 01:48

10 identicon

Það er athyglisvert að fylgjast með hvað mörgum finnst þeir verða meiri menn og konur við að velta sér upp úr saklausum óförum annarra.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 26.1.2019 kl. 08:48

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Og ekki er nú minna aumkunarvert þegar greyið Gunnar Bragi fer að reyna að ljúga því til að hann muni ekkert sem fór þarna fram eftir að hafa áður, í viðtölum, lýst því að hann muni bara heilmargt af því.

Eins og mætur maður sagði: Þegar maður er kominn ofan í holu er réttast að hætta að moka.

En það geta ekki Klausturaparnir. Þeir halda bara áfram að grafa sér gröf og líður eflaust ekki á löngu þar til þeir koma út hinum megin embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 26.1.2019 kl. 11:56

12 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Halldór, góð spurning.  Hver er glæpurinn? 

Kerlingar hálfviti sem liggur á hleri með rauðan hatt gerir sig náttúrulega bara ómerkilegri þegar hún þvaðrar undan rauðu húfunni því sem hún taldi sig heyra, líkt og Gróa á Leiti. 

En þar sem þessi arftaki Gróu á leiti treysti ekki mynni sínu þá var hún mun betur útbúin heldur en sú gamla Gróa á Leiti sem átti ekki einu sinni rauða húfu og hvað þá upptakara. 

En markmiðið var það sama, sem er að slefa út kjaftasögum misjafnlega staðföstum, en endilega með munslefu sem límir þær við viðkomandi sakleysing.    

Hrólfur Þ Hraundal, 26.1.2019 kl. 14:03

13 identicon

Gróa á leiti = Bára á Efstaleiti?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 26.1.2019 kl. 15:07

14 identicon

Þorsteinn - það er nú auðvelt að ruglast í hver spurningin er þegar fréttamenn/yfirheyrsluaðilar hegða sér svona 

http://www.ruv.is/spila/ruv/kastljos/20190124

Borgari (IP-tala skráð) 26.1.2019 kl. 17:14

15 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þeir skrópuðu í vinnunni til að fara á fyllerí.  Það er glæpurinn.

Ásgrímur Hartmannsson, 26.1.2019 kl. 17:58

16 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég vona að þú sért hress, Halldór minn. Guð blessi þig, kempa.

Jón Valur Jensson, 27.1.2019 kl. 02:35

17 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir það Jón Valur, ég er framar öllum vonum.

Halldór Jónsson, 27.1.2019 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband