Leita í fréttum mbl.is

Venezuela

er á hraðari ferð til glötunar en við Íslendingar gerum okkur almennt grein fyrir. Við höfum þó reynt að biðja um breytingar á stefnunni með viðurkenningu á nýjum forseta. Auðvitað risu íslenskir kommatittir öndverðir gegn Guðlaugi Þór til að að reyna klekkja á  þessu.

Sigurður Már Jónsson blaðamaður hefur skrifað margt um Venezuela sem fæst ratar inn á borð Íslendinga í gegn  um RUV.

Merkilegt að nýbúið sé að staðfesta framlenginu á amtstíð núverandi útvarpsstjóra sem liggur undir jafn stöðugu ámæli um vinstri hlutdrægni og hann gerir án þess að sýna merki um stefnubreytingu. "Það er þá einhver dásemd sem er mér ósýnileg" eins og stendur í kvæðinu um manninn hennar Jónínu hans Jóns  

"Í dag er bólivarinn verðlaus og Venesúela með sósíalísku veikina. Alger skortur á öllum neysluvörum, löngum hefur verið hent gaman af því að það vanti alltaf klósettpappír í sósíalískum ríkjum og það hefur orðið að áhrínisorðum í Venesúela.

1.)En það skortir allar vörur enda talið að meðalþyngd landsmanna hafi minkað um 7 til 8 kíló, Maduro-kúrinn eins og landsmenn kalla það. Brauð fæst ekki, fólk bíður klukkustundum saman í biðröðum í von um mat en hungrið sverfur að, þess vegna hefur um 10% landsmanna eða ríflega þrjár milljónir gerst flóttamenn.

2.)Flúið til nágranaríkjanna í von um mat og nauðsynjavörur. - Helstu nauðsynjar skortir og lyf og lækningavörur fást ekki. Auðlæknanlegir sjúkdómar leiða til dauða og ungbarnadauði hefur aukist verulega.

3.) Frelsi fjölmiðla er nánast ekkert, blaðamenn fangelsaðir og stjórnarandstæðingar drepnir. Stjórnskipun landsins er í rúst og tekist er á um völdin í landinu. Það er vonandi að borgarastyrjöld skelli ekki á ofaná aðrar hörmungar."

4.) Undirritaður er nú orðinn svo gamall sem á grönum má sjá. En hann man aftur til daga austurþýska alþýðulýðveldisinsog átti kost á því að fara þangað í nokkrar heimsóknir frá námsdalarbúsetu sinni í Stuttgart fyrir 1962.(tölusetning skrifari)

Það var þá sem einn skólabróðir minn sagði mér í fúlustu alvöru meðan á stúdenta fundi til stuðnings kommúnistum  stóð yfir þar í borg, að skortur á stjórnarandstöðu í DDR væri einfaldlega skýrður með því að það þyrfti ekki stjórnarandstöðu þegar stefnan væri rétt.

Hann er enn á lífi meðal vor en ég hef ekki hitt hann nýlega til að spyrja hann um staðfestuna.

Liður 1.) var í þá daga þannig að opinbert gengni á Ostmarkinu var 1:1. Maður kom við í Berlín og skipti a V-marki fyrir 4 Ostmörk plús og lifði eins og kóngur í mat og drykk en ekkert mátti kaupa af varningi í búðum því þjófaleit var gerð á manni við útreisuna.

Vinstri stjórnin á Íslandi fyrirskipaði að íslenskir heildsalar ættu að beina viðskiptum sínum í austurveg. Þannig kynntist maður þeim mörgum við innkaupin á Messunni í Leipzig.

Margir ógleymanlegir karakterar eins og Baldvin í Pennanum, Jóhanni í Reykjafelli, Ólafi Methúsalemssyni,Ólafi Guðbrandssyni félaga mínum svo maður nefni einhverja fyrir meira en hálfri öld síðar, svo og sanntrúuðum kommum líka sem komu til kvölderðar á aðalveitingahúsinu Rathaus þar sem maður neytti þess dýrasta skiljanlega sem maður gat ekki vestanmegin. Námsmenn komu þangað margir til okkar og sögðu okkur frá sér og kjörum sínum. Margir illa blankir sem fengu aðstoð undir borðið hjá heildsölunum. 

Pabbi var hestamaður og keypt Meissnerpostulínsstyttu af hesti sem enn er til. Til þess varð hann að skipta á opinberu gengi og hafa kvittunina með sér til landamæranna og þar varð hann að leggja hana fram og auk þess að sanna að hann hefði skipt nægilegu til að geta lifað heimsóknartímann. Landamæraverðir voru gjarna kvenmenn með vélbyssu á maganum sem tékkuðu mann út. Vestan-megin kom bara einn óvopnaður kall til að tékka mann inn í vestrið.

Í Berlín var múrinn reistur til þess að stoppa flóttmennina frá því að flýja Vestur-Þýskaland til sæluríkisins í austri sem gæti ekki tekið á móti þessum fjölda inn á sinn sósíal.Eða þannig hljóðaði skýringin  þarna megin. Ég veit ekki hvort kommarnir sem voru með okkur fylgdust með okkur grunsamlegum íhaldsbullum.

Ulbricht kúrinn var líka staðreynd þarna í austrinu á námsmönnunum  þó það væri hvergi nærri Venszualískt ástand þarna.

En Pfarrer Bahrmann, sem við bjuggum hjá frá Raftækjasölunni,  sagði vöruskort mikinn og klósettpappír væri munaðarvara. Hann fengist núna í Leipzig en hvergi annarsstaðar í DDR skyldi hann ábyrgjast. 

Hann var einskonar þjóðhetja í Leipzig þar sem hann neitaði að fara á kjörstað þrátt fyrir að margir menn vopnaðir og óvopnaðir kæmu að sækja hann til að taka þátt í 99 % atkvæðagreiðslunni til stuðnings Ulbricht sem var auðvitað einn í kjöri. Hann sagðist hafa borið því við sem síðustu vörn áður en hann yrði skotinn að hann gæti ekki blandað pólitík og og trú saman.Hann slapp með lífið öllum til undrunar.

Þarna gistu allskyns menn frá vestrinu líka sem sögðu okkur margar sögur.Einn defíneraði Ulbricht sem 102 % kommúnista, sem ég hef ekki gleymt síðan sem góðan mælikvarða á réttrúaða.Madúró í Venezúela er áreiðanlega einn slíkur.

Liður 4.) lá í augum uppi. Ekkert vestrænt efni fékkst, bara áróður frá austri. Kúgunin var augljós allstaðar. Fólkið var hrætt við að tala. Og annað merkilegt var að að alltaf voru komin ný andlit hjá fyrirtækjunum á messunni árið eftir og þeir sem við tóku könnuðust ekkert við þá sem þar höfðu verið árið áður. Sem við ályktuðum að þýddi að þeir hefðu farið vestur yfir á árinu.

 

En mann dettur þessi alræðistími í hug þegar maður leiðir hugann að sósíalismatilrauninni í Venezuela sem fram fer um þessar mundir undir 102% formerkjunum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fólksins vegna þá er grátlegt að horfa upp á skipbrot þessa þjóðfélags sem virðit hafa lent í einhverju Icesaveskuldafeni en enginn hefur sagt mér hverjum þeir skulda alla þessa triljónir!

Er það Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eða Soros, USA eða USSR, ESBbankinn?

Grímur (IP-tala skráð) 7.2.2019 kl. 15:10

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þeir skulda Rússum og Kínverjum fyrst og fremst. Ástæðan fyrir því að þeir skulda er sú að þeir settu fjöregg þjóðarinnar, olíuiðnaðinn, í hendurnar á vanhæfum stuðningsmönnum sósíalistastjórnarinnar. Þeir offjárfestu í atkvæðakaupum (les: sósíalískri velferð). Þeir ollu umfangsmiklum vöruskorti með því að skylda fyrirtæki til að selja varning sinn á verði sem var of lágt til að það borgaði sig að framleiða hann.

Þetta eru svona megindrættirnir í því hvernig efnahagur Venezúela var lagður í rúst.

Helmingur olíuframleiðslunnar, sem reyndar hefur dregist gríðarlega saman vegna óstjórnar í rekstri, fer til Rússlands og Kína til að greiða af lánum.

En sósíalistarnir og klíka þeirra lifa velsældarlífi, ræna þeim gjaldeyri sem berst til landsins, dvelja í munaði á erlendum hótelum og þar fram eftir götunum. Eins og sósíalískir valdamenn hafa ávallt og munu ávallt gera.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.2.2019 kl. 19:50

3 identicon

"fjöregg þjóðarinnar" hjá Íslandi er það Landsvirkjun

og 3 orkupakkinn + sæstrengur og Landsvirkun er seld ESB auðjöfrum sama hvaða stjórnmálakenningar Ríkisstjórn Íslands aðhyllist.

Það fer um mann hrollur við tilhugsunina hversu greið leiðin er fyrir þennan gjörning og Þjóðarsjóðurinn hans BB er fyrsta skrefið

Grímur (IP-tala skráð) 7.2.2019 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418237

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband