Leita í fréttum mbl.is

Silfrið

horfði ég á mér til nokkurrar ánægju. Mörður Árnason kom mér nokkuð á óvart með mun þroskaðri afstöðu en ég hafði búist við vegna fyrri stjórnmálaafskipta.

En Styrmir Gunnarsson sagði allt sem segja þurfti um stöðuna í kjaramálunum sem nú er uppi. Þetta er allt fyrirsjáanlegt síðan um mitt ár 2016.

Að þingmenn skuli hafa gert sig seka um þvílíka heimsku að svelgja allar kauphækkanirnar í sig án þess að gera neitt er beinn undirbúningur undir núverandi stöðu. Meira að segja sósíalistaflokkur FjögurraBlaðaSmára sprettur beint upp úr þessum jarðvegi og á sér samsvörun í málflutningi konunnar frá Bretlandi sem vill nýtt hagkerfi.

Verkalýðshreyfingin núna er í rauninni ekki að karpa um krónur og aura heldur vill hún einhverja óúthugsaða  byltingu í þjóðfélagsgerðinni.

Hún vill setja skattalög að sínum hætti.

Hún vill skattleggja eignir og fjármagnstekjur að sínum hætti.Styrmir benti á beint samband þeirrar kröfu við ráðstafanir VG árið 1990 um frjálst framsal kvótans.

Hún vill afnema verðtryggingu og lækka vexti að sínum hætti og hún heimtar ódýra lausn á húsnæðismálum fyrir alla. Samt á hún allt undir varðveislu lífeyrissjóðanna sem gerir þennan málflutning hlægilega þverstæðu.

Hún heimtar eitthvað Shangríla á Íslandi  þó að sýnin sé aðeins draumsýn og að mörgu leyti afsönnuð með staðreyndum úr heimssögunni um að slíkt hagkerfi gangi ekki upp.Kúba, Venezúela,Sovétríkin. 

Sovétríkin þar sem öll framleiðslufyrirtæki voru í sameign eins og konan boðaði  hrundu því það eignarhaldskerfi gekk ekki upp.

Það þýðir ekki að halda því fram að Apple til dæmis hefði orðið svona stórt ef starfsmennirnir einir hefðu átt það og sett stefnuna, Það var aðeins fyrir Steve Jobs sem þetta gerðist. Hann var sjáandinn en ekki liðið á gólfinu. Þannig vinnur kapítalisminn og vinnur sigur á sósíalismanum.Það er framtakið sem öllu breytir og hagsældin breiðist þaðan út til almennings.

Það hefur alltaf verið risaátak að koma yfir sig þaki. Það kostar margra ára laun venjulegs fólks. Nú krefjast draumóramenn þess að þetta verði leyst með því að smella fingri  fyrir allan almenning.

Verktakafyrirtæki spretta upp eins og gorkúlur og nægt framboð er að fínu húsnæði á 800.000 krónur fermetrann.Smáíbúðahverfið var byggt upp af fátæku fólki sem skapaði verðmætin með eign höndum með því að leggja á sig strit.

Ég veit um fullbúið 220 m2 einbýlishús sem stendur á fylltum grunni sem kostaði 8 milljónir. Aðeins hefur verið keypt inn efni fyrir tuttugu milljónir í viðbót. Minna en 130 þúsund krónur á fermetrann. Hitt vann fjölskyldan með eigin höndum.

Engar lóðir eru til fyrir fólk sem vill fara þessa leið. Geldinganesið stendur autt en þéttingarstefna Borgarstjórnarmeirihlutans og Borgarlínan fangar hug allra fjölmiðla auk kjarabaráttunnar sem allir sjá að snýst aðeins um stig verðbólgunnar þegar allt rykið hefur sest.

Ögmundur Jónasson hafði viðrað hugmyndir um að skrúfa niður ofurlaun í þessu landi til að reyna að skapa sátt á vinnumarkaði að því að Styrmir sagði. Þetta er án efa eitthvað sem þyrfti að skoða til að reyna að ná einhverri sátt. En ég er samt efins um að sátt sé ofarlega á blaði hjá ýmsum forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar um þessar mundir. Miklu fremur þyrsti þá suma í atburði sem geti leitt til ofbeldis og átaka. 

Svo kemur brátt að því að opinberir starfsmenn krefjist þess að menntun verði metin til launa. Hvernig dettur mönnum í hug að hægt sé að semja við Eflingu og önnur félög um kauptaxta með þetta óframkomið?

Menn gætu velt fyrir ef Alþingi ákvæði núna, að allir launþegar upp að vissu marki fengju tiltekna krónutöluhækkun á mánuði miðað við síðasta ár. Aðrir ekki neitt.

Í staðinn myndi gengið styrkjast og verðlag lækka. Reistar yrðu ódýrar íbúðir sem yrðu til sölu á langtímakjörum.Lóðir yrðu útvegaðar í smáibúðastíl. Bensín og bílar myndu lækka.  Kjararáðshækkanir yrðu spilaðar niður og ofurlaun lækkuð. Eitthvað meira gert í félagslegum umbótum kannski.

Hverjar yrðu afleiðingarnar fyrir krónuna? Hverjar yrðu afleiðingarnar fyrir lífskjörin og kaupmáttinn?

Þetta er víst tómt mál að tala um. Læmingjarnir hafa tekið strikið fram af brúninni og ekki hægt að stöðva strauminn.Fólk vill fá að fara í orrustur sér til frægðar hvað sem það kostar.Enda skal kónga hafa til frægðar en ekki langlífis.

Silfrið var að því leyti gott að Styrmir Gunnarsson kom þar og sagði sannleikann.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ánægjulegt þegar maður les heilan pistil og getur samsinnt öllu sem þar er sagt.

Takk fyrir mjög góðan pistil Halldór.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.2.2019 kl. 13:14

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakka þér fyrir hlýu orð Símon badmintonspilari. Fátt af þessu  þessu er frá mér komið heldur mest bara samantekt af skynsemi sem ég heyri útundan mér.

Halldór Jónsson, 24.2.2019 kl. 13:43

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Svona skrifa og segja gömul bein.

"Menn gætu velt fyrir ef Alþingi ákvæði núna, að allir launþegar upp að vissu marki fengju tiltekna krónutöluhækkun á mánuði miðað við síðasta ár. Aðrir ekki neitt.

Í staðinn myndi gengið styrkjast og verðlag lækka. Reistar yrðu ódýrar íbúðir sem yrðu til sölu á langtímakjörum.Lóðir yrðu útvegaðar í smáibúðastíl. Bensín og bílar myndu lækka.  Kjararáðshækkanir yrðu spilaðar niður og ofurlaun lækkuð. Eitthvað meira gert í félagslegum umbótum kannski.

Hverjar yrðu afleiðingarnar fyrir krónuna? Hverjar yrðu afleiðingarnar fyrir lífskjörin og kaupmáttinn?".

Þegar maður les þetta og skrif Styrmis, þá dettur manni í hug að það sé eitthvað til í því sem Kínverjar hafa löngu sagt að fólk sé varla komið með þroska til að stjórna fyrr en það er langt komið um áttrætt.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 24.2.2019 kl. 13:54

4 identicon

Eitt má nefna til viðbótar og það er að löngu er kominn tími til að lækka tryggingargjaldið hressilega.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.2.2019 kl. 14:24

5 identicon

Það nægir víst ekki að fólk fái að vinna við það sem gleður hug og hjarta þess heldur þarf það líka að fá hærri laun fyrir að hafa nennt að halda áfram í skóla. Annars er ekki menntun metin til launa enda engin ásókn í iðnám á Íslandi

Grímur (IP-tala skráð) 24.2.2019 kl. 14:31

6 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Það besta við þessa umræðu, þá kjarasamningana, er hvað Sjálfsstæðisflokkurinn afhjúpar sig enn og aftur sem flokkur sérhagsmuna.

Það muna allir þegar núverandi Utanríkisráðherra barðist hatramlega fyrir afnmámi "auðlegðarskattsins" á sínum tima. Þá kom í ljós að hans helstu "skjólstæðingar" voru nokkar fjölskyldur (innan við 100 aðilar) sem sátu inn í eignum sínum (skuldlausum) en gátu ekki greitt téðan skatt. 

Fyrir það fólk barðist Guðlaugur Þór og hans flokkur fyrir, ötullega. 

Nú er hér hópar sem hafa það mjög slæmt, talsvert fleiri en 100 aðilar, hér eru enn þúsundir fátækra barna.

Ekki heyrist mér Sjallar vera berjst fyrir þann hóp.

Hátt bylur í tómri tunnu, að mínu mati.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 24.2.2019 kl. 23:03

7 identicon

"Að þingmenn skuli hafa gert sig seka um þvílíka heimsku að svelgja allar kauphækkanirnar í sig án þess að gera neitt.."

Eins og Styrmir sagði, "allir nema píratar.."

Snorri (IP-tala skráð) 25.2.2019 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband