1.3.2019 | 08:53
When in doubt
leave it out. Svo kenndi hún amma mín mér kommusetningu í ensku í gamla daga.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa líklega aldrei lært slíka reglu.
Ég geri mér fulla grein fyrir gagnrýni á þessa innleiðingu, ég hef tekið hana alvarlega og við höfum lagst í mikla vinnu við greiningar, upplýsingagjöf og annað og erum enn þá að skoða þetta út frá því, en ég hræðist ekki þetta samtal og ég væri aldrei að leggja til að við værum að innleiða eitthvað sem ég teldi skaða hagsmuni Íslands eða Íslendinga, segir Þórdís Kolbrún.
Hún nefndi sérstaklega í ávarpi sínu á ársfundi Landsvirkjunar í dag að hópur fólks hygðist mótmæla innleiðingu orkupakkans og nota til þess slagorðið Orkan okkar, en félagasamtök með því nafni voru einnig stofnuð í haust, um það leyti er umræður um orkupakkann voru í hámæli, samkvæmt því sem fram kemur í fyrirtækjaskrá. Ráðherra segist hafa heyrt frá þessum samtökum.
Ég hef bara heyrt af þessum hópi og hitt fulltrúa frá honum og á nú lyklakippu með þessu slagorði, en þetta er bara gagnrýni þeirra. Það er bara eðlilegt að fólk haldi fram gagnrýni á einhver mál og vilji upplýsta umræðu um viðamikil og flókin mál eins og þetta er í heild sinni, þrátt fyrir að akkúrat þriðji orkupakkinn sé tæknilegt framhald á fyrsta og öðrum og áframhald á þessari vegferð, segir Þórdís Kolbrún."
Það skal í ykkur samt. Þetta er nokkurn veginn samhljómur hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins séu eir spurðir um þennan 3. orkupakka. Þeir svara því til að hann skipti ekki máli því enginn sé sæstrengurinn.
Þeir svara því hinsvegar aldrei hvort Íslendingar muni ávallt ráða því hvort hingað verði lagður sæstrengur í anda orkupakkans.Sem ýmsir telja að sé ekki í anda samkomulagsins og ACER.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Takist henni þetta, forystunni, þá verður hún án flokks. Fylgið mun hrynja. 22% fylgið mun endanlega hrynja, þetta verður geymt um aldur og ævi og aldrei gleymt. Verri svik verða aldrei en þegar vargar eru í véum. Enginn sjálfstæður maður mun eiga samleið lengur með forystunni.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.3.2019 kl. 10:14
Einungis ESB sinnarnir munu fylgja forystunni. Sjálfstæðisflokkurinn mun þá mest fá 10% fylgi og verða á pari með Viðreisn. Þeir munu sameinast í kosningabandalagi og fá samtals um 18% fylgi.
Þetta er hin raunsanna spá. Traust almennings til þingsins er hrunið. Og það er nú öllum ljóst það sem Palli Vill skrifar:
Djúpríkið hefur sölsað undir sig XD.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.3.2019 kl. 10:39
Takk fyrir góða grein. Nú þarf allt gott fólk að snúa bökum saman til öflugrar varnar gegn fyrirhuguðum landráðum sumra þingmanna og ráðherra vegna 3. orkupakkans. Fari fram afsal á orku til erlendra afla mun þá mun slíkt eyðileggja lífskjör afkomenda okkar og framtíð Íslands. Gegn þessum óksöpum verður að berjast. Ég bendi á framúrskarandi pistil Gunnars Rögnvaldssonar hér á Moggablogginu. Sjá https://tilveran-i-esb.blog.is
Hermann Jónsson (IP-tala skráð) 1.3.2019 kl. 10:40
Ráðherrann setur sig í stellingar búrókrata í Brüssel, þegar hún segir, að Orkupakki #3 sé aðeins "tæknilegt framhald á fyrsta og öðrum og áframhald á þessari vegferð". Ráðherrann er hins vegar úti að aka, ef hún ætlar að halda því fram, að innihald pakkanna sé sambærilegt frá sjónarhóli hagsmunaaðila hérlendis, sem er öll þjóðin. Sá fyrsti skilgreindi hlutverk í orkugeiranum, sá annar skilgreindi orkumarkaðinn innanlands, og sá þriðji skilgreinir millilandaviðskipti. Með honum og þegar útgefnum viðbótar skjölum tryggir ESB sér einfaldlega stjórn millilandatenginga. Þetta felur ekki aðeins í sér hættu á mikilli raforkusölu úr landi og þar með stórhækkun raforkuverðs, heldur algerlega óviðunandi fullveldisframsal á ráðstöfunarrétti afurðar orkulindanna, rafmagninu.
Bjarni Jónsson, 1.3.2019 kl. 11:18
Mér sýnist þinn skilningur Kollege Bjarni ekki vera langt frá mínum skilningi á inntaki málsins.Við verðum ekki ákvörðunaraðalil hvort hingað verður lagður sæstrengur eða ekki. það ræðst af ehildarhagsmunum aðillanna að ACER en ekki til dæmis Seyðfirðinga einna og sér.
Halldór Jónsson, 1.3.2019 kl. 11:38
Komi til heimsstyrjaldar, ætlum við þá að vera Þýskalandsmegin? Raforkustöð þeirra í norðri?
Er það virkilega stefna Sjálfstæðisflokksins?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.3.2019 kl. 11:45
Virkisturn og raforkustöð Þýskalands í norðri.
Er það virkilega helsta framtíðarsýn og stefna
forystu Sjálfstæðisflokksins?
Svo virðist nú augljóst.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.3.2019 kl. 12:32
Í þessu samhengi finnst mér vert að geta þess að einungis 18% þjóðarinnar ber traust til þingsins.
Það segir heilmikla sögu, rúmum 10 árum frá hruni. Skyldu þingmenn kunna að draga einhvern lærdóm af því?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 1.3.2019 kl. 14:54
"Það er ekki spurning um hvort, heldur hvenær sæstrengurinn kemur" sagði forstjóri Landsvirkjunar á fundi fyrirtækisins.
Enginn fjölmiðill tók eftir þessu. Það fyrirbrigði er hægt að kalla "áunna fáfræði."
Ómar Ragnarsson, 1.3.2019 kl. 15:11
Ef núverandi ríkisstjórn hrökklast frá völdum á næstu dögum eða vikum, þá virðist nú orðið frekar fátt um fína drætti í pólitíska litrófinu hér á skerinu.
Einu framboðin sem ætla má að beri hag íslensku þjóðarinnar fyrir brjósti eru að því virðist Íslenska Þjóðfylkingin og mögulega Miðflokkurinn að frádregnum Gunnari Braga Kænugarðs kappa, eins og margir muna vonandi enn.
Áfram Ísland.
Jónatan Karlsson, 1.3.2019 kl. 18:49
Blessaður Halldór.
Þegar menn eins og þú, sem eru nákvæmlega kjarni flokks þíns, skrifa svona pistla, þá ætti forystufólk ykkar að staldra við, og allavega eiga samræður við flokk og þjóð.
Í stað þess að tala niður til ykkar á þann hátt sem Þórdís gerir þegar hún afgreiðir málið á þann hátt að hún, sú alvitra, myndi aldrei leggja eitthvað til sem myndi skaða þjóð og land.
Samræða er til dæmis að svara málefnalegum rökum manna eins og Bjarna Jónssonar, sem ég fæ best séð að hafi ekki verið gert. Ég hef lesið andsvör, en fullyrðingar eru aldrei svör við rökum.
Og varðandi þennan sameiginlega markað orkunnar, sem við eigum víst ekki að hafa áhyggjur af því við tengjumst honum ekki, að til hvers er þá ráðherra að benda á meinta sóun í kerfinu, með þessum orðum; " .. og lýsti um leið áhyggjum af sóun sem fælist í einangrun orkukerfisins. Það leiddi af sér að tvær teravattstundir færu til spillis á ári hverju og mætti hreinlega líkja við brottkast í sjávarútvegi. Miðað við að þrjú þúsund krónur fengjust fyrir hverja megavattstund á markaði næmi þessi sóun um sex milljörðum króna í meðalári.".
Þessi umframgeta kerfisins verður náttúrulega ekki að verðmæti, nema að einangrun landsins sé rofin með sæstreng, og þar með lútum við yfirráðum ESB eins og Bjarni er alltaf að benda á.
Í gamla daga hét þetta að ljúga að fólki, það er ef þú færir rök fyrir því að það þurfi að rjúfa einangrun landsins og tengja hann inná hinn sameiginlega orkumarkað með sæstreng, annars væri það tóm tjara að tala um 6 milljarða tapið, og síðan í öðru orði þá segir þú að það sé ekkert að óttast því landið sé ekki tengt inná hinn sameiginlega orkumarkað.
Kannski er þetta reynsluleysi hjá ráðherranum, en hún sýnir vitsmunum ykkar flokksmanna ekki mikla virðingu með þessum orðum sínum.
Spurningin er hvort þið látið bjóða ykkur svona málflutning.
Og síðan önnur spurning hvort þið almennir flokksmenn geti eitthvað gert til að breyta þegar tekinni ákvörðun.
Þetta er allavega ekki félegt.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 1.3.2019 kl. 21:05
Er eitthvað eftir sem heitir almennir flokksmenn? Eru gömlu grunngildin ekki bara löngu úrelt? Enginn hugsar um þau meira? Þetta er allt eitthvað evróputengt orðið, innflytjendur, samkynhneigðir, félagsmál.Eign fyrir alla, á það við lengur? Stétt með stétt? Öfugmæli? Menntun til launa eða verkföll?
Ég helda að ég sé bara kominn út á grænar engjar og hættur að spá í pólitík
Halldór Jónsson, 1.3.2019 kl. 21:56
Ja, það væri nú gott að byrja á að leggja sig og vakna svo endurnærður að morgni og taka slaginn.
Ólík sjónarmið takast sjaldan á ef annar aðilinn byrjar á að gefast upp.
Síðan má margt finna á grænum engjum, til dæmis gróskuna, og ræturnar.
Kveðja að austan,.
Ómar Geirsson, 1.3.2019 kl. 23:34
Kæri Halldór, ef forystan svíkur öll heltu gildi Sjálfstæðisflokksins, ert það alls ekki þú sem hefur svikið þau.
Og nei, gömlu grunngildin eru ekki úrelt, þau er sígild fyrir sjálfstæða og þjóðlega, fyrir stefnumál og farsæld þjóðar, enda þótt Junior Bjarni og bimbíógellurnar í forystunni hafi kastað þeim fyrir róða.
Og það boðar engum stjórnvöldum gott að brjóta stjórnarskrá landsins, líkt og forysta flokksins vílar ekki fyrir sér að gera.
Hber verða þá lög laganna ef þeir sundurslíta friðinn og siðinn og troða stjórnarskrána í svaðinn? NEI, það er það sem við berjumst gegn og munum hafa 98-2 ... þ.e.a.s. ef Guðni Icesave Thorlacius Jóhannesson er ekki uppkeypt loftdúkka.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.3.2019 kl. 01:16
Hér skal blásið til baráttu gegn þriðja orkupakkanum og vinna 98-2 sigur, enn á ný: Þða er vor í lofti!
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.3.2019 kl. 01:20
ORKUPAKKINN er eign ÍSLENDINGA en EKKI ALÞINGIS. Þessa lausn þarf hugsanlega að leysa með alþingiskosningum eða þjóðarkosningu því þetta er sameign Þjóðarinnar.
SÆSTRENGURINN verður lagður á kostnað ÍSLENDINGA, en EKKI Georgs Sorros sem flestir óttast?. Hann virðist eiga"lítinn vinahóp" á ÍSLANDI?.
ÞÖKKUM HUGSANDI FORSTJÓRA ORKUMÁLA,VERKFRÆÐINGUM og bestu FAGMÖNNUM ORKUMÁLA VARÐANDI SAMEIGN OKKAR ÍSLENDINGA.
ÞETTA er ORKUPAKKINN OKKAR ÍSLENDINGA.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 2.3.2019 kl. 17:38
Halldór Jónsson skrifar jafnan af greind um Lands og Heimsmál. Halldór skrifaði 30.jan."Getum við neitað sæstreng", ef Georg Soros vill leggja á sinn kostnað?.
Ég hlustaði fyrir mörgum árum á Glen Beck hjá FOX News og síðan á STEFANÍU "skrifarann" frá Sauðárkróki. Þau hafa sömu sýn á "ógn" þessa fjármálamanns.
Ef íslenskt óðagot fer hamförum varðandi SÆSTRENG,legg ég til,að við EIGENDUR á ORKUNNI verði að fullu greidd af ÍSLENDINGUM einum að VIÐBÆTTU VATNSRÖRI með ómenguðu BLÁVATNI eða (hitaveituröri) til að greiða niður kostnaðinn á SÆSTRENG.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 4.3.2019 kl. 17:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.